Íslendingur - 30.08.1950, Blaðsíða 1
XXXVI. árg.
Miðvikudag'ur
30. ágúst
1950
35. tbl.
Leysa þart atvinnn-
vandamál bæjarbúa nú
þenar.
Helgi Pálsson, bœjarfidltrúi, flutti a fundi, sem
haldinn var í Sjálfstœðisfélagi Akureyrar s. I.
firnmtudagskvöld ýtarlegt og greinargott erindi
u.m atvinnuhorfur hér í bce á hausti og vetri kom-
anda. Þvi miður hafði hann ekki rceðu sína nema
að litlu leyti skrifaða, svo að ekki er unnt að birta
hana hér i blaðinu i líeild, heldur verður að
ncegja að stikla á þvi stærsta.
RÝR AFKOMA.
RæðumaSur hóf mál sitt á þá
lund, áð ekki væri ótímabært. að
ræddar væru atvinnuhorfurnar, þar
eð hvort tveggja væri, að útlit væri
á því. að fjöldi verkamanna og sjó-
manna kæmu tekjurýrir heim í
haust. og svo hitt, að dýrtíðin væri
orðin slík, að lítið eða ekkert yrði
lagt fyrir til vetrarins. Verkamenn
og aðrir launþegar þyldu því á eng-
an hátl að ganga atvinnulausir,
jafnvel þó aðeins væri um skamma
stund að ræða.
Beindi hann því eindregið þeim
urðuni til atvinnuveitenda, hæði
einstaklinga, félaga og bæjarfélags-
ins, að undinn yrði að því bráður
bugur, að rætt yrði og gerðar til-
lögur um á hvern há’.t atvinnu yrði
helzt haldið uppi í liaust og vetur.
ATVINNA NÚNA.
250 til 300 manns hér í bænum
mun enga fasta atvinnu hafa til
lengri tíma, heldur stunda svokall-
aða hlaupavinnu. Eins og stendur
munu flestir þessara manna hafa
einhverja vinnu við síidveiði, bygg-
ingarvinnu eða annað.
Margt af þessari vinnu stöðvast,
þegar tíð versnar með hauslinu.
lJað helzta, sem nú er unnið við í
bænum er byggingarvinna, ein 29
hús eru nú í smíðum. Hætt er við,
að fjárskortur, efnisskortur, synjun
á viðbótar fjárfestingarleyíum eða
annað muni hindra framhald viimu
við jnörg húsanna, enda þótt veður
hamlaði ekki vinnu fram eftir
hausti.
Þá er nú unnið að lengingu Torfu-
nefsbryggju, ennfremur byggingu
minni dráttarbrautarinnar, en hætt
er við, að fjárskortur muni stöðva
framkvæmdir þar í haust.
Bærinn er með þrjár aðrar all-
miklar byggingar, þ. e. brunastöðin,
sundlaugin og almenningssalerni,
við þessar byggingar vinna nú um
20 verkamenn. og þyrfti að vinna
þar e’nnig eins og mögulegl ei i
haust og vetur. I fjórðungssjúkra-
húsinu vinna nokkrir menn, en þar
mun fé skorta til áframhaldandi
vinnu.
Garðyrkjuráðunautur mun að
jafnaði hafa um 5 menn i vinnu, sem
að sjálfsögðu er lokið þegar tíð
spillist.
Vatnsveitan hefir 14 menn i vinnu
sem stendur, en það mun varl vara
lengi því að þar er efnislaust. þrátt
fyrir að þar hefir um lengri tíma
verið brýn þörf fyrir stórkostlegar
endurbætur og viðauka. 1 vegum,
holræsagerð, malarflutningi og fl.
vinna nú sem stendur 20 manns, en
hve lengi það getur haldizt er óvíst,
en fé til þeirra framkvæmda mun
mjög að verða gengið til þurrðar á
þessu ári.
KEA mun vera sá atvinnurekand-
inn, sem flest járn hefir í eldinum
og flesta verkamenn hefir, en ein-
hver samdráttur hlýtur þó að verða
í vinnu þar með haustinu.
11 verkamenn vinna nú að bygg-
ingu fiskhúss þess, sem Útgerðarfé-
lag Akureyringa h.f. hefir í smíð-
um, mun sú vinna verða fram eftir
hausti, og vonir standa íil, að hjá
félaginu geti orðið uni nokkra at-
innuaukningu að ræða í vetur.
SIS hefir liér í smíðum mikla
verksmiðjubyggingu, en hætt er við
að vinna dragist þar saman með
versnandi tíð.
Þá benli ræðumaður og á togara-
útveginn og þá miklu atvinnu, sem
hami hefði skapað í sumar, auk
Framhald á 4. síðu.
Dýrt spaog
28 nýsköpunartogarar haja nú
legið við landjestar í 60 daga
vegna verkfalls.
A einuin rnánuði veiða Akur-
eyrartogararnir hver um sig fyr-
ir nálega 800 þús. kr. í erlendum
gjaldeyri.
Verkfallið kostar því
þjóðina um 22 milljónir
króna í dýrmætum gjald-
eyri ó mónuði, eða ó að
gizka 750 þúsund krón-
ur ó dag.
Kartaaíuröir
til Hollands.
Þessa dagana er verið að hlaða
e. s. Deltifoss, sem liggur við
hryggju hér, afurðum frá Krossa-
nesverksmiðjunn i.
Er hér um að ræða 150 tonn af
karfalýsi og 1600 tonn af karfainjöli,
sem allt á að fara til Hollands.
Karfaafurðir þessar eru sendar til
Hollands og eiga að koma til full-
nægju á þeim síldarafurðarsamn-
ingum, sein gerðir voru og sénni-
legst verður ekki hægl að fullnægja,
vegna aflabrests á síldveiðunum, á
annan hátt en þennan.
Ekki mun þó fást alveg eins hátt
verð fyrir karfaafurðirnar, þar eð
í samningunum voru ýins ákvæði
uni gæði og efnasamsetningu og
skyldi verðið lækka, ef farið væri
niður fyrir yisst mark.
Það magn, sem nú fer, er aðeins
nokkur hluti karfaafurðaframleiðslu
verksmiðj unnar.
FURÐULÉG
FRAMKOMA
Þau furðulegu tíðindi gerðust í
sl. viku, að inenn af tveim síldar-
skipum að minnsta kosti og íveim
trillum, hafa stolið úr rússneska skip-
inu, sem strandaði i Þorgeirsfirði.
ýmsu lauslegu og jafnvel dýrmætum
siglingatækjum eins og dýplarmæli
og áttavita.
Komst þetta upp, þegar eftirlits-
skipið Sæbjörg fór iil þess að líta
eftir strandgóssinu.
Málið er í rannsókn hjá sýslu-
manninum á Húsávík.
BARNAHEIMiLlÐ PÁLMHOLT
15. júní s.l. var hajin starjsemi fyrsta barnaheimilisins, sem
starfrœkt hejir verið á Akureyri, og ætlunih er, að jiað muni starja
fram til 15. seplember. Rarnaheimilið lekur 50 börn og hejir
það verið yfirfullt nema nú síðasta mánuðinn. Börnin dvöldu á
heimilinu alla daga netna sunnudaga jrá kl. 9 f. h. til 6 e. li. (á
laugardögum til kl. -1 e. h.). Voru þau flutt á bifreiðum milli heim-
ila sinna og barnaheimilisins. — 5 stulkur hafa starfað í sumar við
barnagœzluna. Forstöðuhona var /ngibjörg Kristín Jónsdótlir. —
Myndin er jrá vígslu PáÍmholts í vor.
Atvinniihorfur og hlutur Ak-
ureyrar við fjárlaga-
afgreiðslu
rædd á fundi í Sjálfstæðisfélagi Akureyrar.
S.l. fimmtudagskvöld var hald-
inn iundur í SjálfstæÓisfélagi Ak-
ureyrar i bæjarstjórnarfundar-
salnum í Samkomuhúsinu.
Þar fluttu þeir Jónas G. Rafn-
ar, alþnt., og Helgi Pálsson, bæj-
arfulltrúi, ‘ræður. Er ræðu Helga
getið hér á öðrum stað í blaðinu,
en hann ræddi um atvinnuhorf-
ur í bænum á komandi vetri.
Jónas G. Rafnar ræddi almennt
afgreiðslu fjárlaga, og þá sér-
staklega þá liði þeirra, er snerta
Akureyrarkaupstað.
Minntist ræðdmaður m. a. á
fyrirhugaðar framkvæmdir við
stækkun Laxárvirkjunarinnar og
afskipti þingsins af því máli, en
það mál hefur áður verið rakið
svo ýtarlega í blaðinu, að óþarft
er að geta þess frekar hér.
Brú á Glerá.
Þá gat Jónas Rafnar þess, að
á næsta ári þyrfti að hreyfa því
niáli á þinginu, að byggð yrði
brú yfir Glerá á eyrunum. Sain-
kvæmt áætlun vegamálastjóra
I mun standa til, að þjóðvegurinn
j eigi að ligg'ja í gegn uni Glerár-
; þorpið, og þaðan yfir á Oddeyr-
ina. Hann gat þess, að á s.l. vetri
hefði hann borið fram tillögu í
íjárveitinganefnd þess efnis, aö
þá yrði veitt fé til nýrrar brúar-
gerðar á Glerá, en hún náði ekki
i'ram að ganga í það skiptið, þar
eð aðrar brúargerðir voru taldai'
meir aðkallandi.
Tunnuverksmiðjan.
Á s.l. vetri kom það í ljós, að
síldarútvegsnefnd, sem starfræk-
ir Tunnuverksm.' ríkisins, hafði
ekki í hyggju að reka verksmiðj-
una hér. Réttlætti hún þessa af-
stöðu sína með því að vélakostur
verksmiðjunnar á Siglufirði væri
betri, og þar væri tunnugeymsla,
og þar væri niestur markaður fyr
ir síidartunnur.
Eftir mikið þref og þjark hafð-
ist það þó að lokum fraih, að
smíðaöar voru hér einar 10 þús.
tunnur.
Afstaða síldarútvegsnefndar
er að mörgu leyti furðuleg.-
Reynslan hefur sýnt að söltunar*
stöðvar við Eyjafjörð utan Siglu-
fjarðar, fyrir vestan og allt aust-
ur til Raufarhafnar, hafa heldur
Framh. á 3. síðu