Íslendingur


Íslendingur - 13.09.1950, Side 1

Íslendingur - 13.09.1950, Side 1
Kosningar til A Iþýdusambandsþr'ngs fyrir dyrum Tviskinnungur og óeinlægni einkennir stefou konimúnista i hagsmunabaráttu launþeganna Kommúnistar telja það svik, að ekki slcyldi vera haldið til streytu þeim verkföllum, sem boðað hafði verið til. — Þeir meina verkamönnum inngöngu í Verkamannafélag Akureyrar- icaupstaðar, og ætla að flaustra af kosningum i féluginu á fyrsta degi, sem kosningin má fara fram á, þar eð þeir telja að lýðræðissinnum verði með því móti gert örðugra fyrir. Sliku gerræði ásamt öðru ofbeldi, sem kommúhistar hafa löngum sýnt af sér i verkalýðssamtökunum, ætla lýðræðissinnaðir vjerkamenn að lmekkja i kosningunum á sunnudaginn kemur. Listi lýðræði^sinnaðra verka- . manna er þannig skipaður AÐALMENN: Stefán -Árnason, Norðurgötu 15. Torfi Vilhjálmsson, Eyrarveg 25. Haraldur Þorvaldsson. Munkaþverárstræti 30. Eir'kur Einarsson, Hólabraut 22. VARAMENN: Árni Þorgrimssoín, Gránufélagsgötu 57 B. Hjörleifur Hafliðason, Þórunnarstræti 122 Konráð Sigurðsson, Bjarinastíg 11. Stefán Hóhn Kristjánsson, Aðalstræti 16. Kosið verður á sunnud. n.k. kl. 2 — 10 og mánud. á sama tíma. Verkamenn á Akureyri, kjósið gegn upplausn og gjörræði sovietþrælanna. Gerið ykkar til að afstýra þvi að A. S. í. verði aftur að bráð niðurrifsmölnnum þjóðfélagsins, sem á hinn herfilegasta hátt hafa alla tíð misnotað samtök verkamanna í pólitísku eiginhagsmuna skyni. Fylkið ykkur undir merki lýðræðissinnaðra verkamanna og útrýmið áhrifum kommúnista úr samtökum vericamanna. ÓiH'i og f'vískinnungur komma. Kosnlng fulltrúa á þing Alþýðu- sambands íslands er nú í þann veg- inn að hefjast, og má sjá þess glögg dæmi í skrifum konnnúnistablað- anna að undanförnu, en nú óttast kommúnistar, að ósigur þeirra verði enn stærri heldur en varð við síð- ustu kosningar, en þá voru þeir hraktir úr stjórn ASÍ. Til þess nú að forða samtökum verkamanna enn frekar en orðið er undan áhrifum kommúnista hafa lýðræðisflokkarnir hér tekið upp samstaif við þessar kosningar, til þess að tryggja það, að verkalýðs- félögin verði ekki misnotuð í þágu skemmdarstarfs þess, sem komrnún- istar vinna markvisst að; því að kollvarpa þjóðskipulagi okkar, en koma í þess stað á sovét oki, en í þessu skyni hafa þeir alls s aðar, þar sem þeir haf'i haft aðslöðu til, skipulagt upplausn en skreylt sig svo með yfirborðskenndum kröfum cg glamuryiðum, sem glapið hefir mörgum sýn. En nú ótlast þeir, og ber Þjóð- viljinn þess ljóst vitni. Þar er stjórn ASÍ brigslað um svik, þegar hún íekur þá ábyrgu afstöðu, að hverfa frá því að láta koma til verkfalla þeirra, sem boðuð höfðu verið, en samtímis er skýit frá því, að sam- þykkt hafi verið í Dagsbrún, sterk- asla hreiðri kommúnlsta hér á landi, frarn til þessa, að samningar þess félags skyldu framlengdir að óbreylt- urn aðstæðum, auk þess sem þeir fordæma togaraverkfallið harðlega og telja það í alla staði óhagstæ.t sjómönnum á þessum tíma árs, en eins og allir sjá myndi það vera eins um verkamenn, og þetta sjá komrn- únistar og þess vegna skín óttinn greinilega frain í gegnum tviskinn- unginn og hræsnina, sem einkennir nú slefnu og skrif kommúnisla. Kommúnistar hindra irmgöngu nýrra féEaga. Á fundi, sem haldinn var í Verka- mannafélagi Akureyratkaupstaðar á sunnudaginn var, var ákveð.ð, að kosningar til fulltrúa á þing ASÍ færi fram á sunnudaginn kernur, þ. .17. þ.m., en það er fyrsti dagurinn, sem fulltrúakosning má fara fram. I löguin ASI er ákveðið að kosning skuli standa yfir í tvo daga, og skal það vera á þeim tíma, sem heppileg- as'iur er fyrir verkamenn. Það virð- ist því nokkuð flausturslega ráðið, að stjórn Veikamannafélagsins skuli ákveða, að kosning fari fram urn næstu helgi, þar eð kosning verður þá að fara fram á sunnudag >g mánudag, en mánudagurinn er 'ægast sagt óheppilegur, þar sem lann er almennt virkur vinnudagur. ih heppilegra hefði' verið að fresta losningunni til laugardagsins og . unnudagsins 23. og 24. sep.ember. Cn vafalaust telur kommúnista- itjórnin, að þeirra liagur sé að. laustra kosningunni af. Á þessum fundi gerðust þau urðulegu ííðindi, að kommúnislar elldu frá inngöngu í félaginu tvo lerkamenn, sem þeir töldu sér ekki pólitískan hag að fá inn í félagið élt fyrir kosningar, og báru við ormgöllum á inntökubeiðnum icirra, en áður á fundinum höfðu jeir samþykkt sem félaga aðra ef.ir iarns konar beiðnum. Kommar leika hér sama skrípaleikinn. Þá léku kommúnistar á þessurn fundi sama skrípaleikinn og trú- bræður þeirra í Dagsbrún. Björn Jónsson, formaður Verkanrannafé- lagsins, jós sér yfir stjórn ASÍ og laldi hana hafa svikið málstað verka- manna og hún látið ríkisstjórnina kaupa sig með 3 vísitölustigum. — Eftir þann langa skammalestur, bar liann svo að lokum franr tillögu þess efnis að Verkamannafélagið fram- lengdi sína sanminga um 30 daga! Var honum bent á ósanrræmið í árásum'hans á stjórn ASÍ og iillögu hans, þar eð í henni fælist bein við- urkenning á því, að hann íeldi verka- mönnum engan hag að því að hefja nú verkföll! Varð honum við það svarafátt. Hugur kommúnisía íil verkamanraa, Þá bar Björn franr aðra tillögu 1 svohljóðandi, undirritaða af þeim Birni Jónssyni, Jóhannesi Jósefssyni, Höskuldi Egilssyni og Svavari Jó- hannessyni: „Fundur Verkamannafélags Ak- ureyrarkaupstaðar. haldinn 10. sept. 1950 vilfrum leið og hann samþykk- ir bráðabirgða framlengingu á samn- ingum félagsins, lýsa yfir því, að slefna félagsins unr fullar bætur fyr- ir kjararýrnun gengislækkunarlag- anna er að öllu óbreytt, enda þótt s.jórn ASÍ hafi á smánarlegan hátt brugðið fæti fyrir sameiginlega og . sigursæla kaupgjaklsbaráttu verka- \ lýðsfélaganna nú um sinn með því að hafna öllu samstarfi við félögin um undirbúning hennar og loks með því að semja á bak við félögin, um raunverulega kauplækkun, jafnvel þótt aðeins sé miðað við þann stutta tínra, senr liðinn er frá því, að verka- lýðsfélögin liófu almennt uppsagnir sínar í byrjun ágúst s.l.“ Þessi tillaga konrmúnistafor- sprakkanna lýsir einkar vel tví- skinnungshætti þeirra í kjaraharáttu verkalýðsfélaganna, og sýnir einnig ljóst að barátta kommúnista miðar að allt öðru en bættum kjörunr verkanranna, hún miðar að því einu að efla og styrkja þá Sovét-sellu, sem lrér er og er ætlað það hlutverk, að konra íslandi í þann lepprikjahring, senr Sovét-stjórnin og einræðisherr- ann í Kreml er að lrlaða utan unr sig. Stefna komnrúnista er sú, að 1.— 15. sept. hafi verkalýðsfélögin átt að hefja kaupgjaldsbaráttu með verkföllum studd af ASÍ, þó að þeir Viðurkenni hins vegar eins og franr kernur í tillögunni, að slíkt sé alls ekki tímabært þar eð þeir álíta sjálf- unr sér happasælast að framlengja vinnusamninga þeirra félaga, senr þeir lrafa þó lil þessa haft öll ráð í. Þjóðin hefir horft undrandi á það, að flestir togaranna hafa verið bundnir við landfestar sl. 10 vikur. Ofan á það heinrta komnrúnistar nú allsherjarvinnustöðvun og stöðvun allra verklegra franrkvænrda í land- inu, en þó treysta þeir sér ekki til þess að ríða á vaðið í þeirn félögum, senr þeir eru einráðir í. — Þeir vita senr er, að meiri hluti hinna vinn- andi stétla er á móti slíkunr verk- föllum nú, þegar þjóðin á við slíka erfiðleika að búa, sem raun er á. — Enda þótt tillögumennirnir tali um Framhald á 8. síðu. VARÐAR-FÉLÁGAR! Munið' aðalfund félagsins á nránudaginn kenrur kl. 8.30 í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Hafnarstræti 101. Fjölmennið og mætið stund- víslega. Aðalfundur SjálfstæðiskyerGnafélagið „Vörn" heldur aðalfund sinn n.k. miðvikudag, 20. þ.nr., kl. 8.30 e.h. í skrif- stofu Sjálfslæðisflokksins, Hafnarstræti 101. Venjuleg aðalfundarstörf. Félagskonur eru lrvattar til að nræta vel og stundvíslega. STJÓRNIN.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.