Íslendingur - 27.10.1950, Side 6
Ritsafn Jóns Trausta
I.—VIII. bindi, fæst nú óbund-
ið. Verð kr. 383.00.
Bókaverzlun Björns Árnascnar.
Granufélagsgölu 4 Akureyri.
Messað í Akureyrarkirkju n.k. sunnu-
dag kl. 2 e.h. — P. S.
Æskulýðsfélag Akur-
O Q
eyrarkirkju. 3. deild: f 3)
Fundur n.k. sunnud. V
kl. 10.30 f.h. 2. deild: ^
Fundur n.k. sunnudag kl. 8.30 e.h. Hátíð
félagsins að' Hótel Norðurlandi verður 5.
nóv., en ekki 29. okt. eins og áður var
auglýst.
]. 0. O. F. Rb.st. 2 Au. — 9810258% —
I. O. O. F. — 13210278% —
□ Iluld — 595010256 — IV/V — 2.
Sjónarhœð. Sunnudagaskóli kl. 1, al-
nienn samkoma kl. 5 n. k. sunnudag. Arni
Jónatansson talar. Allir velkomnir. Bibliu-
lestur þriðj ttdag kl. 8. Sæmundur G. Jó-
hannesson talar.
Framhalds-aðalfundur fé-
lagsins verður þriðjudaginn
31. okt. n.k. kl. 8.30 stund-
víslega í Félageheimili IBA.
Fer þá frani stjórnarkosning o.fl. -— Fast-
lega skorað á félagsmenn að fjölmenna.
Frá Golfklúbbi Akureyrar. Firmakeppni
klúbbsins er nú nýlokið. Þatttakendur
voru 32 firmu og stóð úrslitakeppnin milli
OJíuverzlunar íslands og Almennra Trygg-
inga. Úrslit urðu þau, að Olíuverzlun Is-
lands h.f. vann eftii 36 holu úrslitaleik
með 2 holur til góða þegar ein var eftir.
Hafliði Guðmundsson keppti fyrir Olíu-
verzlun íslands, en Kristján Sigurðsson,
hótelstjóri, fyrir Almennar Tryggingar. —
Þá skal þess getið, að hinn árlegi dans-
leikur Golfklúbbsins er ákveðinn laugar-
daginn 4. nóvember að Hótel KEA, og
eru kylfingar og aðrir, sem hafa áhuga á
að vera þar, beðnir að snúa sér til Sig-
tryggs Júlíussonar, rakara, eða Kristjáns
Sigurðssonar, hótelstjóra KEA.
Hjónaefni: Síðastliðinn fimmtudag op-
inberuðu trúlofun sína ungfrú Margrét
Oddsdóttir og Jón E. Aspar, loftskeyta-
maður.
Síðastliðinn sunnudag áttu 25 ára hjú-
skaparafmæli hjónin Gróa Hertervig og
Hjörleifur Arnason, Holtagötu 9.
Barnavernrlarfélag Akureyrar færir öll-
ttnt þeim hæjarbúum alúðarþakkir, sem í
stóru og smáu studdu málefni félagsins
fyrsta velrardag. Alls nam fjársöfnun fé-
lagsins krónum 9666.35. Þar af seldust
merki fyrir kr. 5340.00. Hæstir í merkja-
sölunni voru þeir Gunnar Finnbogason og
Þórarinn B. Stefánsson. Gjafir hafa fé-
laginu borizt frá kennurum Barnaskólans
og Gagnfræðaskólans (ágóði af kappleik
í knattspyrnu) kr. 2588.55 og frá 6. bekk
Barnaskóians (ágóði af skemmtun) kr.
290.00. Og færir félagið gefendunum kær-
ar þakkir. — Stjórnin.
Kvennadeild Slysavarnafélagsins heldur
fund að Lóni þriðjudaginn 31. okt. kl. 9
e.h. Rætl um starfsemi félagsiiis í vetur.
Konur, takið með ykkur kaffi og vinnu. •—
Stjórnin.
Munið hlutaveltu Kantötukórs Akureyr-
eyrar að Hótel Norðurlandi sunnudaginn
Máíefni Akureyrar við væntan
Iega fjárlagaafgreiðslu
Þó að viðdvöl fjórveitinijanefndar og þeiira, sem
með henni voru, væri hér stuft, þé auðnaðist rit-
stjóra blaðsins þó að nó í srutt samtal við þingmann
bæjarins, Jónas G. Rafnar, en hann er eins og kunn-
ugt er einn af meðlimum fjórveitinganefndar.
Hefir fjárveitinganefnd áður
komið hingað til bæjarins?
Ekki svo að ég viti, en nefndin fer
oft í ferðir sem þessa til þess að
kynna sér aðstæður á stöðum, þar
sem framkvæmdir eru á vegum rík-
isins. Sjón er sögu ríkari, segir máls-
hátturinn. I fyrra ve'.ur fór nefndin
um Suðurnes, skoðaði hafnarmann-
virki í Njarðvíkum, Keflavík og
Grindavík og mannvirki á Keflavík-
urflugvelli. Skömmu eflir þinglokin
var farið að Rifi á Snæfellsnesi til
þess að athuga þar skilyrði til hafn-
argerðar og var vitamálastjóri að
sjálfsögðu með í förinni. Síðastlið-
inn laugardag fór nefndin að Mark-
arfljóti og voru þar skoðaðar fyrir-
hleðslur. Segja má, að þessar ferðir
séu sjálfsagðar. Þegar svo er sem nú,
að horfa verður í hvern skilding er
það grundvallaratriði, að fjárveit-
ingar gangi til þess, sem mesí kallar
að og verður þjóðarbúinu drýgst.
Hér í bænum eru margvíslegar fram-
kvæmdir, sém r.'kissjóður kostar að
verulegu leyti. Sumar þessara fram-
kvæmda eru komnar langt á veg, en
herzlumuninn vantar til þess að
Ijúka þeim. A ég þá ekki sízt við
íjórðungssjúkrahúsið. Með því að
koma hingað á staðinn, geta þeir,
sem gera eiga tillögur um fjárveit-
ingar, betur áttað sig á þörfinni og
öllum aðslæðum. Við Akureyringar
verðum þó að gera okkur ljóst, að
það er ekki einungis hér í bæ, sem
kreppir að framkvæmdum, þar sem
segja má, að eins eða svipað standi
á um land allt.
Á hvaða málefni Akureyrar telur
þú að leggja beri mesta áherzlu við
f j árlagaafgreiðsluna ?
Fyrst og fremst þarf að fá sem
29. okt. kl. 4 síðdegis. Um kvöldið hefst
dansleikur á sama stað kl. 9.
/. O. G. T. Stúkan Ísafold-Fjallkonan
no. 1 heldur fund n.k. mánudag kl. 8.30
í Skjaldborg. Inntaka nýrra félaga. Ymis
félagsmál. Skemmtiatriði o. fl. Félagar
eru beðnir að koma á fundinn, taka þátt
í félagsstörfum og greiða ársfjórðungs-
gjöld sín. Fjölmennið og mætið stundvís-
lega. Nýir' félagar alltaf velkomnir.
Barnastúkan Sakleysið heldur fund í
Skjaldborg n.k. sunnudag kl. 1 e.h. Fund-
arefni: Innsetning embættismanna. Inn-
taka nýrra félaga. Upplestur o. fl. MætiÖ
stundvíslega.
rýmsta fjárveitingu iil þess að ljúka
byggiugu fjórðungssjúkrahússins,
svo að starfrækslá þess geti hafizt
sem fyrst. Á fjárlagafrumvarpinu
eru teknar upp 350 þúsund kr. vil
sjúkrahússins, en sú upphæð hrekk-
ur því miður skammt, þar sem allt,
er kaupa þarf, hefir stórlega hækk-
að í verði. Þó verður ekki annað
sagt, en að Alþingi hafi sýnt þessu
máli skilning, þegar tekið er tillit til
greiðsluörðugleika ríkisins. Eins er
það mjög aðkallandi. að ríkissjóður
greiði sem mest upp í framlag sitt
til hafnarinnar á næsta ári, enda bótt
fengizt hafi um 400 þús. kr. í ár Til
þessa hefir ekki staðið verulega á
fj árveitingum til heimavistarhúss
Menntaskólans, hins vegar stóð um
tíma á fjárhagsráði með að re'la
leyfi til þess að halda áfran með
bygginguna.
Varðandi nýjar framkvæmdir tel
ég mest aðkallandi að fá brú á Glerá
á eyrunum, en ríkissjóður á að kosta
brúargerðina að hálfu á mól’ bæjar-
félaginu, einnig að sem fyrst verði
hafizt handa um að koma nop nýj-
um flugvelli sem næst bænum.
Ríkir ekki mikill áhugi hjá for-
ráðamönnum flugmálanna um að fá
nýjan flugvöll við Akureyri?
Það er áreiðanlegt, enda er þörf-
in brýn. I maímánuði J°49 komu
tveir verkfræðingar, ásam1 flugmála-
stjóra, hingað íil bæjarins íil þess
að athuga staðhætti fyrir flugvöll á
óseyrum Eyjafjarðarár. Va»' sérstak-
lega leitað að efni í uppfyllingu og
sliilag og varð niðurstaðan af þeirri
athugun sú, að sandurinn undir ós-
hólmunum (basaltsandur) væri
heppilegur í uppfyllingu. Er nú í
ráði að flugvöllurinn komi á svæð-
inu upp af Leirunum, austan þjóð-
vegarins fram Eyjafjörð. og er ein
flugbraut fyrirhuguð frá norðri iil
suðurs. Fyrst um sinn yrði brautin
1200 m. löng, en fullbyggð um 2000
m. Samkvæmt áætlun verkfræðing-
anna yrði fyrsti áfanginn sá, að
grafa framræsluskurði og hlaða
kanta, en síðan þyrfti sanddælu til
þess að dæla sandi upp i fyllinguna
og yrði sandinum dælt úr austur
hlula núverandi árhvíslar. Fullkom-
in sanddæla, með öllum útbúnaði,
hingað komin mun kosta allt að 500
þús. kr., en má að sjálfsögðu nota
síðar við aðrir framkvæmdir. Á
þessu stigi er erfitt að gera sér grein
fyrir kostnaðinum við 1200 m. flug-
braut, en hann verður aldrei innan
við 2.5 millj. kr.
Hefir verið tekin ákvörðun um
rekstur tunnuverksmiðjunnar hér í
bænum í vetur?
Um það mál hefi ég rætt ýlarlega
við formann Síldarútvegsnefndar,
sem annast stjórn tunnuverksmjðja
ríkisins. Eins hefir málinu verið
lireyft við atvinnumálaráðherra. -—
Enn hafa ekki fengizt endanleg svör
um reksturinn, en sennilega verður
hvorki farið að smíða tunnur á
Siglufirði eða hér fyrr en eftir ára-
mótin. Vonandi fæst úr þessu skorið
á næstunni, og mun bæjars jórnin fá
að fylgjast með málinu, enda hefir
bæjarstjóri margsinnis rekist í því.
Hvað um endurvarpsstöðina?
Málið er enn í athugun hjá ríkis-
stjórninni og verður vonandi unnt
að gefa upplýsingar um það nú á
næstunni, enda er hér uín mjög mik-
ið hagsmunamál Akureyrar og alls
Eyjafjarðar að ræða.
Hvernig ganga þingstörfin?
Enn er svo skammt liðið á þing,
að fátt eitt er unnt að segja. Þó er
það greinilegt, að be'.ur gengur með
öll vinnubrögð en í fyrra, og er það
að sj álfsögðu þvi að þakka, að við
völd er ríkisstjórn, sem hefir meiri
Jiluta þings að baki sér. Að öllum
líkindum verður gengið frá fjárlög-
um fyrir áramót og þá óvíst hvenær
þ:ng kemur saman eftir nýárið.
Hvernig líst þér annars á horfurn-
ar yfirleitt?
Það þarf óneitanlega kjark til
þess að vera bjartsýnn eftir ótíðina
norðan- og austanlands í sumar,
síldarleysi og s öðvun togaraflotans.
Af þessum ástæðum hefir útflutn-
ingsáætlunin raskast til muna og er
allur almenningur nú farinn að
finna íil skakkafallanna, en vonandi
rætist úr með batnandi árferði og
aukinni framleiðslu til lands og
sjávar.
Ný og vönduð föt
til sölu. Stærð nr. 52. A. v. á.
Skinnjakkar
Skinnhúfur
karlmanna og drengja
Skíðahúfur
Peysur
karlmanna, kvenna, barna
Heffublússur
Úfiföt
Uliartreflar
B R Á U N S-y e ir % I u n
Páll Sigurgeirsson.
!I^Cj^C>C>C>ÖC£QC>C£C
Hreiniætisvöriir:
Handsúpa
Raksópa
Sfangusópa
Þvotfaduff
Þvottabíémi
Blævafn
Hársprift
Raksprstt
Séíarolía
Brillianfine
VÖRUHÚSIÐ h.f.
KERRUPOKAR
fóðraðir með grœnu
BAKPOKAR
með grind.
VÖRUHÚSIÐ h.f.
GÚMMÍSVUNTUR
sérstaklegi sterkar.
VÖRUHÚSIÐ h.f.
Gúmmílím
Glerlím
Pcppírslím
Júgursmyrsl.
VÖRUHÚSSÐ h.f.
Steikarpönnur
Pönnukökupönnur
Vöfflwjárn
Kökuformar
Rjómaspr. pokar
Grænmetisraspar
Teskeiðar
Matskeiðar.
VÖRUHÚS3Ð h.f.
MYNDARAMMAR
SPEGLAR.
Vöruliúsið h.f.