Íslendingur - 01.11.1950, Side 1
ð
XXXVI. árg. Miðvikudagur 1. nóvember 1950 44. tbl.
Viðbótarbygging við Elliheimil
ið í Skjaldarvík vfgð s, I.
sunnudag
Síðastliðinn sunnudag var vígð í Skjaldarvík í
Glæsibæjarhreppi viðbótarbygging við elliheim-
ili það, sem Stefán Jónsson, klæðskerameistari á
Akureyri hefir reist þar og starfrækt um nokkurra
ára skeið.
Gjaldskrá Ratveitu
Akureyrar
Aðeins lítilvægar breytingar fyrirhugaðar til þess að'
standast straum af kostnaði við bróðnauðsynlegar við-
gerðir og aukningu ó bæjarkerfinu.
Vígsluræðu flutti séra Sigurður
Stefónsson á Möðruvöllum, sóknar-
prestur þar. Sálmar voru sungnir
bæði fyrir og á eftir ræðu prestsins,
og annaðist Jóhann Ó. Haraldsson
sönginn ásaml nokkru söngfólki frá
Akureyri.
Vígsluathöfnin fór frarn í hinum
rúmgóðu og vistlegu salarkynnum
viðbyggingarinnar, að viðstöddum
þeim dvalargestum, sem fótavist
hafa, ásamt fjölda gesta úr nærsveit-
um og frá Akureyri.
Var athöfnin í alla staði hin virðu-
legasta.
Hin nýja viðbygging er tveggja
hæða álma, sem gengur í austur frá
aðalbyggingunni og eru þar á báð-
um hæðum rúmgóð herbergi fyrir
dvalargesli, en fyrir enda álmunnar
að austan er rúmgóður mat- og sam-
komusalur á efri hæð, en herbergi
vistmanna á þeirri neðri.
Með þessari nýju byggingu verð-
ur elliheimilinu gert kleift, að taka
á móti allt að 30 vistmönnum í við-
ból við það, sem áður var, svo að
nú er þar rúm fyrir allt að 70 vist-
menn.
Nú sem stendur eru vistmenn þar
40—50 að tölu.
Það var árið 1943, sem Stefán
Jónsson hrinti í framkvæmd þeirri
eindæma stórhuga hugsjón, að reisa
á föðurleifð sinni, Skjaldarvík, elli-
heimili, algjöilega á eigin spýtur.
Það mun einkum hafa verið tvennt,
sem har til þess, að Stefán réðist í
þetla cinslaka stórvirki. Annars veg-
ar ræktarsemin við foreldra sína og
minning þeirra og hins vegar um-
hyggja fyrir hag og vellíðan gamla
fólksins, sem mótuð er af hinni
ákveðnu kristnu lífsskoðun hans.
Það kom brátt í Ijós, þegar tekið
var að starfrækja elliheimilið, að
þörfin var orðin brýn fyrir slíka
stofnun, enda sú fyrsta, sem reist
var hér á Norðurlandi. Það leið því
ekki á löngu þar til hvert rúm var
skipað, og engan veginn hægt að
sinna þeim fjölmörgu umsóknum,
■ sem bárust, þrátl fyrir að mjög
myndarlega liafi verið farið af stað
í öndverðu og mikill stórhugur hafi
einkennt hið fórnfúsa starf Stefáns.
Það varð því lijarlans mál Stef-
áns, að stofnunin mætti vaxa, svo að
hún gæti fyllilega gegnt því hlut-
verki, sem hann hafði í upphafi ætl-
að henni, en þyrfti ekki að horfa
upp á það að mörgum gamalmenn-
um yrðj að vísa frá vegna þrengsla.
Við vígsluna á sunnudaginn var
voru fjölmargir gestir vottar að því,
að hinar fögru hugsjónir Stefáns
höfðu rætzt; að enn hafði hann stig-
ið merkt spor til velfarnaðar gamla
fólkinu um ókomin ár.
Eins og öllum hlýtur að vera ljóst,
er það ekkert áhlaupaverk fyrir ein-
slaklinga, að ráðast i stórfram-
kvæmdir sem þessar nú á tímum,
þar sem bæði er erfitt að afla nauð-
synlegs efnis og erfiðlega gengur að
fá nægt starfslið.
Er það óskráð saga, live hart Stef-
án hefir orðið að leggja að sér við
framkvæmd þessarar fögru hugsjón-
ar sinnar.
Til byggingar elliheimilisins hefir
Stefán aldrei hlotið styrk frá hinu
opinbera, en hefir hins vegar aðeins
fengið 3 þúsund króna árlegan styrk
frá ríkinu til starfrækslunnar, og
geta menn farið nær um hversu langt
sá styrkur hrekkur!
Erá bæ eða sýslu hefir elliheimil-
ið aldrei hlotið neinn beinan styrk,
en því skal ekki gleymt, sem vel er
gert, að rnargir hafa rétt því hjálp-
arhönd ýmist með gjöfum eða áheit-
um, og er vel að svo sé, og vill blað-
ið vekja athygli manna á þessu og
hvetja þá til þess að minnast elli-
heimilisins.
Mun elliheimilið vissulega verða
óbrotgjarn minnisvarði um foreldra
Stefáns og hann sjálfan; um óþrjól-
andi elju hans, fórnfýsi og óeigin-
girni.
Vill blaðið því í nafni fjölmargra
ónefndra gamalmenna færa Stefáni
og elliheimilinu hans árnaðaróskir
og velfarnaðar um ókomin ár.
ATVINNULEYSIS-
KÖNNUN
VERKAMANNAFÉL.
Dagana 18. til 26. þ. m. fór fram
atvinnuleysiskönnun í Verkamanna-
félagi Akureyrarkaupstaðar. Á skrif-
stofu félagsins mættu til skráningar
141 verkamaður, auk þess afiaði
stjórn félagsins upplýsmga urn þá
verkamenn, sem ekki mæltu til
skráningar, með aðstoð trúnaðar-
manna sinna á vinnustöðum. Niður-
staða könnmiar þessarar varð sem
hér segir:
V erkam.
1 fastri atvinnu vetrarl. eru 138
1 stopuli atvinnu vetrarl. eru 61
Í meiri eða minni atvinnu
nú, en verða atvinnulaus-
ir í nóvember, eru....... 84
Atvinnulausir eru nú....... 44
Af öðrum félagsmönnum Verka
mannafélagsins eru 12 við nám í
skólum, óvinnufærir vegna aldurs
eða veikinda 34, fjarverandi eða 1
vantar upplýsingar um 24 menn.
Þá vill stjórn Verkamannafélags-
ins taka frarn, að alhnargir félags-
menn annarra stéttarfélaga, einkmn
úr Sjómannafél. Akureyrar, stunda
verkamannavinnu hér í hænum og
verður því tala þeirra atvinnulausu
eða atvinnulitlu verkamanna all-
miklu hærri en innanfélagskönnun-
in ber með sér. í því sambandi hef-
ir skrifstofa verkalýðsfélaganna gef-
ið þær upplýsingar, að 25—30 fé-
lagar Sjómannafélagsins séu nú at-
vinnulausir, en um 50 hafi ótrygga
atvinnu. Að athuguðu rnáli má því
fullyrða að tala atvinnulausra verka-
rnanna og sjómanna rnuni um mán-
aðamótin nóv.—des. verða um 150
■—180, nenra til komi óvæntar at-
vinnuframkvæmdir eða sérstakar
ráðstafanir verði gerðar til úrbóta.
Verlcamannajél. Akureyrarkaupstaðar.
I Ð J A
mótmæiir rafurmagns-
hækkuninni
Frá stjórn Iðju hefir blaðinu bor-
izt eftirfarandi:
„Fundur í Iðju félagi verksnriðju-
fólks á Akureyri haldinn laugardag-
inn 28. okt. 1950 mótmælir eindreg-
ið þeirri gífurlegu verðhækkun á
rafmagni, sem hin fyrirhugaða
breyting á gjaldskrá Rafveitu Akur-
eyrar hefir í för með sér. Skorar
funduriun í því sambandi á bæjar-
stjórn Akureyrar að koma í veg fyr-
ir slíka verðhækkun, er gjaldskrá
Rafveitu Akureyrar verður tekin til
Fyrir síðasta bæjarstjórnarfundi
lá til fyrri urnræðu hækkun á gjald-
skrá Rafveitu Akureyrar.
Raforkumálastjóri ríkisins hafði
sent tillögur um þetta efni og fylgdi
þeim ýtarleg greinargerð. Eru tillög-
ur hans margbrotnar og varðandi
breytingar á flestum liðum gjald-
skrárinnar. Eru þær miðaðar við
verð í Reykjavík, en þar var hækkun
rafmagnsverðsins talin nauðsynleg
vegna brýnnar aukningar við bæjar-
kerfið.
Rafveitustjórn bæjarins fékk þess-
ar tillögur til alhugunar og varð hún
sammála um það, að mæla ekki með
því við hæjarstjórn að samþykkja
tillögur raf orkumálastj óra, heldur
lagði hún til að sú breyting ein yrði
gerð á gjaldskránni, að lægri heim-
ilistaxtinn, fyrir svo nefnda mn-
fram notkun (12 aura gjaldið), yrði
felldur niður, þannig að nú verði
heimilistaxtinn kr. 0.20 fyrir kw.-
stund í stað kr. 0.20 og 0.12 áður.
Hér má geta þess, að eins og nú
er fá þeir, sem nota laustengda ofna
til hit-unar, rafmagnið ódýrara skv.
lægri heimilistaxtanum, heldur en
þeir, sem liafa hitun með fasttegnd-
um ofnum, en það kostar nú kr. 0.15
kw.-stund í daghitun, en það verð-
lag er miðað við kolaverð.
Tekjuaukning, sem þessi niður-
felling á lægri heimilistaxtanum
hefir í för með sér fyrir rafmagns-
veituna, ef hæjarstjórn samþykkir
hana, var áætluð af rafveitustjórn
rúmlega 400 þús. kr. á ári. Það er
ljóst, að þessi tekjuaukning mun
alls ekki hrökkva til bráðnauðsyn-
legs viðhalds og aukningar á bæjar-
kerfinu, sem nauðsynleg er til þess
að mögulegt verði að taka á móti
þeirri auknu raforku, sem fæst við
hina nýju virkjun Laxár, og það því
fremur, sem gera má ráð fyrir því,
að nokkuð muni draga úr notkun
rafmagns til hitunar með laustengd-
um ofnum. sem fengizt hefir hingað
til fyrir lægra heimilisgjaldið, en
2. umræðu i bæjarstjórn Akureyrar.
Fundurinn var fjölmennur og sam-
þykktin gerð einróma.“
áætlunin er miðuð við sörnu raf-
orkunotkun. Það má því gera ráð
fyrir að tekj uáætlunin rnuni ekki
standast alveg fyllilega.
En það er alls ekki ætlunin, að
þessi tekjuaukning eigi að standa
undir kostnaði við nývirkjunina,
lieldur aðeins nauðsynlegu við-
haldi og hýbyggingu bæjarkerfisins.
Varðandi þessa rafmagnshækkun
hefir nokkurra missagna kennt í
sumum blöðum bæjarins, og er það
af þeim sökum, að tillaga raforku-
málastjóra hefir þar verið lögð til
grundvallar, en það er fyllilega
ljóst að henni verður hafnað. Og
það verður vart annað sagt, en að
vægilega sé farið í sakirnar, þó sam-
þykkt verði tillaga rafveitustjórnar
urn breytinguna á gjaldskránni með
tilliti til þess hversu rafmagnskerfi
bæjarins er í miklum ólestri og þarf
brýnnar og gagngerðrar lagfæringar
við, ef að viðunanlegt á að verða.
HESTAR VERÐA FYRIR
BIFREIÐ
Síðastliðið mánudagskvöld skeði
það, að bifreið, sem ekið var út Lög-
mannshlíð, mætti hestahópi. Bifreið-
in ók með ljósum og munu ljósin
hafa gjörblindað hestana, svo að
þeir hlupu framan á bifreiðina, með
þeim afleiðingum, að tveir hestanna
stórslösuðust, svo að það varð að
drepa þá samstundis.
Einnig skemmist bifreiðin nokk-
uð.
NÁMSKEIÐ
BIFREIÐASTJÓRA
Námskeið er að hefjast hér í bæ
fyrir bifreiðastjóra til meiraprófs.
Þátttakendur eru nálægt 40 og eru
þeir víðs vegar að af Norður- og
Austurlandi, og er nú tiltölulega
meiri þátttaka utan af landi en héð-
an úr bænum.
Kennsla á námskeiðinu fer fram á
Hótel Norðurlandi og annast hana
þeir Snæbjörn Þorleifsson, Vil-
hjálmur Jónsson og Gísli Ólaísson.