Íslendingur - 29.11.1950, Side 3
Miðvikudagur 29. nóvember 1950
ÍSLENDINGUR
3
; j J a r ð ctr f ö r
GUÐRÚNAR INGILEIFAR HJALTALÍN
og
KRISTjÁNS GUNNARS
sem önduðust 24. og 25. þ.m. er ákveðin laugardaginn 2. des.
kl. 1 e.h. frá Akureyrarkirkju.
y Aðstandendur
Mínar innilegustu þakkir fceri ég öllum þeim,
er minntust mín d 75 ára ajmœli mínu 25. nóv. s.l.
Hallgr. Valdimarsson.
Happdrætti Háskóla Islands
Endurnýjun til 12. flokks er hafin.
Verður að vera lokið 9. desember.
Bókaverzl. Axe/s Krist/ánrsonar h f
ssssssssssssssss
ENSSC FHAKKÁEFN I
svört og dökkblá. — Verð kr. 66,40 meter
SAUMASTOFAN, Hafnarstr. 86 A. Sími 1916
Skjaldborgarbíó
\
í kvöld kl. 9:
SENDSBOÐI
HIMNARÍKIS
(Heaven only knows)
Mjög óvenjuleg og vel leikin
amerísk kvikmynd, sem fjallar
um sendiför Mikaels erkiengils
til jarðarinnar.
ASalhlutverk:
Rohert Cummings
Brian Donlevy
Marjorie Reynolds.
Böimuð yngri en 16 ára.
BÆNDU R
Væntanlegt með e. s. Selfossi.
AMERÍSK KÚAFÓÐURBLANDA
MAISMJÖL
BLANDAÐ HÆNSNAKORN
Þeir, sem hafa gert pantanir eru beðnir að taka fóðrið sem
fyrst efiir komu skipsins.
Verzl. Eyjaf’iörðyr h.f.
SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSK
MANNTAL
Vegna. manntals þess sem fram á að fara 1. des. n.k., eru
það vinsamleg tilmæli þeirra, sem vinna að majnntalinu, að allir
og þó sérstaklega húsráðendur og fjölskyldufeður, verði heima
frá kl. 1 — 4 þann dag, en á þeim tíma er ráðgert að mann-
talið fari íram,
BÆJARSTJÓRI
AÐVORUN
Rafmagnsnotendur á veitusvæði Akureyrar: Gætið þess
þegar spenna er óeðlilega, lág, að nota ekki, eða liafa í sambandi
rafmagnstæki sem geta skemmst við of lága spennu, svo sem
fsskápa, þvottavélar o. fl.
RAFVEITA AKUREYRAR
Kökndunkar
Kaffibox
Myndarammar.
Hafnarbúðin h.f.
Kakómjólk
Konfektkassar
Konfektpokar
Vœntanlegt
átsúkkulaði
í pökkum.
Hafnarbúðin h.f.
I
FRAMHALD S S A G A
Nr. 14. 1
Púðursykur
Flórsykur
Strásykur
Molasykur.
Hafnarbúðin h.f.
jlveiti
á kr. 2.75 kg.
Hrísgrjón
á kr. 4.15 kg.
Hofnarbúðin h.f.
Þvottasódi
Handsápa
Þvottasápa
Þvottaduft.
SENDUM HEIM.
Hafnarbúðin h.f.
Sími 1094.
ÁKÆRÐUR TVISVAR
Adrian lagði .blöðin frá sér og livessti augun á litla manninn.
Hann hafði haft óljósan grun um eiithvað. Nú var hann viss.
„Sjáið þér til,“ sagði hann. „Ef þér hafið komizt yfir efnið
óheiðarlega, þá segið mér það hreint út, og ég skal bjarga yður út
ur þvi.
Það kom svo á litla manninn, að Adrian hélt, að það myndi líða
yfir hann. Þegar hann áttaði sig nokkuð aftur, sagði hann þó hálf
ruglingslega og starði á Adrian:
„Jæja, ég hefi aldrei fengið það svona framan í mig fyrr. —
Eruð þér ekki með öllum mjalla, herra minn? — Hvað sögðuð
þér, átti ég að segja yður það hreint út?“
„Ég býst við, að ég geti ráðið fram úr því,“ svaraði Adrian
brosandi. „En segðu mér nú allt af létta.“
„Jæja, þá,“ svaraði litli maðurinn. „Ég veit hvernig hægt er að
komast yfir efnið, heila sendingu til landsins, og nú skal ég segja
yður hvernig."
8. kafli.
Radiumrán.
„Sjáðu nú til,“ sagði litli maðurinn. „Kunningi minn vinnur við
affermingu skipa í höfn Lundúnaborgar, og við höfum haft náið
samstarf í lengri tíma. Við höfum náð okkur í mörg bílhlöss af
alls konar dóti,. svo sem skrifstofuhúsgögnum og þess háttar, en
upp á síðkastið höfum við orðið að draga saman seglin, þar eð
þeir liafa tekið upp á því að auka eftirlitið. Þeirn þótti varan vera <
farin að hverfa ískvggilega, þú skilur.“ ;
„En nú eru þessir pakkar með radiumefninu farnir að korna af >
og til, og vinur minn, Joe, hefir stundum séð það afhent gjaldker- ‘
anum hjá skipafélaginu, sem fer með það á hafnarskrifstofuna, 1
þar sem því er komið fyrir í öryggisgeymslu, þangað til einhver
kemur frá innflytjandanum til þess að vitja þess. Hann fer alltaf
burt með það x leiguhíl.“
„Það, sem við ætlum okkur er þetta: Kunningi minn ætlar að
setja svikinn pakka í stað hins rétta. Og þú getur reitt þig á að
við höfum góða eftirlíkingu. J oe hefir séð pakkana svo oft að hon-
um getur ekki misheppnast. Við höfum haft pakkann tilbúinn mán-
uðum sainan, jafnvel vigtin er rélt. Það er blý í honum.“
Adrian gaf litla manninum, sem kvaðst heita Jack Nepson, heim-
ilisfang sitt og Jack gaf honum heimilisfang sitt í Barking Road,
og lofaði því, áður en þeir .kvöddust á Euston stöðinni, að hafa
samband við hann einhvern næsta dag.
Adrian fór þegar að grafast fyrir um radium og árangur þess
varð sá, að minnstu xnunaði, að hann óskaði þess að hann hefði
aldrei hitt litla manninn.
Það var ekki einasta, að radimn væri svo afar sjaldgæft, að það
væri allt selt löngu áður en það væri framleitt, heldur var líka vit-
að hvar hver einasta smáögn af því var niður komin. Læknastúd-
ent, sem Adrian hitti af tilviljun á veitingastað í námunda við
Radiumrannsóknarstofuna, sagði honum þó dálítið, sem gaf hon-
um örlitla von. I Ameríku væru alhnargir vísindamenn -— ríkir
eða slyrktir af ríkum mönnum — önnuxn kafnir við ýmis konar
rannsóknir, og þeir myndu gefa síðasta blóðdropa sinn til þess að
ná í nægilegt magn af radium. Þelta var þeim meinað, þar sem
sjúkrahús og vísindastofnanir væru látnar sitja fyrir þessu dýr-
mæta efni.
Þrem dögum eftir að hann hitti Jack Nepson, fékk hann svo
stutt bréf frá honum:
„Hittu mig á morgun klukkan 7 í Gullnu Hörpunni við Barking
Road.“
Það var ekki auðvelt að finna Gullnu Hörpuna. Kráin lá afsíðis
og var lítil og gamaldags. Þegar Adrian gekk inn í krána klukkan
7 var hún yfirfull af sjómönnum af hinu ólíkasta þjóðerni. Þar var
reykj arsvæla, mas og sköll.
í einu horninu lék maður á píanó og jók þannig á hinn almenna
hávaða með því að hanxra gjallandi „jass“ lög. Hávaðinn var ær-
andi og loftið nær óþolandi.
Adrian ruddi sér braut gegnum mannþröngina. Hann var í
sörnu svörtu fötunum og hann var í þegar hann hitti Nepson. Mönn-
um varð starsýnt á hann vegna hins virðulega útlits hans, sem var
óvenjulegt á þessum stað. Allt í einu sá hann hvar Nepson kom í
áttina til hans.