Íslendingur - 22.12.1950, Blaðsíða 1
XXXVI. árg.
Föstudagur 22. desember 1950
51. tbl.
L~^7^_~~\t t_-|_
Grumman-flugvél Loflleiða h.f. í íshrönglí.
Togararnir komnir úr
fyrstu söluferðinni
á þessum vetri
Tveir togarar héðan frá Akureyri
þeir Svalbakur og Jörundur eru nú
báðir komnir úr fyrstu söluferð
sinni til Englands á þessum vetri.
Svalbakur seldi afla sinn í Grims-
by fyrra miðvikudag, 2313 kit fyrir
7841 sterlingspund og kom hann
hingað í gœr. Jörundur seldi á sama
stað fyrra fimmtudag 1940 kit fyrir
5840 sterlingspund.
Kaldbakur fór á ísfiskveiðar s. 1.
miðvikudagskvöld. — Skipstjóri á
Kaldbak hefir verið ráðinn Gunnar
Auðunsson, en hann er bróðir
þeirra Sæmundar, skipstjóra á Harð-
bak, og Þorsteins, skipstjóra á Sval-
bak.
Sennilegt er að Harðbakur komi
hingað til landsins annan eða þriðja
dag í jólum.
Mistök
Þau mistök urðu í verðlauna-
myndagátu jólablaðsins, að úr
síðustu línunni féll á einum stað
a. Er athygli þeirra, sem væntan-
lega vildu spreyta sig á þrautinni
hér með vakin á þessu, og þeir
um leið beðnir velvirðingar á
þessu.
Vikublaðið íslendingur
óskar öllum lesendum sínum
gleðilegra jóla og
farsœls komandi árs!
Þökk fyrir viðskiptin
á liðnu ári.
íísvörín í bænurn áæll-
uO rúmlega 6 \ mllj. kr.
Síðastliðinn þriðjudag var fjárhagsáætlun bæjarins
til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi. Urðu engar um-
ræður um áætlunina á því stigi, en henni vísað aftur til
bæjarráðs, og ákveðið, að frestur skyldi vera til 3. janúar
á næsta ári til þess að skila til bæjarráðs breytingatil-
lögum við áætlunina. Líklegt er að fjárhagsáætlunin
komi fyrir bæjarstjórnarfund þriðjudaginn 10. janúar
og þá til endanlegrar afgreiðslu.
Niðurstöðutölur áætlunarinnar er
að þessu sinni 7.834.900.00 krónur,
eins og hún kom frá bæjarráði.
Tekjuliðir.
Eiris og endranær eru útsvörin
lang hæsti tekjuliðurinn og eru þau
nú áætluð 6.634.950.00 kr., imi það
er nokkru hærri upphæð en í fyrra
var jafnað niður. Stafar það tðal-
lega af því að launagreiðslur bæjar-
ins hækka vegna vísitöluuppbótar-
innar.
Aðrir tekjuliðir eru þessir helztir:
Dráttarvextir af of seint greidd-
um gjöldum kr. 2 þús.; fasteigna-
skattur 225 þús kr.; aðrir skattar af
fasleignum 52 þús. kr.; tekjur af
fasteignum 145 þús. kr.; endur-
greiddur fátækrastyrkur 170 þús.
kr.; þátttaka hafnarsjóðs í stjórn
bæjarins og fyrir innheimtu hafnar-
gjalda 25 þús. kr.; fyrir reiknings-
hald rafveitunnar 35 þús. kr.; sund-
kennslustyrkur frá ríkinu 15 þús. kr.;
tekjur af sundlaug og gufubaðstofu
13 þús. kr.; tekjur af grjótmulningi
200 þús. kr.; óvissar tekjur, endur-
greidd útsvör, skattar af ríkisverzl-
un, framlag úr jöfnunarsjóði 260
þús. kr.; frá vatnsveitunni vegna
bókhalds 10 þús. kr.; hluti bæjar-
sjóðs af síríðsgróðaskatti 26500.00
kr.; sætagjald kvikmyndahúsa 20
þús. kr.
Gjaldaliðirnir.
Hæsti gjaldaliðurinn er framlag
til lýðtrygginga og lýðhjálpar, kr.
910 þús. Til nýrra vega og bygg-
inga er áæilað að verja 800 þús. kr.,
og til menntamála 799 þús. kr. Til
framfærslumála 92 þús. kr.
Aðrir gjaldaliðir: Stjórn kaup-
staðarins 408 þús. kr.; löggæzla
313 þús. kr.; til götu- og sorphreins-
unar 360 þús. kr.; kostnaður við
fasteignir 311 þús. kr.; eidvarnir
150 þús. kr.; heilbrigðismál 83 þús.
kr.; vextir og afborganir af föstum
lánum 54 þús. kr.
Ýms framlög
til stofnana.
Þá eru og í fjárhagsáætluninni
tekin upp ýms gjöld vegna marghátt-
aðra framlaga bæjarins til einstakl-
inga og stofnana.
Þessi eru þau helztu:
Til Lysagarðs Akureyrar 25 þús.
kr.; til verkamannabústaða samkv.
löguni 126 þús.; til Kantötukórs Ak-
ureyrar vegna utanfarar 30 þús.; td
Vinnunriðlunarskrifstofunnar 20
þús.; til skömmtunarskrifstofunnar
20 þús.; fjórðungssjúkrahússins 250
þús.; vegna rekslurshalla Sjúkra-
húss Akureyrar 150 þús.; sundlaug-
arbyggingar 100 þús.; Byggingar-
sjóður Akureyrar, framlag, 150 þús.
til dagheimilis 20 þús.; framlag til
drátíarbrautar 150 þús.; til Laxár-
virkjunar 500 þús.; til almennings-
salérnis 100 þús. kr.
Messur um JtÁtíðurnmr í Akureyrar-
prestakalli: AÐFANGADAGSKVÖLD
Glerárþorpi kl. 5 (F.J.R.) Akureyri
kl. 6 (P.S.) JÓLADAG: Akureyri kl.
2 (F.J.R.) Lögmannshlíð kl. 2 (P.S.)
2. JÓLADAG: Kl 2 Akureyri (P.S.)
GAMLAÁRSKVÖLD: KL. 6 Akureyri
(F.J.R.) NÝÁRSDAG: Akureyri kl. 2
(P.S.) Lögmannshlíð kl. 2 (F.R.J.)
Hjúskupur: Leó Grétar Rósantssou
og Dísa Sigfúsdóttir. Gift 17. desem-
ber. (F.J.R.)
Stúdentafélagið á Akureyri heldur
»Bollufund« föstudaginn 22. þ.m. kl.
9. s.d. að Hótel K.E.A. — Stjórnin.
Akureyringar. Munið eftir fuglunum.
Sunnudagaskóli
Akureyrar
sr annan jóladag
kl. 10.30 f.h. 5—6
ára börn í kapellunni; 7—13 ára börn í
kirkjunni. Bekkjarstjórar! Mætið kl. 10
fyrir hádegi.
ÆskulýSsjélag
Akureyrarkirkju.
Jólafundir: I. deild
miffvikudag 27. des.
kl. 8.30 e.h. II. deild fimmtudag 28. des.
kl. 8.30 e. h. III. deild föstudag 29. des.
kl. 8.30 e. h.
Ýms áhöld og aiinar búnaður sjúkrahússins
kominn frá útlöndum eða er rétt ókominn.
s.l. í bæjarráði var samþykkt að
gefa bæjarstjóra umboð til þess að
taka erlent lán að upphæð allt að
2.5 millj. króna vegna byggingar
nýja Fjórðungssjúkrahússins. Jafn-
framt var honum falið að leita eftir
ábyrgð ríkissjóðs fyrir láni þessu.
Ymislegt af þeim áhöldum ,og
búnaði, sem til sjúkrahússins þarf
og keyptur er frá útlöndum, er nú
kominn til landsins eða þá væntan-
legur alveg á næstunni. En á það
leggur bygginganefnd sjúkrahússins
auðvitað hvað mesta áherzlu að fá
allt slíkt sem allra fyrst hingað.
Á fundi, sem haldinn var 7. des.
Kristján S. Sigurðsson
átti 75 ára afmæli 19. þ.m. — Þessi
þingeyski bóndasonur er flestum Ak-
ureyringum og fjölda mörgum öðr-
um að góðu kunnur.
Á þessum merku tímamótum í
ævi hans er mér það ánægja að
minnast hans nokkrum orðum og
þakka honum langt og gott samstarf
innan Góðtemplarareglunnar. Kristj-
án er félagslyndur maður og mörg-
um öðrum fremur félagshæfur, því
að hann er ekki neinn yfirborðsmað-
ur, og vill vinna hverju því malefni
gagn, sem honum finnst gott og
gagnlegt og horfir til menningar. En
þó að Kristján hafi víða komið við
sögu félagsmála hér í bæ, og unnið
þar mikið og gott siarf, svo sem á
sviði söngmála, leikstarfsemi, æsku-
lýðsmála og kirkjumála, svo að eitt-
hvað sé nefnt, hefir hann látið í
ljós, og nú síðast í samsæti, sem
Templarar héldu honum í Skjald-
borg í tilefni afmælisins, að í hópi
þeirra hafi hann ætíð unað sér bezt,
og haft mesta ánægju af að vinna
að hag Góðtemplarareglunnar.
Kris'.ján hefir verið kirkjuvörður
síðan nýja kirkjan var byggð, og
hefi ég það eftir samstarfsmönnum
hans þar, að hann hafi rækt það
starf af sérstakri alúð pg samvizku-
semi og látið sér á allan hátt annt
um hag kirkjunnar. Megum við
sóknarbörnin vera honum þakklát
fyrir það og óska þess að njóta hans
þar sem lengst. Ég veit að ég á ekki
betri ósk Kristjáni til handa, en að
hann ír.egi enn lengi starfa við góða
heilsu og vinna að þeim máhim sem
honum eru hugstæðust. Þá ósk vil
ég hér með endurtaka um leið og ég
flyt honum beztu jólaóskir mínar
og annarra Templara.
Stefán Agúst.