Íslendingur - 24.08.1955, Síða 2
2
ÍSLENDINGUR
Miðvikudagur 24. ágúst 1955
Sjötugur:
Anton Ásgrímsson
Sjötugur varð í fyrradag Anton
Ásgrímsson kaupmaður Fjólu-
götu 8 hér í bæ.
Anton er fæddur í Ólafsfirði
22. ágúst 1885, en fluttist ungl-
ingur hingað til Akureyrar ré'.t
upp úr aldamótunum síðustu.
Hér hefir hann stundað margv's-
leg störf, unnið við verzlun og
útgerð, síldarsöltun o. fl. Lengst
s'arfaði hann hjá Ásgeir heitnum
Péturssyni við verkstjórn og
skipstjórn bæði hér og á Siglu-
firði. Fyrir nokkrum árum stofn-
aði Anton verzlunina „Heklu“
við Norðurgötu og rak hana
þangað til á s. 1. ári, er hann seldi
hana öðrum.
Ekki her Anton nein ytri merki
þess, að hann hafi náð sjötugs-
aldrinum. Hann er enn hress í
anda og glettinn í viðræðum. Létt
skaplyndi hefir haldið honurn
yngri en aldurinn bendir til.
Megi það lengi endast honum og
halda honum síungum.
/•
___
Kristjdi lóh. Jónsson
100 dra
Harla fáir heilsa menn
hundrað ára tímamólum.
En Ijóst er, að Kristján lifir enn
að Lambanesi út í Fljótum.
Höldur sá með hundrað ár
á herðum - enn er furðu reifur,
gamanhýr með glaðar brár,
greindarshýr í máli hreifur.
Allt hans mikla aldarstarf
er og verður lengi metið,
og þjóðin honum þakkar arf,
þess í dag er víða getið.
Að segja þá kunnu sögu á ný,
að sinni varla nauðsyn gerist.
En öldung kveðja óskahlý
frá öldnum Stíflu-manni berist!
9. ágúst 1955.
Gunnar S. Hafdal.
SÖNGFÖR
JÓHANNS KONRÁÐS-
SONAR
Fyrir skömmu fór Jóhann Kon-
ráðsson söngvari í söngför til
Aus'urlands ásamt Áskatli Jóns-
syni söngstjóra, er annaðist und-
irleik á 6ÖngskemmtUnum Jó-
hanns. Lögðu þeir leið sína til
Neskaupstaðar, Seyðisfjarðar,
Eskifjarðar og Reyðarfjarðar.
Söng Jóhann á öllum þessum við-
komustöðum við góða aðsókn og
mikla hrifningu áheyrenda. Þóttu
ir, og sjálfir láta þeir hið bezta
yfir viðtökum fólksins.
þeir félagar alls staðar góðir gest-
Sjötugur:
Þorsteinn H. Jónsson
forseti bæjarstjórnar
Þegar Þorsteinn M. Jónsson
hóf starf sem kennari við barna-
skólann hér á Akureyri árið 1921
var hann fyrir löngu orðinn þjóð
kunnur maður.
Hann hafði haft með höndum
umfangsmikinn búrekstur í Borg
arfirði eystra, gegnt þar marg-
víslegum trúnaðarstörfum og
átt setu á Alþingi frá árinu 1916
og m. a. átt sæti í nefnd þeirri,
sem undirbjó sambandslögin
1918. Það var því að vonum, að
maður með slíka hæfileika og
reynslu, sem hann hafði þá þeg-
ar aflað sér, myndi koma til með
að setja svip sinn á þetta bæjar-
félag. Slík hefir einnig orðið
raunin á — Þorsteinn M. Jónsson
hefir verið einn mesti athafna-
og starfsmaður þessa bæjarfé-
lags.
Þorsteinn er sterkur flokksmað
ur og fylginn sér, en flokksband-
ingi er hann ekki. Slíkt kernur
ekki heim við dómgreind hans og
víðsýni. Mér hefir fundist hann
vera allra manna sanngjarnastur
í dómum sínum um þá, sem hafa
verið á öndverðum meiði við
hann í opinberum málum.
Nú er Þors'einn orðinn sjötug-
ur — vinnudagurinn er orðinn
langur og oft verið strangur. Þó
hann láti nú af sínu aðalstarfi,
stjórn Gagnfræðaskólans á Akur-
eyri, þá veit ég, að starfsdagur
Þorsteins er 'engan veginn allur,
því þó s'arfsárin séu orðin mörg,
er mikið eftir af orkunni og
gnægð hugðarmála til að vinna
að.
Ég vil þakka Þorsteini alla þá
vináttu, sem hann hefir sýnt mér
frá því að ég var Iítill drengur í
skóla hjá honum. Ennnfremur vil
ég fyrir mína hönd og flokks-
manna minna í bæjarstjórn þakka
ágætt samstarf á liðnum árum.
Eg óska honum og fjölskyldu
hans heilla og velfarnaðar á kom-
andi tímum.
Jón G. Sólnes.
Sjötugur:
Jnkob Hnrlsson
Þorsteinn var kennari við
barnaskólann 1921—1932, skóla-
stjóri við Gagnfræðaskólann hef-
ir hann verið síðan 1935, en læt-
ur nú af því staríi vegna aldurs.
Bóksölu hóf hann 1923 og rak
elna stærstu bókaverzlun hér til
ársins 1935. Hann hefir um
fjölda mörg ár rekið bókaú'gáfu
og var á timabili einn af stærstu
bókaútgefendum landsins. Hann
rak um tíma stórbú á Svalbarði
á Svalbarðsströnd. Auk alls þessa
hefir hann gegnt fjölda opinberra
'rúnaðarstarfa og unnið mikil og
margvísleg störf á stjórnmála-
sviðinu og í þágu ýmissa félaga
og menningarmála. Hann átti um
skeið sæti í stjórn Síldarverk-
smiðja ríkisins, og héraðssátta-
semjari í vinnudeilum hefir hann
verið frá 1938 og gegnir því
starfi ennþá.
í bæjarsljórn Akureyrar hefir
hann átt sæti síðan 1942 og verið
forseti bæjarstjórnarinnar s.l. 12
ár.
Þorsteinn M. Jónsson er mikill
’persónuleiki. Hann er skarpgáf-
aður, vel menntaður og afburða-
mikill starfsmaður. Hann hefir,
eins og að framan segir, verið
allt í senn, forstjóri mikils og bí-
vaxandi skóla, búið stórbúi,
stjórnað umfangsmikilli bókasölu
og bókaútgáfu, ritstjóri tímarita,
setið í stjórn stærsta atvinnu-
fyrirtækis landsins, og fyrir utan
öll þessi störf hefir hann innt af
hendi geysimikla vinnu á sviði
ýmissa félagsmála. Þessi upptaln-
ing, sem þó engan veginn er tæm-
andi, sýnir Ijóslega, að hér hefir
enginn meðalmaður verið á ferð,
og það er eftirtektarvert, að hann
rækir öll s'.örf vél — af trú-
mennsku, árvekni og skyldu-
rækni. Einhvern hefði það getað
hent, sem svo gífurlega væri
störfum hlaðinn, að vanrækja
eitthvert þeirra — og kannske
væri það mannlegt, en slíkt hend-
ir ekki Þors'ein M. Jónsson.
Hann er trúr í starfi, honum er
starfið dyggð.
Hinn 17. þ. m. átti Jakob Karls-
son> afgreiðslumaður Eimskipa-
félags íslands og fyrrum bóndi að
Lundi við Akureyri, sjötugsaf-
mæli.
Jakob er borinn og barnfæddur
Akureyringur, en foreldrar hans
voru Guðný Jóhannsdóttir og
Karl Kristjánsson verzlunarmað-
ur, bróðir Magnúsar alþingis-
manns og ráðherra. Missti hann
föður sinn, meðan hann var enn
í bernsku, og flutlust mæðginin
þá til Magnúsar föðurbróður
Jakobs. Vann Jakob að verzlunar
störfum hjá frænda sínum
bernsku- og æskuárin, en stofn-
aði sjálfur verzlun 1912. Rak
hann jafnframt henni fiskverkun
og fiskverzlun í talsvert stórum
stíl, en í lok fyrri heimsstyrj ald-
arinnar hætti hann verzluninni,
enda þá tekinn við afgreiðslu
Eimskipafélagsins, er hapn ann-
aðist fyrstu árin í umboði
Magnúsar frænda síns. Þá var
hann um skeið umboðsmaður
I Olíuverzlunar íslands h.f.
| Fyrir fullum 30 árum reisti
hann stórbýlið Lund ofan við Ak-
ureyri, og bjó þar Iengi með höfð
ingsbrag. Stóð hann í umfangs-
miklum jarðræktarframkvæmd-
um um nokkurt skeið og kom upp
vönduðum húsakosti á búgarði
sínum. Hefir Jakob ætíð verið
mikill ræktunarmaður og léð
skógræktinni gott lið. Um skeið
rak hann einnig búskap á Rang-
árvöllum, bújörð norðan við
Glerá, örskammt frá Lundi.
Jakob Karlsson sóttist ekki eft-
ir mannvirðingum og var ætíð
tregur til að gegna opinberum
störfum. En allir voru á einu máli
um, að til þeirra væri hann flest-
um betur fallinn vegna glögg-
skyggni og mannkosta. Var hann
kosinn í bæjarstjórn 1923 og sat
þar til 1929 og síðar kjörtíma-
bilið 1938—42. Þá átti hann sæti
í hafnarnefnd meira en tvo ára-
tugi, í sáttanefnd og sóknarnefnd
árum saman og í s'jórn Ræktun-
arfélags Norðurlands frá 1923.
Ráð hans þóttu jafnan holl og
viturleg, tillögur hans góðar og
vandlega byggðar. Hann mun
- GoIIIréttir -
S. 1. laugardag lauk keppninni
um Afmælisbikarinn, sem gefinn
var af Gunnari Árnasyni í tilefni
af 20 ára afmæli GA. Að lokinni
keppni hafði Golfklúbburinn boð
inni fyrir félaga og gesti. Voru
þar mættir þrír af stofnendum
klúbbsins, þeir Gunnar Schram,
Jakob Frímannsson og Óskar
Sæmundsson.
Keppnin um bikarinn var afar
tvísýn og skemmtileg, og mátti
lengi ekki á milli sjá, hver hlut-
skarpastur yrði. Jóhann Guð-
mundsson tók strax forustuna.
Fyrstu 18 holurnar lék hann í 75
höggum, en annar varð Gestur
Magnússon í 76 höggum. Eftir 36
holur var Hafliði bróðir Jóhans
kominn í 2. sæti, aðeins 1 höggi
hærri, og eftir 54 holur var Adolf
Ingimarsson orðinn annar, og
munaði þá 2 höggum. Þegar einn
liringur (9 holur) var eftir, stóðu
leikar þannig, að Adolf var orð-
inn % höggi betri en Jóhann, en
síðustu holurnar lék Jóhann mjög
vel og sigraði með tveggja högga
mun. Vann hann á 316 höggum,
en Adolf var annar (318) og Haf-
Iiði þriðji.
S.l. fimmtudag lauk keppninni
um Öldungabikarinn, sem gefinn
var af Gunnari Schram. Þetta er
fyrsta keppni um öldungabikar á
Akureyri. Keppnin er 18 holur
með fullri forgjöf. Fyrstir og jafn
ir urðu Stefán Árnason og Jón
Benedik'sson, og urðu þeir að
leika 18 holur til úrslita. Sigraði
Jón í þeirri viðureign.
í kvöld (miðvikudag) kl. 6
hefst Meistaramót Akureyrar í
golfi á golfvelli félagsins. Leikn-
ar verða 72 liolur, 18 í kvöld, 18
á laugardag, þá skipt í flokka, en
úrslit fara fram á sunnudag. Þá
leiknar 36 holur.
SÍLDVESÐIN FYRIR
30 ÁRUM
í íslendingi birtist eftirfarandi
frétt 21. ágúst 1925:
„Eftir síðustu fregnum, sem
ísl. hefir fengið, munu nú komn-
ar á land um 170 þús. tunnur
saltsíld og 18 þús. tunnur krydd-
síld, á öllum veiðistöðvunum. Er
það næstum helmingi meira en
samtímis í fyrra.“
hafa átt hugmyndina að friðun
hafnarinnar og ýmsri annarri
náttúruvernd, og hið verðmæta
fugla- og eggjasafn Náttúrugripa-
safns bæjarins er gjöf frá hon-
um. Hefir hann ætíð látið sér
annt um allt það, er til menningar
og fegrunar horfði í bænum.
Þeir eru orðnir margir, sem
notið hafa góðs af drengskap og
hjálpsemi Jakobs Karlssonar um
dagana, og mörgum þeirra kemur
hann fyrst í hug, er þeir heyra
góðs manns getið.
Jakob er kvæntur Kristínu Sig-
urðardó!tur frá Lundi í Fnjóska-
dal, mikilhæfri og mætri konu,
sem stutt hefir hann með ráðum
og dáð í umfangsmiklum búskap
og búið honum vistlegt og frið-
sælt heimili. Eiga þau hjón þrjár
uppkomnar dætur.