Íslendingur - 22.08.1956, Síða 2
2
íSLENDINGUR
Miðvikudagur 22. ágúst 1956
Þátttnka í fslnndsmótinu
bostnr peningn
Happdrætti til að grynna á skuldinni
— Það hefir ekki ánægjuna eina
í för með sér að mega taka þátt í
íslandsmóti í knattspyrnu fyrir
félög úti á landi, sagði einn af
stjórnendum knattspyrnumálanna
hér í bæ við tíðindamann blaðs-
ins í gær. — Það kostar mikla
peninga, — tugi þúsunda, og eftir
þátttöku Akureyrarliðsins í sum-
ar er meirihluti kostnaðarins í
skuld. Það er dýrt að senda um
15 manna hóp til Reykjavíkur
þrívegis á einu sumri og kosta
dvöl hans þar, þótt alveg sé geng-
ið fram hjá því vinnutapi, sem
leikmennirnir bíða við slíkar
farir.
Við ræddum þetta fram og aft-
ur og þóttumst ekki sjá mikla
möguleika á því, að knattspyrnu-
lið frá Akureyri gæti, vegna hins
gifurlega kostnaðar, sótt íslands-
mót í knattspyrnu til Reykjavík-
ur, á næsta ári, þótt liðið héldi
sæti sinu í I. deild, sem enn er þó
ekki úr skorið.
Til þess að standa að einhverju
leyti undir þeim kostnaði, er af
þátttöku Akureyringa í íslands-
mótinu leiðir, hefir verið efnt til
happdrættis, sem dregið verður í
um næstu helgi. Verður nú gerð
gangskör að því að koma óseldum
miðum í verð næstu daga, og
vænta forvígismenn knattspyrnu-
málanna hér góðra undirtekta
bæjarbúa, þegar þeim verða boðn
ir þessir óseldu miðar. Með því
að kaupa einn eða fleiri miða
sýna þeir viðleitni til að létta áð-
urnefnda skuldabyrði og þá jafn-
framt góðan hug til þeirra ungu
manna, er reyna að halda uppi
merki bæjarins á knattspyrnuvell-
inum.
Ldtnir landar vestra
BANDARÍKIN FLYTJA
ÚT SALK-BÓLUEFNI
I öndverðum júnímánuði í
sumar lézt í sjúkrahúsi vestan
hafs íslendingurinn Jón J. Vopni,
ættaður frá Ljótsstöðum í Vopna-
firði, en hann fluttist vestur árið
1887. Hann varð 92 ára. Jón J.
Vopni var kunnur athafnamaður,
er stóð fyrir lagningu járnbrauta
og byggingum fjölbýlishúsa. Var
ennfremur stofnandi prentfélags-
ins Art Press Ltd. Þá gegndi hann
margvíslegum trúnaðarstörfum
meðal landa í Winnipeg.
Kristján Gottfred Johnson lézt
í Winnipeg 12. júní 85 ára gam-
all. Hann var fæddur á Akureyri
og fluttist vestur 1889. Hann bjó
lengst af í Winnipeg og rak kjöt-
verzlun þar.
____*____
Blaðflvagn d g'dtunun'
Ægir Hjartarson hlaðasali, 6em
flestir bæjarbúar kannast við,
hefir nýlega fengið sér blaðaskáp
á hjólum, er hann getur ekið um
bæinn eftir þörfum, en aðalstöð
hans er við Kaupvangstorg (við
Kaupfélagshornið). Hefir hann
öll dagblöðin og nokkur vikublöð
til sölu í vagninum. Vagninn er
haganlega innréttaður, með skúff-
um, er draga má út, og blöðin
velkjast ekki né blotna, þótt eitt-
hvað sé að veðri. Ægir ráðgerir
að hafa síðar tóbak og vinnuvettl-
inga tiPsölu í Vagiiinum.
Karfinn frystur
Siglufirði 20. ágúst.
Togarinn Hafliði er nýkominn
til hafnar með ca. 370 tonn af
karfa. Fer farmurinn allur í fryst-
ingu. Elliði er væntanlegur úr
klössun í Reykjavík einhvern
næstu daga. Nokkur skip stunda
ennþá ufsaveiðar, og fékk Sigurð
ur dágóðan afla um helgina, 900
mál, sem hann lagði hér upp.
Washington. — Weeks, verzlun-
armálaráðherra Bandaríkjanna,
hefur tilkynnt, að Bandaríkin
muni miðla öðrum þjóðum, sem
lömunarveikin hefur leikið harð-
ast„ af birgðum landsins af Salk-
bóluefni.
Weeks sagði, að veitt mundi
verða leyfi til þess að flytja úr
landi eina milljón kúbiksenti-
metra af bóluefninu næstu mán-
uði.
Þetta magn nægir til þess að
bólusetja 500,000 manns tvisvar
sinnum. í Bandaríkjunum hafa
rannsóknir leitt í ljós, að 6,3 af
100,000 börnum, sem bólusett
hafa verið einu sinni, veikjast af
lömunarveiki, en 29,2 af 100,000
börnum, sem ekki hafa verið
jólusett.
Stundaskrá sundnámskeiðs barna-
skólanna alla virka daga vikunnar. Kl.
8,30—9: 5. bekkur 14. stoíu, 5. bekkur
2. stofu (drengir) og 6. bekkur. — Kl.
9,05—9,35: 5. bekkur 13. stofu, 5.
bekkur 2. stofu (stúlkur) og Glerár-
þorp. — Kl. 9,40—10,10: 5. bekkur 16.
stofu og 4. bekkur 6. stofu. — Kl. 10,15
—10,45: 5. bekkur 3. stofu. 4. bekkur
11. stoíu. — Kl. 10,50—11,20 : 4. bekk-
ur 7. stofu og 4. bekkur 1. stofu. —
Kl. 11,25—11,55: 4. bekkur 8. stofu og
4. bekkur 18. .stofu. — Síðdegis: Kl.
1—1,30: 5. bekkur 14. stofu, 5. bekkur
2. stofu (drengir) og 6. bekkur. —
Kl. 1,35—2,15: 5. bekkur 13. stofu, 5.
bekkur 2. stofu (stúlkur) og Glerár-
þörp. — Kl. 2,30—3,10: 5. bekkur 16.
stofu, 4. bekkur 6. stofu. — Kl. 3,15—
3,45: 5. bekkur 3. stoíu, 4. bekkur 11.
stofu. — Kl. 3,50—4,20: 4. bekkur 7.
stofu, 4. bekkur 1. stofu. — Kl. 4,25—
4,55: 4. bekkur 8. stofu, 4. bekkur 18.
stofu. — Ekkert sundnámskeið síðdeg-
is á laugardögum.
Gjalddagi blaðsins var
15. júní.
r
kvenna d Akureyri d
lörum til Fœreyjo
Einhvern næstu daga fer hand-
knattleiksflokkur kvenna héðan af
Akureyri áleiðis til Færeyja til
keppni þar. Fer flokkurinn frá
Reykjavik með m.s. Heklu á laug-
ardaginn. Er hann í boði íbrótta-
samtakanna í Færeyjum, og mun
dvelja þar, unz Hekla fer þar um
í heimleið. Ráðgert er, að kapp-
leikir fari fram annan hvern dag,
meðan staðið er við í eyjunum.
Fararstjóri og þjálfari liðsins
verður Tryggvi Þorsteinsson
íþróttakennari, og fer hópurinn á
vegum Iþróttabandalags Akureyr
ar.
Maðurinn minn,
Ögmundur Ólafsson,
Helga-magrastræti 48, Akureyri, andaðist að heimili sínu
20. þ. m.
Oddný Sigurgeirsdóttir.
4-1 hcrberðjo íbúð
óskast nú þegar eða sem fyrst.
Upplýsingar í sima 1592.
Bsndodogur d Loogum
Búnaðarsamband Suður-Þing-
eyjarsýslu hefir nú um skeið hald
ið árlega svonefndan Bændadag á
sumrin einhversstaðar á félags-
svæðinu, og s. 1. sunnudag var
hann haldinn að Laugum. Stjórn-
aði Tryggvi Sigtryggsson á Lauga
bóli samkomunni. Aðalræðu dags
ins flutti Jón Sigurðsson hóndi í
Yzta-Felli, en almennum söng
stjórnaði Sigfús Hallgrímsson í
Vogum. Þá var sýnd kvikmynd.
Loks var háð keppni í starfsíþrótt
um karla: dráttarvélaakstri og
búfjárdómum, og var dæmt um
nautgripi, hross og sauðfé. Stefán
Kristjánsson úr Fnjóskadal sigr-
aði í dráttarvélaakstri, en Jón
Geir Lúthersson, einnig úr
Fnjóskadal, vann allar greinir
búfjárdómanna. Um keppnina sáu
Skafli Benediktsson ráðunautur
og Stefán Ól. Jónsson kennari.
Á eftir var dansað.
Veður var bjart og þurrt, með-
an á hátið þessari stóð, og sótti
hana margt manna úr héraðinu
og víðar að.
Hinir margeftirspurðu j'
DÖMUJAKKAR
komnir aftur.
Bláir, rauðir og grænir
Verzl. DRÍFA
Sími 1521.
r-
ld*;ila
á allskonar vörum
hefst fimmtudaginn 23. þ.m.
í gömlu búðinni.
Urval af nýjum
vörum í nýju búðinni.
Anna & Freyja
Köld tíð -
Dauíir þurrkar
Það sem af er ágústmánuði
hefir tíðarfarið verið óvenju kalt,
einkum norðanlands og austan,
og engir teljandi þurrkar verið
um norðurhluta landsins. Hafa
hey þar hrakizt nokkuð sumstað-
ar, og heyskapur tafizt vegna
stirfinnar veðráttu. Um miklar
úrkomur hefir þó ekki verið að
ræða. Norð-austanátt hefir lengi
verið ríkjandi hér nyrðra og ekk-1
ert lát á henni enn. Berjaspretta I
virðist ætla að verða í lakara lagi,
en karlöfluspretta.. gæti orðið
sæmileg, a. m.: k. í innsveitum, efj
næturfrost stöðva ekki vöxtinn of
snemma.
Sunnanlands hefir verið önd-
vegistíð undanfarnar vikur, og er
þar vel látið yfir garðávaxta- og
berjasprettu.
Dánardœgur. I fyrradag lézt að heimili
sínu, Ilelgamagrastræti 48 hér í hæ
Ögmundur Ólafsson, trésmiður, gjg.
tugur að aldri. /
FJÓRTÁNDA ÁRSÞING
SAMBANDS ÍSLENZKRA
RAFVEITNA
var haldið á Akureyri dagana
14. til 17. ágúst.
Sóttu það rafveitustjórar 21
rafveitu á landinu og gestir þeirra,
alls um 60 manns.
Rædd voru rafmagnseftirlits-
mál, fræðslumál rafveitustarfs-
manna, alþjóðasamstarf og fleiri
hagsmunamál rafveitna.
Mjög fróðleg erindi voru flutt
á þinginu um rafveitumál og nú-
tíma rafmagnstækni.
Sýning á rafmagnsmælitækj um
o. fl. var haldin í Gagnfræðaskóla
Akureyrar meðan á þinginu stóð.
(Fréttatilkynning frá stj'örn
Sambands ísl. Rafveitria).
Dr. Þórður MrDarson
Framhald af 1. siðv
grennið, og kynntist fnr
frændliði sínu í báðar >
>n þá
rhóðtirætt ;hennat.aer;::'j
,.. , ... . . einmg ey-
firzk. Lata þau v • ...; ■■.•(■, ..
> . , . , A]og vel vfir
komunm hinga' , „ ; .
*. . ° J og fegurð her-
aðsins.
Ajía Lundargötu 12. Ópinberar
ikomur verða fimmtudag, föstudag,
.augardag og sunnudag kl. 8.30 e. h.
alja dagana. Guðmundur Markússon
tafar á þessum samkomum. — Verið
hjartanlega velkomin.
NÝKOMIÐ
Nylonsokkar,
sainnlausir.
Nylonsokkar,
með saml. saum.
Nylonsokkar,
með svörtum saum.
Nylonsokkar,
með svörtum saum og
hæl.
VerzL Drífa
Sími 1521.
Tír*$tone
Bremsuborðar,
flestar stærðir.
Viftureimar,
margar stærðir.
Lok á vatnskassa
Lok á benzíngeyma
Rofgeymar,
6 og 12 volta.
Ljósaörygggi
allskonar.
Ljósasamlokur
Ljósaperur
Þokuljós
AfturM ,
jOS
^ ousköfur
Þvottakústar
Kveikjuhlutir,
margskonar.
Vindlakveikjarar'
Feitisprautur .
Þéttikantur
Handverkfæri
o. m. m. fl.
Sendum gegn póstkröfu.
Bílasalan h.í.
Geislagötu 5.
Sími 1649.