Íslendingur - 22.08.1956, Qupperneq 4
4
íSLENDINGÚR
Miðvikudagur 22. ágúst 1956
Kemur út
hveru miðvikudag.
Útgefandi: Útgáfufélag islendings.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
JAKOB Ó. PÉTURSSON,
Fjólugötu 1. Sími 1375.
Skrifstofa og afgreið.-la í Cránufélagsgötu 4. Sími 1354.
Skrifaiofutími:
Kl. !0—12, 1—3 og 4—6. á laugardögum aðeins 10—12.
Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f.
Seglum ekið eftir vindi
Málgögn ríkisstjórnarinnar ræða að undanförnu um það, að
„stjórn Sjálfstæðisflokksins“ hafi ekki skilað nýju ríkisstjórninni
góðum arfi. Jafnvel Tíminn ber sig mjög upp undan því, að mikil
dýrtíð sé í landinu, sem geti gert stjórninni erfitt fyrir um að rétta
við efnahagslífið, sem hún telur eitt af aðal-hlutverkum sínum.
Þegar rætt var um nýju álögurnar í vetur sem leið, var haft eftir
fjármálaráðherra Framsóknarflokksins í „stjórn Sj álfstæðismanna“,
Eysteini Jónssyni, að með þeim álögum hefði stjórnin farið „hina
einu færu leið“ og að þörfin fyrir álögurnar væri bein afleiðing af
verkföllunum árið á undan. Hann hafði og áður haldið því fram, að
áður en stofnað var til hinna löngu verkfalla, hefði náðst nokkurn
veginn jafnvægi í efnahagslífinu, en því jafnvægi hefði verið raskað
með óbilgjörnum kaupkröfum og verkföllum.
Það er ekki fyrr en Hermann Jónasson getur ekki lengur horft upp
á það, að annar maður en hann sjálfur sitji í stóli forsætisráðherra,
að Eysteinn tekur skyndilega að endurskoða þetta álit sitt með þeim
afleiðingum, að hann og meðráðherrar hans úr Framsókn segja upp
stjórnarsamvinnunni, án þess að hafa tiltækar nokkrar ástæður aðr-
ar en þær, að „ekki sé hægt að leysa efnahagsmálin í samvinnu við
Sjálfstæðismenn“(!). Og rökstuðningurinn var eitthvað á þá leið, að
þar þyrfti að gera svo róttækar breytingar, að ekkert þýddi að ympra
á tillögum í þá átt við samráðherrana!
Þegar hér var komið, reyndu ráðherrar Sjálfstæðisflokksins að fá
Framsóknarráðherrana til að fallast á aðgerðir til að halda dýrtíð-
inni í skefjum út þetta ár til þess að ráðstafanir þær, sem gerðar
voru til bjargar útflutningsframleiðslunni rynnu ekki þegar út í sand-
inn. Þessu höfnuðu Framsóknarráðherrarnir, og afleiðingarnar eru
nú sem óðast að koma í ljós. Framfærsluvísitalan hækkar með
hverjum mánuði, og um næstu mánaðamót hækkar kaupgjaldsvísi-
talan um hvorki meira né minna en 6 stig. Hvort slík þróun er hentug
til lækningar á „sjúku efnahagslífi“ verður svo nýja stjórnin að
gera upp við sjálfa sig.
Hver er „arfurinn"?
Þótt Tíminn ræði nú um slæman arf frá „stjórn Sj álfstæðisflokks-
ins“, þá var þessi „arfur“ ekki sérlega slæmur í lýsingu Framsóknar-
þingsins síðasta. Þá þóttust líka Framsóknarmenn hafa einhverju
ráðið um stjórnarathafnir undanfarin ár, meira að segja ráðið
stefnunni og orðið að toga og draga Sjálfstæðismenn með sér! Og í
stjórnmálayfirlýsingu 11. flokksþings Framsóknar er hinum „slæma
arfi" m.a. lýst svo, að innflutningur stórvirkra ræktunarvéla, búvéla
og verkfæra hafi verið í stórum stíl, jarðræktarlögin stórlega endur-
bætt, byggð áburðarverksmiðja, keyptir 10 nýtízku togarar og dreift
milli landshluta, fjármagn Fiskveiðasjóðs stórum aukið, fjöldi vél-
báta til fiskveiða ýmist fluttir inn eða smíðaðir innanlands, bygg-
ingar og endurbætur fiskiðjuvera studdar með ríkisábyrgðum og
lánum, unnið að jafnvægi við sjávarsíðuna með úthlutun atvinnu-
aukningarlána til þeirra landshluta, sem verst eru settir, stofnuð
Lánadeild smáíbúða og síðar almennt veðlánakerfi vegna kauptúna
og kaupstaða, komið upp stórvirkj unum við Sog og Laxá og nú síð-
ustu árin unnið að rafvæðingu dreifbýlisins samkvæmt 10 ára áætl-
un. Ennfremur rekinn greiðsluhallalaus ríkisbúskapur, sum árin með
verulegum greiðsluafgangi, er varið var til lánasjóða Búnaðarbank-
ans, Fiskveiðasjóðs, til íbúðalána í kaupstöðum, til hafnargerða,
skólabygginga, endurbygginga stórbrúa, sparifjáruppbóta, atvinnu-
leysistrygginga og til stofnunar sérstaks framkvæmdasjóðs til þess
að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Jafnframt hafi ríkisskuldir
verið lækkaðar og skattar og tollar á almenningi.
Þannig lýsir 11. flokksþing Framsóknarflokksins hinum „slæma
arfi“, er „stjórn Sjálfstæðismanna“ skilar eftir h. u. b. 15 ára völd.
Munu margir telja, að stundum hafi ríkisstjórn hér á landi tekið við
lakari arfi. Sézt ljóst af þessum málflutningi stjórnarblaðanna og þó
sérstaklega Tímans, að seglum er ætíð ekið þar eftir vindi. Stundum
segir þar, að Framsóknarmenn hafi átt frumkvæðið að öllum fram-
íörum í landinu síðustu 10—15 árin, en þess á milli er allt, sem gert
Kajna Icjörbúðir undir nafni? — ■
Kommúnisk barnafrœðsla. — /
leit að afgreiðslum þjónustufyrir
tœkisins. — Vítaverð vanhirða.
Ilúsmóðir skrifar:
„MIKIÐ HEFIR verið rætt og ritað
um kosti sjálfsafgreiðslubúða, sem nú
er íanð að nefna kjörbúðir. Hefir því
verið haldið mjög á lofti, að þar ættu
menn svo mikið valfrelsi eða kjörfrelsi,
að þeir gætu sjálfir valið sér þá vöru-
tegund, er þeir vildu, gripið hana í inn-
kaupatöskuna og greitt við útgöngu.
Ég hefi ekki orðið vör við þetta val-
frelsi. Eitt sinn ætlaði ég að kaupa
mér kaffi og gekk inn í þá einu „kjör-
öúð“, sem þá var til hér í bænum. En
par var aðeins til ein kaffitegund,
draga-kaffi. Þar átti ég enga völ, þútt
mér líkaÖi önnur kaffitegund betur.
Mér fannst því kjörfrelsið þarna svip-
að og í Rússlandi, þar sem menn geta
mætt á kjörstað til að kjósa eina flokk-
inn, sem fær að hafa mann í kjöri.“
ÉG VAR NÝLEGA að lesa bók,
sem er nokkuð sérstæð í íslenzkum
bókmenntum, enda skrifuð af þekktum
rithöfundi, sem sjálfur hefir „afklæðzt
persónuleikanum“ og gerzt miðill
kommúnismans á íslandi. Bókin á að
teljast skáldverk, en mun skrifúð í
anda kennslubóka, sem notaðar eru i
barnaskólum í Sovét. Bókin nefnist
Sálmurinn um blómið, II. bindi, en
efni bókarinnar er það, að gamall mað-
ur er að fræða 8 ára telpu um þjóðfé-
lagsmál, trúmál og siðfræði. Leyfi ég
mér að taka hér upp sýnishorn úr bók-
inni, þ.e. hafa hér stuttan kafla, er
kalla mætti bókmenntakynningu, sem
nú er mjög í tízku. Það er landafræði-
tími hjá gamla manninum:
„OG JÖRÐIN SNÝST og snýst.
Þarna er Ameríka og nú er að verða
bjart í henni, og þeir eru farnir að
telja peningana, sem þeir græddu í
gær á að drepa og sprengja fólk í
Kóreyju. Og jörðin snýst og snýst og
snýst. Sjáðu! Nú er að verða bjart í
Kóreyju. Þeir búnir að lesa morgun-
bænirnar sínar og biðja hann Jesús að
hjálpa sér til að drepa og sprengja
mikið af fólki í dag. Og jörðin snýst
og snýst. Nú er að verða bjart í Indó-
Kína, liérna! Frakkar byrjaðir að
drepa fólkið þar, af því að það vill
sjálít eiga landið sitt. Og jörðin snýst.
Og nú er sólin komin upp á Malakka-
skaga, og Engl^ndingarnir, sem þar
eiga heima, eru komnir í kirkju, og
þar eru haldnar ræður og sungnir sálm-
ar um hann Gvuð og hann Jesús, og
svo hlaupa Englendingarnir út til að
drepa fólkið, af því að það viO sjálft
eiga landið sitt. Og jörðin snýst og
snýst og snýst. Nú er að verða bjart í
landinu hans Jesús. Það er hérna! Og
þar segir fólkið, þegar það er komið á
fætur: „Hann Jesús var platari." Og
þarna sérðu Egiftaland, þar sem pýra-
mítarnir eru. Þar lifa nú voðalegir
ormar innan í fátæka fólkinu, svo að
það er alltaf skelfing afllaust og lasið.
En það má ekki lækna það. Riku
mennirnir vilja það ekki. Þeir halda,
að fátæka fólkið verði þá svo fjörugt,
að það bara komi hlaupandi og taki
peningana þeirra. Og jörðin snýst, og
nú er að verða bjart í Moskva. Hún er
hérna! Stalin kominn á fætur til að
gera nýja fimm ára áætlun. Og nú er
orðið hjart í Kaupmannahöfn og líf-
vörður kóngsins ennþá að stappa og
snúa sér í hring. Og nú er líka orðið
bjart í Afríku, þar sem nergarnir búa,
sjáðu. Og Englendingarnir, sem þar
eru, búnir að lesa Faðirvorið sitt og
komnir út til að skjóta og hengja aum-
ingja nergana, af því að þeir vilja
sjálfir eiga landið sitt ....“
EINHVERN VEGINN, sennilega af
slysni, hefir barnafræðaranum láðzt að
sjá sólina koma upp í Eystrasaltslönd-
unum hjá fólkinu, 6em EKKI(?) „vill
sjálft eiga landið sitt“, eða kannske
kemur sólin alls ekki upp, þar sem er
„myrkur um miðjan dag“. En hvað
sem því líður, þessi lexía hlýtur að
gefa nokkra hugmynd um barnafræðsl-
una í því Sovét-íslandi, sem kommún-
istar og „bandingjar" þeirra eru nú
sem óðast að leggja grundvöllinn að.
X X skrifar:
„ÉG ÞURFTI NÝLEGA að kaupa
mér* ljábrýni og fór af gömlum vana í
Járn og Gler kaupfélagsins okkar. Þar
var mér sagt, að þau fengjust nú í
kornvöruhúsinu. Ég spurði, hvort það
væri ekki á hak við verzlunarhúsið eins
og í gamla daga. Nei, það er niðri í
Skipagötu. Ég þangað, gekk þar fram
og aftur, las á skilti og varð einkis vís-
ari, unz kunnugur maður benti mér á
geysimikið bárujárnshús. Ég var lengi
að finna hinar réttu dyr. Gæti það ver-
ið Kaupfélaginu okkar ofviða að setja
upp skilti við dyr kornvörugeymslunn-
ar, þó ekki væri nema úr pappa, til að
flýta fyrir mönnum, sem þangað þurfa
að fara? Ég held, að flestar aðrar
verzlanir mundu hafa gert það fyrir
löngu.
Ég minnist þess líka, hve mér hefir
orðið mikil leit úr áburðarafgreiðslu
KEA á vorin. Hún er nefnilega sjaldan
tvö ár í sama stað, ýmist við Skipa-
götu, niðri á Oddeyrartanga eða úti á
Gleráreyrum. Aldrei hef ég séð leið-
beiningarskilti þar að lútandi eða aug-
lýsingar um flutning. Ef Kaupfélagið
vill sýna í verki þá fyrirmyndar „þjón-
ustu“, sem formælendur þess eru alltaf
að hrósa því fyrir, ætti það að setja
upp leiðbeiningarskilti við vöruaf-
greiðslur sínar, m. a. við áburðaraf-
greiðsluna, þótt enga sölusamkeppni
sé þar að óttast.“
NÝLEGA SAGÐI einn borgari mér
þá sögu, að hann hefði bá fyrir
skömmu komið að, þar' sem verið var
að rífa gamla sjúkrahúsið okkar, sem
áformað er að breyta í fjallahótel.
Kom hann þar að, sem talsvert bóka-
safn lá á tvístringi út um jörðina, á-
samt ýniiss konar gömlum og þá senni-
lega ónýtum tækjum. Voru bækurnar
bæði á íslenzku og erlendum málum,
sennilega lækna- og vísindabækur, en
eigi aS síður bœkur. M.a. gretp hanu
þar upp skrifaða bók, er reyndist vi-ra
einskonar dagbók sjúkrahússins frá
síðustu árum 19. aldar og fyrstu árum
20. aldar. Voru þar skráðlr innlagð r
sjúklingar, staða þeirra í lífinu. sjiiit-
dómseinkenni, dvalartími og dvaiar-
kostnaður. Virtist bókasafn þetta hafa
legið þarna fyrir veðri og vindum
nokkur dægur.
Hér er um mjög vítaverða vanhirðu
að ræða, hver sem þar ber sök á.
Gamlar bækur eru munir, sem ekki er
ætíð unnt að endurnýja, og verða því
oft ekki metnar til verðs. Ég tala nú
ekki um skrifuð heimildarrit eins og
dagbækur sjúkrahúsa. Hvert áíall það
hefir orðið íslenzkri mannfræði, ætt-
fræði og sagnfræði, er t.d. kirkjubæk-
ur hafa brunnið eða glatazt á annan
hátt, skilja flestir meðalgreindir menn.
Og ef sjúkrahúsin sjálf hirða ekki um
að varðveita gamlar dagbækur sínar í
eigin bókasafni ber að afhenda þær
opinberum bókasöfnum eins og Lands-
bókasafninu eða Amtsbókasafninu. Ef
þessi gamla sjúkradagbók, er að fram-
an hefir verið greint frá, er ekki fokin
út í veður og vind eða hefir verið hirt
af einliverjum, sem slík rit kann að
meta, ættu hlutaðeigendur þegar í stað
að bjarga því, sem eftir kann að vera
af henni og öðrum gömlum bókum þar
í dyngjunni.
hefir verið, verk „stjórnar Sjálfstæðismanna“. Þannig rekur eitt sig
á annars horn hjá blöðunum, og er ekki við öðru að búast eins og
allt er í pottinn búið.
Vísnabálkur
Þá kemur hér framhald af
vísnasyrpu, er Bragi frá Hoftún-
um hefir sent oss:
Kölski beit sig bölvandi,
brast út eitursviti:
„Hvert f heita Helvíti
hér var feitur biti.“
Höf. ókunnur.
Urðin gárótt er til sanns
eg við tárast hana.
Eg bið að árar andskotans,
eldi að nárum morðingjans.
Höjundur Stefán Tómasson lceknir og
bóndi að Egilsá, blindfullur á tófu-
greni.
í fornu letri finnst það skráð —
færist þetta svo í lag. —
Vil ég því segja — ef vel er gáð
að veturinn komi á laugardag.
Höf. ókunnur. (Gömul rímvísa.)
Mostrarskeggja eg minnast hlýt
— mig þótt beygi elli —
hvert 6Ínn er ég augum lít
upp að Helgafelli.
(Höf. sennil. Jón G. Sig., Hofg.)
Eitthvað má að öllu finna
— aum er veröldin —,
sitt er að hverjum sona minna,
sagði kerlingin.
(Gamall húsgangur.)
Þá ég lá við gljáar gjá,
gráa sá ég hjá mér á.
Snjáinn frá sér flá með tá
fá og smá í stráin ná.
ÞoiSteinn Jakobsson.
Tvær næstu vísur hefir Bragi
frá Hoftúnum botnað, en höfund-
ar fyrri hlutans eru ónefndir: