Íslendingur - 22.08.1956, Page 6
ÍSLENDINGUR
Miðvikudagur 22. ágúst 1956
íþróttir
lÁKiatispyriian í á^úst
Hafnfirðingar komust ■
fyrstu deild.
í annari deild íslenzkra knatt-
spyrnuliða er landinu skipt í tvö
keppnisvæði: Suðurland og Norð
urland-Austfirðir-Vestíirðir. A
Suðurlandsvæðinu kepptu í sum-
ar 4 lið, og unnu Hafnfirðingar
alla leikina. Á hinu svæðinu gáfu
ísfirðingar sig einir fram til
keppni og þurftu því aðeins að
leika einn leik, þ. e. við sigurveg-
ara Suðurlands. Leikur Hafnfirð-
inga og ísfirðinga fór svo fram í
Reykjavík í vikunni sem leið, og
voru bæði liðin hörð í horn að
taka. Lauk fyrri hálfleik svo, að
ekkert mark var gert. í síðari
hálfleik skoraði Albert Guðmunds
son úr liði Hafnfirðinga 2 mörk,
og lauk leiknum með sigri Hafn-
firðinga 2 : 0. Voru Hafnfirðing-
ar þar með komnir upp í I. deild
og keppa í henni á næsta sumri.
Fyrir einu ári síðan var Hafn-
firðinga ekki getið, þegar um
knattspyrnu var rætt eða ritað.
En þá gerðist hinn þekkti knatt-
spyrnumaður, Albert Guðmunds-
son, þjálfari hafnfirzkra knatt-
spyrnumanna og hefir á einu ári
unnið upp svo sterkt lið þar, að
undrun vekur. Að vísu lék hann
sjálfur með í keppninni og skor-
aði bæði mörkin í úrslitaleiknum,
en þrátt fyrir það vekur koma
Hafnfirðinga í I. deild undrun og
athygli. Lið ísfirðinga telja knatt
spyrnufróðir menn einnig öflugra
en við hefði mátt búast.
Akureyringar íöpuðu
fyrir K. R.f
S. 1. föstudag léku Akureyring-
ar í I. deild við íslandsmeistar-
ana, KR. Vann KR þann leik með
3 : 0. Hafa Akureyringar þá tap-
að fyrir 4 félögum, en unnið 1
(Víking). Leikarnir fóru þannig:
Fram 2 ÍBA 0, Valur 1 ÍBA 0,
ÍBA 3 Víkingur 1, Akranes 6 ÍBA
0, KR 3 ÍBA 0.
En unnu bæjakeppnina.
Þessi niðurstaða er allt annað
en góð, og telja margir, að Akur-
eyrarliðið sé nú lakara en í fyrra,
og nokkur áhrif mun það e. t. v.
hafa haft, að í suma leikina vant-
aði beztu leikmennina vegna
meiðsla þeirra.
En eftir úrslitin 6 íslandsmótinu
kom það mörgum óvænt, er Akureyr-
ingar unnu bæjakcppni við Reykjavík
s. I. sunnudag á leikvellinum í
Rcykjavik með 5 mörkum gegn 0.
Höfðu þeir fyrr í sumar unnið sams-
konar keppni á hcimavclli með 4:1.
Munu flestir hafa verið vondaufir
um, að þeir ynnu aftur, þcgar þeir
léku á hcimavclli Reykvíkinga, hvað
þó með svo miklum markamun. Og
til þessa lciks vantaði tvo helztu leik
menn þcirra, Tryggva Gcorgsson og
Hauk Jakobsson.
Knattspyrnudómarar sunnan-
blaðanna telja Akureyrarliðið
hafa sýnt óvenju góðan leik í bæj-
arkeppninni og haft áberandi yfir
hönd í leiknum. Fjögur markanna
skoraði Ragnar Sigtryggsson, en
Jakob Jakobsson hið fimmta. í
þessum tveim Ieikjum bæja-
keppninnar hafa þá Akureyringar
gert samanlagt 9 mörk gegn 1.
Hækkaði Evrópumetið.
Evrópumethafinn í kúluvarpi,
Jirí Skobla frá Tékkó-Slóvakíu,
bætti nýlega Evrópumet sitt úr
17,54 í 17,57 metra á íþróttamóti
í Berlín.
Landi hans, hlaupagammurinn
Emil Zatopek, hefir nýlega verið
skorinn upp við kviðsliti, og
heppnaðist aðgerðin vel. Enn er
þó óvíst, hver áhrif það hefir á
þátttöku hans í Olympíuleikunum
í Melbourne.
Filip vann skókmótið.
Á alþjóðlegu skákmóti, sem
nýlega var haldið í Prag, sigraði
tékkneski stórmeistarinn Filip
neð 13 vinningum. Næstir urðu
Ragosín (Sovét-Rússland) með
12y2, Flohr (Sovét-Rússland) og
Pachman (Tékki) með 12 vinn-
inga hvor og Svíinn Stáhlberg
með 1U/2 vinning.
Hefi opnað
Klæðskeravinnustofu undir nafninu
JÓN M. JÓNSSON H. F.
Eins og áður býð ég upp á fjölbreyttasta fataúrval í bæn-
um og alltaf kemur eitthvað í hverri viku.
Látið okkur annast um föt á yður og við munum gera
okkar bezta til að þér verðið ánægður.
JÓN M. JÓNSSON H. F.
klæðskeri.
Sími 1599.
Uér og þar
Fr&iuii. al á siðu
anna“ eins og sama biaö orðar
pao. 'lu pess ao leita sannteiKans
exu sKipaoxr ó menn eitir tnnein-
íngu stjornarlioKKanna, einn eitir
tnneiningu Aipy 0 usambanusms
og einn eltir tmienungu bettar-
samnanas bænua. tlmsvegar lær
su stettin, er Iraimeiöir ynr y(J%
at utíiutningsvorum þjooarmnar
engan tuutrua í neinUinni né
heiuur hin ort vaxanUi stett iðn-
aöarmanna. Ug pvi luröulegri er
þessi kaKraöstoxun, pegar paö er
a ahra vitoröi, ao iuesta vanUa-
máliö í svonelndum etnatiagsmal-
um er að geta haidu5 utjliUrungs-
JramleiðsLunm gangandi. .
Hver sfjórnar nú?
1' rainsoKnariorustan leggur
ríka áherziu á þaó í sambandi við
myndun hinnar nýju ríkisstjórn-
ar, að undanfarin áratug hafi
„stjórn Sjálistæðismanna" setið
aó vöidum. Hafi hún skilið eftir
sig „strandgóss“, og það sé nú
Ijóti arfurinn! Samkvæmt þessari
kenningu hefir Framsókn og Al-
þýðuflokkurinn ekki komið nærri
rikisstjórn á undanförnum árum,
hvað þá ráðið nokkru um hinar
stórstígu iramfarir, sem Fram-
sókn hefir verið að þakka sér,
þegar barlómurinn og eymdar-
væiið hefir runnið af henni um
stundarsakir. Samkvæmt kenn-
ingu vinstri blaðanna var stjórn
Stefáns Jóhanns „stjórn Sjálf-
stæðismanna“, þótt þeir ættu að-
eins 2 menn af 6 í stjórninni. Enn
fremur stjórn Steingríms Stein-
þórssonar, þar sem Framsókn og
Sjálfstæðismenn áttu sína 3 ráð-
herranna hvor undir forsæti
Steingríms. Og hafi Framsókn
engan hlut átt að fráfarandi rík-
isstjórn með 3 ráðherra af sex,
hver er þá hlutur hennar í hinni
nýmynduðu stjórn, þar sem hún
hefir aðeins 2 ráðherra?
Dugnaður
við innhcimlu
Flestir munu hafa orðið þess
varir, að því meiri álögur, sem
lagðar eru á almenning, þvi meiri
hörku er beitt við innheimtu. Við
innheimtu eins af hinum nýrri
tegundum skatta (svonefnds sölu-
skatts) er fyrirtækjum, sem ekki
geta greitt hann fyrir tilskilinn
tíma, lokað. Ekki verður séð, að
slíkt auðveldí fyrirtækinu
greiðslu sJcattsins. í Lögbirtinga-
blaðinu 16. þ. m. eru 64 húseignir
auglýstar til uppboðs samkvæmt
kröfu bæj argj aldkerans í Reykja-
vík til „lúkningar fasteignaskatts
0. fl. 1956“, en sá skáttúr mun
vera lagður á að súmrina' um
sama leyti og útsvör. Um útsvör
sín fíí menn að vita í byrjun júlí
eða ágúst og þá sennilega fast-
eign askattinn um leið. Blekið er
því vart þorrnað á tilkynningunni
um skattinn, áður en auglýsing
unj uppboð á fasteign skattgreið-
an dans er komin í blöðin vegna
va nskíla hans á skattinum!
P.
Krossviöur 09 þitplötur
Þakpappi — Timbur
og margt fleira til bygginga.
Byggmgavöruverzlun Akureyrar h.f.
Þrifabað
Það er þægilegt að þvo háfið og allan líkamann samtímis.
Sitja í fótabaði og raka sig.
Verð kr. 3,00.
Sundlaug Akureyrar.
NÝJA-BÍÓ
í kvöld kl. 9:
Töframóttur
tónanna
Amerísk tónlistarkvikmynd í litum,
byggð á sannsögulegum viðburðum
úr lífi Sol Huroks, sem um langt
skeið hefir unnið hvað ötullegast
að því að kynna amerískum al-
menningi sígilda klassiska tónlist
og listdans. M. a. koma fram í
myndinni Ezio Pinza, Metropolitan-
óperusöngvari Roberta Peters
Metropoliton-óperusöngkona, T am-
ara Toumanova Primaballerina og
Isaak Stern fiðlusnillingur. — Aðal-
hlutverk:
David Wayne og
Anna Bancroft.
Næsta mynd:
HINAR DJÖFULLEGU
(Les Diaboliques)
(The Fiends)
Geysispennandi, óhugnanleg og
framúrskarandi vel gerð og leikin,
ný frönsk mynd, gerð af snillingn-
um Henri-Georges Clouzot, er stjórn
aði myndinni „Laun óttans". Mynd
þessi hefur hvarvetna slegið öH/að-
sóknarmet og vakið gífurlegt umtal.
Óhætt er að fullyrða, að jafu spenn-
andi og taugaæsandi mynd hafi
varla sézt hér á landi.
VERA CLOUZOT
SIMONE SIGNORET
PAUL MEURISSE.
— Bönnuð innan 16 ára. —
BORGARBÍÓ
Sími 1500.
Næsta mynd:
MARTRÖÐ
MINNINGANNA
(So lange du da bist)
Mjög áhrifamikil og spenn-
andi, ný þýzk stórmynd, byggð
á sögu eftir Villy Corsari, sem
komið hefir út í íslenzkri þýð-
ingu.
Danskur texti.
Aðalhlutverk:
Maria Schell
(vinsælasta leikkona Evrópu),
O. W. Fischer,
Hardy Kriiger.
Hólfdúnn
Börnum innan 16 ára verður ekki
hleypt inn í fylgd með fullorðnum.
Hvarvetná, þar Sem myndin hejir
verið sýnd, haja kvikmyndáhúsgest-
ir verið beðnir að skýra ekki kunn-
ingjum sínum jrá ejni myndarinn-
ari til þess að eyðileggja ekki jyrir
þeim skemmtunina. — Þess sama er
hér með beiðst aj islenzkum kvik-
myndahúsgestum.
STÚLKA ÓSKAST
til starfa við Hressingar-
skálann Strandgötu 13 B.
margir litir, nýkomið.
Gólfdúkalím
Þakmólning
o. fl.
Byggingavöruverzlun
Akureyrar h.f.
EINA HUGGUNIN.
Þegar Charlie Chaplin tilkynnti
annarri konu sinni, að hann vildi
skilja við hana, sagði hún:
— Konu eins og mig fœr þú
aldrei aftur.
— Það er líka mín einasta
huggun, svaraði Chaplin.
Hólfdúnn
Gæsadúnn
Sængurveradamask
Sængurveraefni
einlit, rósótt
Lakaléreff
Léreft
einbreitt, tvíbreitt.
Ásbyrgi h.f.