Íslendingur - 31.05.1950, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 31. maí 1950
ÍSLENÐINGUR
5
Árni G. Eylands:
Búvélar og ræktun
Bókaútgáfa Menningarsjóðs,
Reykjavík 1950.
Ef vér skyggnumst um í hinum
mikla bókakosti, sem árlega kemur
út á íslandi hlýtur það að vekja
furðu, hversu nauðafátt er þar um
bækur, er fjalli um hagnýt efni. Það
er engu líkara, en þjóðin í þeim efn-
um þykist fullörugg, að treys'.a
brjóstviti sínu, og víst er um það,
ekki hefir útgáfa þeirra fáu bóka
af þessu tæi, sem séð hafa dagsins
ljós orðið útgerðarmönnum sínum
féþúfa.
Það má því til tíðinda teljast, að
Menningarsjóður liefir ráðist í að
gefa út bók Árna G. Eylands um
Búvélar og ræktun, þar sem ekki er
um neilt smásmíði að ræða eða 475
bls. í stóru broti með fjölda mynda.
Bók þessi fjallar, eins og nafnið
bendir til, um búvélar þær, sem not-
aðar eru hér á landi og annars stað-
ar, og líkur benda til að komið gætu
að gagni hér. Er þeim lýst og með-
ferð þeirra og vinnsluhæfni og af-
köstum. Jafnframt er sagt stutt á-
grip af notkunarsögu véla og vinnu-
tækja hér á landi, og lýst og leið-
beint um ræktunaraðferðir og
hversu vélum skuli beitt. Er geysi-
mikill fróðleikur saman kominn um
þetta efni í bókinni.
Eigi er á færi annarra en sérfróðra
manna að leggja dóm á efni bókar-
innar, en hitt er Ijóst hverjum, er
les, að frásögn höf. er skýr, gagn-
orð og svo lifandi, að margir kaflar
bókarinnar eru hreinn skemmtilest-
ur.
íslenzkur landbúnaður er á tíma-
mótum. Vélaafl og vélanotkun hefir
haldið þar innreið sína og valdið
fullkominni byltingu. En eins og oft
vill verða, einkum á umbrotatímum,
hefir meira verið hirt um að afla
fjár en gæta þess. Menn hafa lagt
meira kapp á að fá vélarnar, en
læra rétta meðferð þeirra, eða gæta
þeirra sem skyldi. Fyrir þá sök hafa
verðmæti spillzt meira en góðu hófi
gegnir.
Bók Árna G. Eylands ætti að
verða bændurn hjálp til að hagnýta
fenginn vélakost og fara með hann,
og hún er einnig leiðarvísir handa
þeim, sem engar vélar eiga enn, um
hvað þeir eigi að leggja mest kapp
á að afla sér af því tæi. Bók þessi er
sjálfsögð handbók og ráðunautur
hverjum bónda.
Þess er að vænta, að Menningar-
sjóður geti haldið áfram því verki,
sem hafið er með henni, og gefið út
hagnýtar handbækur um sem flest
efni í atvinnulífi þjóðarinnar.
Steindór Steindórsson
frá Hlöðum.
SAMVINNAN, marz 1950, hefir
blaðinu borizt. Flytur hún m. a.
þetta efni: Vetrardagur í sveit, heim-
sókn að stórbýlinu Möðruvöllum í
Eyjafirði, með mörgum myndum
frá daglegu lífi heimilisfólksins inn-
anhúss og við gegningar. Stofnun og
starfræksla skipadeildar SIS, Ame-
rískt blaðaviðtal við rithöfimdinn
W. Somerset Maugham, Hin nýju
vísindi lífeðlisfræðinnar, (þýdd
grein), Rætt við dr. Pétur Ólafsson
í Cornell-káskóla, Á förnum vegi,
framhaldssaga, smásaga o. m. fl.
SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKING-
UR, 4. tbl. þessa árs flytur m. a.
þetta efni: Björgun 353 manna, eftir
Guðm. Sveinsson (en hann var skip-
stjóri á Skallagrími þá ferð, er skip-
ið bjargaði 353 brezkum sjóliðum
sunnan við land á stríðsárunum),
Hnefana á borðið, e. Júlíus Hav-
steen sýslumann, Með Heklu til Skot-
lands, e. Sigurð Guðjónsson, Þýtt og
endursagt e. Halldór Jónsson, Þátt-
ur um sjóinn e. Grím Þorkelsson,
Hugleiðingar sjómanns e. Guðm.
Gíslason, Hafnargerð á Patreksfirði
e. Jens V. Jensson, Er sofið á verð-
inum? e. ritstj. Gils Guðmundsson
o. m. fl.
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ, apríl-hefti er
nýkomið. Flytur það margar mynd-
um prýddar greinar um innlendar
og erlendar íþróttir, m. a. grein um
ísl. glímu eftir Kjartan Bergmann.
Rits.jóri íþróttablaðsins nú er Gunn-
ar M. Magnúss.
ARMBANDSÚR
| &0000000000000000000000000
i Skjaldborgar-bíó
i „Humorespe"
Stórféngleg, hrífandi músik-
mynd, sem tónlistarunnend-
ur ættu ekki að láta fratnhjá
sér fara.
Aðalhlutverk:
Joan Crawford
John Garfield
Oscar Levant
oooooooooooooooooooooooooc
>0000000000000000000000000
— Nýja - bíó —
Næsta mynd:
ALLT í ÞESSU FÍNA . . .
Amerísk gamanmynd frá 20th
Century-Fox.
I aðalhlutverhum:
Maureen O’Hara,
Robert Young,
Clifton Webb,
Louise Allbritton,
Richard Haydn.
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOC
timburskúr
Sá, sem tók karlmanns-armbandsúriS í
kennaraherbergi íþróttahússins á 2. hvíta-
sunnudag, skili því strax til húsvarðarins.
til sölu í Fjólugötu 1 1 •—
Tækifærisverð ef samið er
strax.
Hárgreiöslu. emi
Viljum ráða nema í hár-
greiðsluiðn sem fyrst. — Þarf
helzt að hafa gagnfræðapróf.
Snyrtistofan FJÓLA
María Si%urðardóltir.
EF YÐUR VANTAR BÍL
þá munið Litlu-Bílastöðina
við Strandgötu.
Nýja símanúmerið er
1105
VILKAUPA
vðrubíl
með sturtum
TÓMAS BJÖRNSSON
Símanúmer BSO
verður framvegis
1760
EIFREIÐASTÖÐ ODDEYRAR
sími 1760
Lottnet
lagfærð og sett upp. Eig-
um efni í nokkur loftnet.
Pantanir mótteknar í sírna
1117.
Sigþór Marinósson
Stefán Þórhallsson
Insectoslip
skordýraeitrið eyðir öllum
mölflugum, húsflugum og
hvers konar skordýrum úr
húsurn yðar.
Fæst aðeins hjá okkur.
Brynj. Sveinsson h.f.
Sími 580.
Atvinna
Duglega stúlku vantar okk-
ur á myndastofuna til
amatörsstarfa, nú þegar.
J ÓN & V I GFO S
Píanóstillingar
OTTO RYEL
Innilegar þakkir fyrir hluttekningu, minningargjafir, blóm og
alla hjálp og aðstoð í veikindum og við jarðarför móður minnar
Jónasínu Jónsdóttur.
Friðjón Tryggvason.
Fósturmóðir mín,
Steinunn Guðmundsdóttir,
sem andaðist aðfaranótt 28. maí síðastliðinn, verður jarðsungin frá
Glæsibæjarkirkju laugardaginn 3. júní. Húskveðja verður í Árgerði
Glerárþorpi kl. 2 e. h.
Sigurjón Kristinsson.
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOí
BAINN
Öllum óviðkomandi er bönnuð afnot að íþróttavelli ÞÓRS,
nema að fengnu leyfi félagsstj órnarinnar. — Þeir, sem óska eftir
að fá íþróttavöllinn leigðan til keppni, snúi sér til Jóns Kristins-
sonar, sími 1133.
Íþ ótíafélagið Pór
ooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooos
:0000000000000000000000000000000000000000000000000000$
Feröatöskur
Höfum fengið nýja sendingu af okkar við-
urkenndu ítölsku ferðatöskum. með tré- -
gjörðum. — Birgðir takmarkaðar.
Brynj. Sveinsson h.f.
Sími 580
íOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOS
OOOœOOOOOOœOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO*
TILKYNNING
Framvegis verða geymsluhólfin opin fró kl.
8 til, 18 alla virka daga. En laugardaga að-
eins frá kl. 8—13. Á öðrum tímum verður
alls ekki hægt að hafa aðgang að hólfunum.
FRYSTIHÚS K. E. A.
»ooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooo$oooooo$
Orösending írá Loítleiðum
Með opnun nýju sjólfvirku stöðvarinnar
breytast sfmanúmer vor og verða fram-
vegis 1940 og 1941.
LOFTLEIÐIR.
Skuldabrét
5% handhafa skuldabréf landssímans eru til sölu á skrifstofu
iriinni kl. 10—12 og 13—16 daglega.
Athugið, að með því að kaupa þessi skuldabréf ávaxtið þér fé
yðar á hagkvæman og tryggan hátt.
Símastjórinn,
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOí