Íslendingur - 09.02.1962, Síða 1
tSLENDINGUIÍ
XLVIII. ÁRGANGUR
FÓSTUDAGIJR 9. FEBRUAR 1962
6. TOLUBLAÐ
STARFSEMI SNE AD LUNDI
f
A búinu eru 160 nautgripir og 400 svín
AÐ LUNDI við Akureyri rekur Samband nautgriparæktarfélaga
Eyfirðinga mildð kúabú og tilrauna, afbrigðarannsóknir og
sæðingarstöð og svínabú með 400 svínum.
Þessu mikla fyrirtæki veitir
Sigurjón Steinsson forstöðu. —
Sigurjón er búfræðikandídat
frá Hvanneyri 1949, var fyrst
ráðunautur í Skagafirði, en
síðan bóndi í Ólafsfirði þar til
hann tók við búinu að Lundi.
Búið heimsótt.
í s.l. viku skrapp fréttamaður
frá blaðinu upp að Lundi og
ræddi nokkra stund við bú-
stjórann.
í fjósinu, sem er stórt og
mjög þrifalegt, eru 48 kýr, en
auk þess í öðru fjósi nokkrar
kýr, sem komnar eru að burði.
í sambandi við afkvæma-
rannsóknirnar segir Sigurjón,
er fylgist mjög vel með kvígun-
um, með rannsóknum og mæl-
ingum:
Á ári hverju kaupum við
nokkra tugi kálfa víðs vegar að
úr héraðinu, helzt viljum við fá
kvígukálfana nýborna. Þeir eru
svo aldir hér upp til tveggja
ára aldurs; eða þar til þær hafa
borið sínum fyrsta kálfi. Eftir
það eru þær hér í um það bil
eitt ár, en síðan eru þær seldar
bændum út um allt hérað, eink
um ef þær hafa sýnt, að þær
muni verða arðbærir gripir,
þeim lélegustu er þó stundum
lógað.
f haust fengum við t. d. 37
kálfa í þessu skyni. Eru þeir
fleslir í fjósi við Grísaból, þar
sem ekki er pláss fyrir þá hér.
Húsakostur óviðunandi.
Annars er húsakostur hér
aðal-áhyggjuefnið, og má segja,
að hann sé með öllu óviðunandi.
Ef vel ætti að vera þyrfti að
Sigurjón Steinsson bústjóri.
byggja mjög fljótlega yfir um
100 gripi. Sem dæmi um erfið-
leikana í sambandi við húsa-
kostinn má geta þess að við
þurfum í vetur að flytja til um
1300 hesta af heyi, en það er of
mikið viðbótarverk við önnur
störf. Einu góðu útihúsin eru
þetta stóra fjós, og hlaðan við
það, en þau eru líka til fyrir-
myndar.
Heyskapurinn gekk vel í
sumar, og öfluðum við meiri
heyja en við þm'ftum. Alls er
ræktað land, sem við höfum, 65
hektarar, en á það land þurfum
við að beita öllum búpeningn-
Þarf að flytjast.
Ég minntist á Grísaból áðan,
en svínabúið þar er rekið af
SNE. Þar vinna tveir menn, og
hirða þeir um 400 svín, þar af 30
gyltur, og auk þess kálfana,
sem ég minntist á. Hins vegar
flytjum við allt heyið þangað.
Nú er Grísaból komið inn í bæ-
inn, ef svo mætti segja, þar sem
íbúðarhús hafa verið byggð
umhverfis það.
Þessa stofnun þarf að flytja
sem fyrst, og er henni ætlað
pláss í Rangárvallalandi, rétt
ofan við Glerá. Bráðan ibug
verður að vinda að þeirri bygg-
ingu, 'þar sem telja má óhæft að
hafa svínabúið þar sem það er
nú. Árni Kristjánsson veitir
því forstöðu.
Þá væri rétt að minnast á
all-nýstárlega tilraun, sem við
erum með hér, því að ég veit
ekki til að slíkt hafi verið gert
hér á landi áður, a. m. k. ekki í
svo stórum stíl. Eitthvað munu
sauðfjárbændur hafa prófað að
láta fé sitt vera í opnum hús-
um, þannig að æmar gætu
gengið út og inn eftir vild.
(Framhald á bls. 5)
FYRIR ROMRI VIKU, eða
nánar tiltekið 31. jan. s.l., lagði
Árni Gunnlaugsson frá Skógum
í Reykjahverfi upp á Axarfjarð
arheiði. Ætlaði Árni að ganga
yfir heiðina að Garði í Þistil-
firði, en sú leið mun nær 40 km.
að lengd. Á föstudag hafði ekk-
SAMKVÆMT skýrslu bygg-
ingafulltrúans á Akureyri voru
fullbyggð hér á Akureyri á
fyrra ári 40 íbúðarhús með 59
íbúðum, 265 herbergjum. Mörg
húsanna ei'u þó ófrágengin ut-
an. Flest voru húsin byggð í
hinum nýju hverfum vestan
Þórunnarstrætis, svo og norð-
an Glerár. Byggingarefnið í
flestum húsunum steinsteypa.
Auk hinna fullbyggðu húsa á
árinu komust 27 hús með 33
íbúðum og 142 herbergjum
undir þak fyrir áramót. Þá var
og hafin bygging á 6 húsum (9
íbúðir). Er eitt þeirra svonefnt
keðjuhús, byggt í Glerárhverfi,
en það er ný húsagerð hér í
bæ.
Þá voru ýmsar stærri bygg-
ingar fullgerðar á árinu, svo
sem flugstöðvarhús á Akur-
eyrarflugvelli, sem Flugráð
ríkisins lét byggja. Bygginga-
ert til Árna frétzt, og var þá
Tryggvi Helgason flugmaður
fenginn til að leita hans í flug-
vél sinni.
Tryggvi fann Árna skammt
frá sæluhúsinu, sem er nálægt
miðri heiðinni. Er Ti'yggvi varð
mannsins var, kastaði hann nið-
ur til hans orðsendingu um
hvert hann skyldi halda til að
finna sæluhúsið, en Árni
skeytti því ekki, en hélt áfram
göngu sinni, þrátt fyrir endur-
teknar tilraunir Tryggva. Flaug
nú Tryggvi austur á heiðina,
þar sem hann viSsi þar um leit-
armenn úr Þistilfirði. Er hann
varð þeirra var, sendi hann
þeim orðsendingu um hvar
maðurinn væri. Breyttu þeir
þegar stefnu og héldu þangað.
Á meðan flaug Tryggvi yfir
staðinn og vísaði þeim leiðina.
Eftir að leitarmenn fundu
Árna, munu þeir hafa farið
með hann í sæluhúsið, en síðan
flutt hann til byggða. Árni er
nú í sjúkrahúsinu á Húsavík, og
mun hann vera eitthvað kalinn
á fótium.
vöruverzlun Akureyx-ar við
Glei-ái-götu 24, Súkkulaðivei'k-
smiðjan Linda við Hvannavelli,
stæi-sta bygging ársins, 9650
rúmmeti-ar, fjós að Galtalæk á
vegum Tilraunast. ríkisins,
blikksmiðja Mai-z h.f. við
Gránufélagsgötu, búningsklefar
og áhorfendapallar við íþrótta-
svæðið, fuglahús að Gi-ænhól
(Brynj. Brynjólfsson hóteleig-
andi), járnsmiðja við Hjalteyr-
argötu (h.f. Varmi) og spenni-
stöð Rafveitu Akureyrar við
Ki'ossanes.
Fokheldar urðu fyrir áramót
eftirtaldar byggingar: Elli-
hemilishús við Austurbyggð,
skrifstofubygging bæjarins við
Geislagötu, Amai-o-húsið við
Hafnarstræti (9193 rúmm.),
fataverksmiðja Heklu á Gefj-
unai'lóð (10828 rúmm.), skrif-
stofubygging Útvegsbankans og
skíðahótel í Hlíðarfjalli. Þá var
byi'jað á verzlxmar- og sam-
komuhúsi við Glei'ái'götu (Ak-
ur h.f.), timburverzlun við
Glei'ái-götu 36 (KEA) og haldið
(Fi-amhald á bls. 5)
Féll niður um stigagat
og stórslasaðist
LAUST EFTIR HÁDEGI s.l.
miðvikudag voru þrír menn að
vinna á annai-ri hæð hins nýja
húss Byggingarvöx-uverzlunar
Akureyrar. Stigagat var í gólf-
iniu, og höfðu þeir sett ytfir það
þunna plötu, til varnar ryki og
öðrum óhreinindum, sem ella
hefðu fallið yfir verzlunina, en
hún er þarna undir. Ingólfur
Þorvaldsson, Lundargötu 9, var
einn þessara manna, sem þama
voru að vinna en svo óheppi-
lega vildi til að hann gekk í
ógáti út á hinn þunna fleka með
þeim afleiðingum að hann brast,
og féll Ingólfur niður á gólf
verzlunai-innar. Fallið er nokk-
uð hátt, og missti Ingólfur þeg-
ar meðvitund. Var hann þá
fluttur í sjúki-ahús, en á leiðinni
þangað kom hann til einhvei-rar
meðvitundar. í gær var líðan
hans eftir atvikum sæmileg, en
hann er bæði höfuðkúpu- og
viðbeinsbi-otirm.
um.
Nokkrir kálfanna, sem liggja fyrir opnuni dyrum. Þcim virðist fara vel fram. Ljósm. St. E. Sig.
VILLTUR Á HEIÐI