Íslendingur


Íslendingur - 14.06.1963, Blaðsíða 8

Íslendingur - 14.06.1963, Blaðsíða 8
Alþjóðð Rauði krossinn þakkar íslenzku þjóðinni Formanni R.K.I. hefur nýlega borizt svohljóðandi bréf frá Henrik Beer framkvæmdastjóra Alþjóða Rauða krossins í Genf: „Ég verð að tjá yður, hversu gagntekinn ég var þegar mér varð ljós árangur þeirrar hjálp- ar, sem íslenzka þjóðin veitti hinum hungruðu og þjáðu börn- um í Alsír á vegum Rauða kross íslands. Þetta er lofsvert afrek, og þess hefur verið getið í grein- um víðsvegar um heim um starfsemi Rauða krossins. Ég bið yður að flytja öllum þeim, Uppbó tarþingmenn Uppbótarsæti skiptast þannig: A-listi: Sigurður Ingimundarson. Birgir Finnsson. Guðmundur í. Guðmundsson. Jón Þorsteinsson. D-listi: Davíð Ólafsson. Sverrir Júlíusson. Bjartmar Guðmundsson. Hermann Þórarinsson. G-listi: Eðvarð Sigurðsson. Ragnar Arnalds. Geir Gunnarsson. Kjörsókn var með mesta móti, enda gott „kosningaveður11 þenna dag, sól í heiði og allir vegir færir. Á kjörskrá voru 100573, og af þeim hópi kusu 90945, eða 90.4%. Gild atkvæði urðu 89347. Hlutfallslega skipt- ist atkvæðatalan svo milli flokka: A-listi 14.2% B-listi 28.2% D-listi 41.4% G-listi 16.0%. Nákvæmni í tölum er e. t. v. ekki örugg, en skipta heldur ekki máli um úrslit kosning- anna. sem lagt hafa hönd á plóginn, vorar innilegustu þakkir.“ f bréfi frá San Francisco deild Rauða krossins segir, að Henrik Beer hafi skrifað deildinni m.a. eftirfarandi: „ . . . Viðfangsefni þau, sem vér eigum við að glíma í Alsír, eru geysileg. Þar eru fimm miljónir manna, sem þarfnast hjálpar. Fordæmi það, sem ís- lenzka þjóðin hefur gefið í þessu efni, mun áreiðanlega verða öðrum þjóðum til mikillar hvatningar, og getur jafnvel leitt til þess, að einstakar þjóðir fari að bindast bræðraböndum til lausnar mörgum þeim vanda- málum, sem þyngst hvíla á heiminum í dag . . . “ 31. marz s.l. lauk hjálparstarfi því, sem unnið var á vegum Alþjóða Rauða krossins til hjálpar nauðstöddu fólki í Alsír. Hjálparstarf þetta hófst í ágúst 1962, en þá voru alsírskir flótt- amenn nýkomnir heim til sín frá Marokkó og Túnis, þar sem Rauði krossinn og Flóttamann- astofnun Sameinuðu þjóðanna höfðu í sameiningu séð fyrir þeim í 31/2 ár. Frá því í ágúst og til marzloka hafði Rauði krossinn úthlutað matvælum til 1.600.000 manns í Alsír. Fékk hver þurfandi mað- ur mánaðarlega 8 kg. af 'hveiti, 500 g. af baunum, 500 g. af matarolíu og 400 g. af sykri, auk 100 g: af sápu. Enn fremur hafði Rauði krossinn komið upp 300 mjólkur-gjafastöðvum, þar sem a.m.k. 300.000 börn fengu á hverjum morgni mjólk og brauð, og þrjsvar í viku ýmis bætiefni í töflum. Eins og kunnugt er, voru 35 af þessum mjólkur- gjafastöðvum kostaðar af ís- lenzku gjafafé og báru nafn Rauða kross íslands. Loks var uthlutað 320.000 teppum og alfatnaði handa 380.000 manns, og hjúkrunarstöðvar starfrækt- ar. Nú hefur Rauði krossinn í Alsír, sem þar nefnist Rauði Hálfmáninn, tekið að sér að annast mjólkurgjafa- og hjúkr- unarstöðvarnar og aðra svipaða líknarstarfsemi þar í landi, en Alþjóða Rauði krossinn mun styrkja hann til þess og aðstoða, og mun mennta innlenda menn og þjálfa til þessara starfa. Ríkisstjórnin þar hefur og viðtækar ráðagerðir á prjónun- um til hjálpar bágstöddum Als- írbúum. Þrír Ólafsfjarðarbát- ar farnir á síldveiðar Ólafsfirði 12. júní Héðan fara 5 bátar á síldveið- ar, þeir: Guðbjöi'g, Ólafur beklc- ur, Stígandi, Sæþór og Þorleif- ur Rögnvaldsson. Eru þrír þeirra þegar farnir og tveir munu fara um helgina. Stígandi fékk 700 mál á fyrsta útivistar- degi 60 mílur austur af Bjarnar- ey. Eins og áður munu starfa hér í surnar þrjár söltunarstöðvar á vegum Auðbjargar hf., Jökuls hf. og Stíganda sf. Hefur verið unnið að stækkun þeirra og um- bótum í vor. Þá er einnig unnið að ýrrlsum framkvæmdum í sambandi við móttöku á bræðslu síld. Þorskafli er tregur, en þó hef ur nokkuð fengizt á djúpmiðum. Fimm 12—25 lesta bátar búa sig undir ufsaveiðar með hringnót, en munu að líkindum stunda handfæraveiðar jöfnum hönd- um. Tíð hefur verið góð síðan um mánaðamót. Kýr eru komnar á beit og jörðin grænkar óðum. S. M. • r ÞAU munu verða með líku sniði og undanfarin ár. Kl. 10 árdegis fer blómabíll af stað um bæinn og ekur um göturnar til hádegis. Kl. 13.20 hefjast hátíðahöld á Ráðhústorgi með leik Lúðra- sveitar Akureyrar undir stjórn Jakobs Tryggvasonar. Síðan verður þar hátíðarguðsþjónusta (sr. Birgir Snæbjörnsson og kirkjukórinn). Kl. 14 verður há- tíðin sett af Jens Sumarliðasyni form. þjóðhátíðarnefadar. Þá syngur Jóhann Konráðsson við undirleik Árna Ingimundai-- sonar. Fjallkonan (Hlaðgerður Laxdal) flytur ávarp, og kl. 14.25 hefst skrúðganga út á í- þróttavöll undir stjórn Tryggva Þorsteinssonar yfirkennara. Þar fara fram þessi hátíðaatriði: Kl. 14.50 Fánahylling skáta. — 15.00 Lýðveldisræða (sr. Sigurður Haukur Guðjóns- son). — 15.25 Karlakór Akureyrar syngur. — 15.40 Minni Jóns Sigurðsson ar (Þórunn Ólafsdóttir stú- dent), Milli atriða leikur Lúðrasveit Akureyrar. — 16.00 hefst íþróttasýning. Um kvöldið kl. 20.40 hefst úti- samkoma á Ráðhústorgi með fjölbreyttum skemmtiatriðum. Verður þar m. a. kórsöngur, Karlakórinn Geysir syngur, ein- söngur Gests Guðmundssonar við undirleik Árna Ingimund- arsonar og á eftir dansað á torginu við leik hljómsveitar Ingimars Eydals. Merki verða seld á götum bæjarins, og óskar nefndin eftir að sem flestir beri þau og fjölmenni að hátíðahöld- unum. Úr síðasta páskahreti. Nú eru skipin að búast á sumarsíldveiðar fyrir Norður- og Austur- landi. Hér er Sigurður Bjamason að taka nótina tun borð. Ljósmynd: K. Hjaltason. Franskur togari varð fyrir árekstri við ísjaka 40 sjómílur norður af íslandi, og hlaut nokkrar skemmdir. Sigldi liann til hafnar á Akur- eyri, og er brezkt eftirlitsskip í för með honum. (Ljm.: K. Hjaltas.)

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.