Íslendingur


Íslendingur - 06.04.1967, Síða 4

Íslendingur - 06.04.1967, Síða 4
Vikublað, gefið út á Akureyri. - Útgefandi: KJÖRDÆMISRÁÐ SJÁLFSTÆÐISFLOKKS- INS í NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA. - Ritstjóri: HERBERT GUÐMUNDSSON (ábm.), sími 21354. - Auglýsinga- og afgreiðslustjóri: ÁRNI BÖÐVARSSON, sími 12182. — Aðsetur: HAFNARSTRÆTI 107 (útvegsbankahúsið). III, hæð. sími 11354. Opið kl. 10-12 og 13,30-17,30 virka daga, nema laugardaga kl. 10-12. — Prentun POB. ALMATTUGUR!? • ORÐAFX.AUMURINN streymir enn úr Tímanum og Degi um hina „nýju umbótastefnu“ Framsóknarflokksins. Dýrðin eykst dag frá degi. Skortir nú ekki verulega á, að þessi blöð fari að tala um hina almáttugu stefnu Framsóknar! En einhvem veginn hefur það samt farið fyrir ofan garð og neð- an hjá öllum almenningi, hvað er hér á sciði. Hvað er það þá? Jú, svarið er tiltölulega auðfundið, þegar dregn ar eru saman meginlínur þessarar langorðu og loðnu „nýju um- bótastefnu“. Framsóknarflokkurinn hefur komið sér upp álíka svikamyllu og fyrir kosningamar 1956 sællar minningar. Þá var svikamyllan að vísu reist á „breiðari gmndvelli", sam- starf haft við Alþýðuflokkinn rnn að hagnýta úrelta kjördæma- skipan og vamarmálunum gerð skýrari skil. Allt um það, þá hefur Framsóknarflokkurinn nú opnað hliðstæðar gáttir til svokallaðs vinstra samstarfs. Það má heita öll dýrðin! Hin „nýja umbótastefna“ Framsóknarflokksins er því ekki ann- að en nýtt moldrok út af gömlu tilefni. Flokksbroddunum hefur enn á ný stigið valdaþráin til höfuðs. Það er allt og sumt. VINSTRA VÍTIÐ Um næstu lielgi • Á LAUGARDAG og sunnudag fer fram fyrri hluti Norðurlandsmótsins í handknattleik. Það hefst á laugardag kl. 15 og leika þá: 4. fl. ÞÓR og KA, 2. fl. KA og ÍMA, 2. fl. kvenna ÞÓR og KA og meistarafl. ÞÓR og ÍMA. Á sunnudag kl. 14 verður haldið áfram og þá leika: 3. fl. ÞÓR og KA, 2. fl. ÞÓR og ÍMA, meistarafl. kvenna ÞÓR og KA og meistarafl. karla ÍMA og KA. Mótið fer fram í íþrótta skemmunni á Gleráreyrum. • Á sunnudaginn'fer fram í Hlíðarfjalli svokallað Tog- brautarmót. Það hefst kl. 11 með keppni 10—12 ára stúlkna, kl. 12 verður keppni 12—15 ára stúlkna og 11—12 ára pilta, en kl. 14 hefst keppni unglinga og fullorð- Frá ársþingi ÍBA: Nýr formaSur, breyfingar á stjórnum sérráða SEINNI HLUTI ársþings ÍBA var haldinn í síðustu viku. Þar fór m. a. fram kosning for- manns, upplýst var um tilnefn- ingar félaga í stjórn ÍBA og kynntar voru stjómir sérráð- anna. Ársþingið samþykkti m. a. að taka inn nýstofnað Skot- félag Akureyrar og vinna að stoínun skautaráðs. Samþykkta þingsins verður getið síðar, en hér á cftir fer skrá yfir stjóm IBA og stjómir sérráðanna. Stjórn ÍBA Hermann Stefánsson, formað ur, Leifur Tómasson KA, Jónas Jónsson ÞÓR, Halldór Helga- Hermann Stefánsson. son GA, Snæbjöm Þórðarson Óðinn, Gísli Lórenzsson Róðr- arklúbbur ÆFAK, Kristján Ármannsson Skautafélag Akur (Framhald á blaðsíðu 6) • í FRAMHALDI af þessu rifjast það upp, hvemig forsaga og saga vinstri stjómarinnar sálugu enduðu með skelfingu. Það var 1955 sem hinir svokölluðu vinstri flokkar slógu skjaldborg um samrunahugsjón sína, með því að efna til allsherjarverkfalls og eyðileggingar á því trausta efnahagskerfi, sem byggt hafði verið upp árin á undan og Sjálfstæðisflokkurinn hafði átt allt frum- kvæði að. Þessi aðgerð bar tilætlaðan árangur, en samrunaliug- sjóninni var síðan gefinn byr undir báða vængi, þegar vinstri flokk amir samþykktu í einu hljóði á Alþingi, að segja upp vamarsamn- ingum við Bandaríki Norður-Ameríku. Það var 28. marz 1956. Þá vom kosningar framundan. Að öruggri valdatöku vinstri flokkanna var síðan unnið með meiri fláttskap en dæmi era til um fyrr eða síðar í íslenzkum stjómmálum. Framsóknarflokkurinn og Alþýðuflokkurinn mynd- uðu með sér algert kosningabandalag, hræðslubandalagið, til þess að nýta út í æsar úrelta kjördæmaskipan. Báðir þessir flokkar marglýstu því yfir, að „ekkert samstarf yrði haft við bandalag kommúnista“ (Tíminn á kjördag 1956), enda þótt að því væri beinlínis stefnt frá upphafi. Upp úr þessu var svo vinstri stjómin mynduð. Flokkamir höfðu jafna aðstöðu í ríkisstjórninni. Framsóknarflokkurinn styrkti sig með yfirráðiun yfir SÍS og peningavaldinu, og kommúnistar höfðu lykilaðstöðu með áfrýjunarrétti til verkalýðssamtakanna, eins og síðar kom í ljós. Alþýðuflokknum nægði hins vegar nokkur bitl- þigabein. Stjómarflokkamir gáfu hátíðleg loforð um allt það, sem nú skyldi gert. I sjálfum stjómarsáttmálanum var mörgu heitið og enn fleiru í málgögnum stjómarflokkanna. Sjálfsagt hefur ætlun- in verið að efna sumt það, sem heitið var, enda gat það yfirleitt með frjálslegri skýringu samrýmst tilganginum um „sterka stjóm“. En því er skemmst frá að segja, að jafnvel það sem efna átti, vaB svikið. Til samstarfsins hafði verið stofnað með prettum og svik- lun. Framhaldið varð á sömu lund. M. a. má nefna, að loforðin um „15 nýja togara til atvinnujöfn- Unar“ var svikið. Enginn þeirra var smíðaður, það var ekki samið mn smíði neins þeirra — og enginn svo mikið sem teiknaður. Fjór- um mánuðum eftir stjómarmyndunina var samþykktin um brott- för varnarliðsins svikin og um leið fengið einskonar framhaldslán úr sjóði, sem eingöngu var notaður til að styrkja öryggi Banda- ríkjanna. MikiII samdráttur varð í íbúðarhúsabyggingum, þvert ofan í gefin Ioforð. Húsnæðislán rikisins lækkuðu úr 55 þús. kr. á íbúð í 36 þús. kr. á íbúð, en byggingarkostnaður hækkaði gífur- lega. Ráðherra fyrirskipaði minni framkvæmdir í raforkumálum, þrátt fyrir loforð mn að „rafvæðingu landsins yrði hraðað“. — Þannig var allt á sömu bókina lært. Endalokin urðu svo þau, að í fyrsta sinn, sem vinstri stjómin leitaði raunverulega samstarfs við launþega, lýsti Alþýðusambands þing vantrausti á vinnubrögðum stjórnarinnar — og hún varð að segja af sér. Dánartilkynningin hljóðaði m. a. svo: „Ný verðbólga er skollin yfir....í ríkisstjóminni er ekki samstaða um neint úrræði.“ (Forsætisráðherra á Alþingi, þegar hann baðst lausnar fyrir ríkisstjómina.) Vinstri stjómin hljóp frá borði á stjómar- skútunni, eftir 2JA árs siglingu. Framundan blasti við hrun efna- hagskerfis þjóðarinnar. „Við erum að ganga fram af brúninni“, sagði helzti efnahagsráðunautur stjómarinnar. Og samstaða var nú ekki lengur lun neitt annað en hlaupast á brott frá öllu saman. Er það ekki fullstór bón af hálfu Framsóknarflokksins að fá nú á ný tækifæri til að framkvæma vinstri strandsiglingu? Sigurlið ÞÓRS. Fremri röð f. v.: Guðni Jónsson, Bjami Jónasson, Jón Friðriksson, Ævar Jónsson. Aftari röð f. v.: Pétur Sigurðsson, Ingólfur Hermannsson, Anton Sölvason og Magnús Jónatansson. ÞÓR11. DEILDIKÖRFUKNATTLEIK - vann Skarphéðinn með 63 stigum gegn 60 í tvísýnum leik ÍÞRÓTTAFÉLAGH) ÞÓR á Akureyri vann Héraðssamband ið Skarphéðinn í Ámessýslu í n. deild Körfuknattleiksmóts íslands og tryggði sér þar með sigur í deildinni og setu í I. deild næsta ár. Leikurinn fór fram á Akur- eyri á laugardaginn var og lauk honum með litlum mun, 63 stig um gegn 60 ÞÓR í vil, eftir framlengdan leik. FramanEif var þessi leikur fremur daufur. Skarphéðinn var heldur skæðari og hafði lengi um 10 stig yfir. Baráttan harðnaði undir lokin og dró nú saman, svo að leikurinn varð mjög tvísýnn. Að venjulegum leiktíma lokniun reyndist hafa orðið jafntefli, 56 stig gegn 56. Var leikurinn þá framlengdur í 5 mínútur og náði ÞÓR þá yfir- höndinni. Eins og fyrr segir, varð lokastaðan 63 stig gegn 60. ÞÓR fær nú að spreyta sig í I. deild Körfuknattleiksmótsins á næsta ári. Er það út af fyrir sig ánægjulegt og verður efa- I A LAUGARDAGINN var I fór fram svigkeppni Her- , mannsmótsins I Hlíðarfjalli. Lauk mótinu þar með að þcssu sinni og var ívar Sig ^ mundsson efstur í svigi og I stórsvigi samanlögðum, en | fyrir þann árangur hlaut I hann Hermannsbikarinn í ■. annað sinn í röð og raunar annað skiptið sem keppt er 1 um bikarinn. Úrslit í sviginu urðu þessi: í kvennaflokki luku ekki aðrir keppni en Karólína Guðmundsdóttir KA, sem fékk tímann 85.0. — Brautin laust til eflingar körfuknatt- leiksiðkun hér á Akureyri. var 290 m. löng, hæðarmis- munur 120 m. og hlið 37. í karlaflokki sigraði ívar Sigumundsson KA, fékk tím ann 103.5, annar varð Reyn- ir Brynjólfsson ÞÓR, 104.9, og þriðji Magnús Ingólfsson KA, 105.7. í Alpatvíkeppni varð efst- ur ívar Sigmundsson KA, eins og fyrr segir,. með 2.94 stig og hlaut Hei-mannsbik- arinn. Annar vaið IVJagnús Ingólfsson KA með 11.20 stig, þriðji Reynir Brynjólfs- son ÞÓR með 13.11 stig. / ívar vann Hermannsbikarinn tSLENDINGUR 4

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.