Íslendingur


Íslendingur - 11.09.1975, Qupperneq 1

Íslendingur - 11.09.1975, Qupperneq 1
❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖•❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖’ ♦♦♦ v V V V ^ I X $ * 1 ! * y Þeir eru að vonum ánægðir, þessir þrír Þórsarar. Myndin var tekin eftir sigur Þórs í 3. deild sl. finuntudag, en á henni eru Aðalsteinn Sigurgeirsson, fyrirliði, Haraldur Helga- son, formaður Þórs, og Samúel Jóhannsson, markvörður Þórs. I ! i | I Vilja að stofnað verði orkuöflunarfyrirtæki Á þingi Fjórðungssambands Norðlendinga í síðustu viku hafði Lárus Jónsson alþm. formað- ur samstarfsncfndar um orkumál á Norðurlandi framsögu um störf nefndarinnar, en henni er fyrst og fremst falið að kanna viðhorf sveitarfélaga og eigenda virkjana á Norðurlandi um stofnun sameiginlegs orkuöflunarfyrirtækis fyrir allan Norðlendingafjórðung. Lárus skýrði frá því að nefndin væri fyrir sitt leyti komin að niðurstöðu um frumhugmynd að umræðugrund- velli, sem hún teldi að leggja ætti til grundvallar frekari umræðum milli ðaila um stofnun Norðurlandsvirkjunar. Meginatriði hugmynda nefndarinnar væru að stofnað yrði orkuöflunar- fyrirtæki, sem ætti og ræki öll stærri orkuver í f jórðungnum ásamt a. m. k. stofnlínu frá Hrúta- firði að Kröflu. Fyrirtækið yrði að meirihluta i eigu kaupstaða og sýslna á Norðurlandi og eign- araðild heimaaðila skiptist að mestu í milli þeirra eftir íbúatölu. Skýrari sjónvarpsmynd bætt símasamband 09 betri útvarpssendingar vegna örbylgjukerfisins í lok þessa árs mega Norðlendingar eiga von á því að það hætti að snjóa á sjónvarpsskermunum þeirra og erlendar sjónvarpsstöðvar trufli ckki lcngur útsendingar íslenska sjónvarpsins. Jafnhliða þessu eiga gæði útsendinga hljóð- varpsins að batna. Það er nýtt örbylgjukerfi (mikro- bylgjukerfi) sem Landsíminn er að koma upp sem gerir þetta mögulegt. Þegar er búið að ganga frá örbylgjukerfinu milli Blönduóss og Akureyrar og var það tekið í gagnið um sl. áramót, en nú er unnið að frágangi á kerfinu milli Blönduóss og Reykja- víkur. Kostnaður við kerf- ið milli Blönduóss og Akur _ eyrar var um 70 milljónir og má gera ráð fyrir að kostnaður við seinni hlut- ann verði svipaður. Kostn- aður við uppsetningu ör- bylgjukerfisins deilist nið- ur á milli Ríkisútvarpsins og Pósts og síma. Að sögn Gústavs Arnar, deildarverkfræðings hjá Pósti og síma, á nýja ör- bylgj ukerfið að geta flutt 960 símarásir og á það að duga um langa framtíð. Á rásunum sem síminn hefur afnot af er um að ræða tvö falda leið, en á línum sjón- c varpsins verður einföld leið, þ. e. aðeins verður hægt að senda eftir kerfinu frá Reykjavík norður. Gústav sagði að örbylgju- kerfið myndi draga stór- lega úr truflana- og bilun- arhættu á útsendingarkerfi sjónvarpsins, og væri þess að vænta að sjónvarpsmót- tökuskilyrðin bötnuðu ekki aðeins á Norðurlandi held- ur einnig á austur- og vest- urhlutum landsins. Þá ger- ir nýja örbylgjukerfið hljóð varpinu einnig kleift að senda út í „stereo“ til Norð urlands. íslendingur ræddi við Lárus Jónsson og innti hann m. a. eftir því hvernig framhaldi nefndarstarfanna yrði háttað. Hann sagði að nefndin hefði þegar sett saman frumdrög að frumvarpi til laga um Norður landsvirkjun, sem hún væri sammála um að leggja til grundvallar í frekari viðræð- um milli aðila. Þessi drög hefðu verið kynnt fyrir eig- endum virkjana á Norður- landi m. a. bæjarráði Akur- eyrar og ítarlega rædd í iðn- aðarráðuneytinu. Hugmynd- um nefndarinnar hefði verið vel tekið sem frumhugmynd- um að nýrri lausn á uppbygg- ingu Norðurlandsvirkjunar. Iðnaðarráðuneytið væri nú með í athugun hugmyndir mn stofnun fleiri slíkra lands- hlutavirkjana og samræmingu á framkvæmdaratriðum varð- andi þessi fyrirtæki að hálfu ríkisvaldsins. Hann kvaðst vona að niðurstöður ráðuneyt- isins um þessi efni lægju fyrir síðar í haust og þá myndi tími til komiim að kynna þetta mál ennþá nánar fyrir einstökum sveitarstjórnum á Norður- landi í framhaldi af umræðu um þessi mál á fjórðungsþingi. Ýmsar athuganir væru einnig í gangi varðandi málið á veg- um nefndarinnar og stefndi hún að því að unnt yrði að leggja álit hennar fyrir næsta vetur. 68 í öldungadeild l\IA: — Hlutfallslega meiri þátttaka en í Hamrahlíð Menntaskolinn á Akureyri starfrækir í fyrsta skipti í vetur öldungadcild og cru hvorki mcira né minna en 68 nemendur innritaðir í deildina. Flestir þeirra sem hefja nám í haust eru á þrítugsaldri og eru konur þar í meirihluta, eða alls 40. Kennt verður í máladeild og náttúrufræðideild og fer kennslan fram 4 kvöld í viku og síðdegis á laugardögum. Námsefni og náms- kröfur í öldungadcildinni eru- liinar sömu og í öðrum mennta- skólum. Að sögn Tryggva Gíslason- ar, skólameistara, eru skráðir nemendur í öldungadeildinni orðnir fleiri en gert var ráð fyrir í upphafi og ef miðað er við íbúafjölda í Reykjavík og Akureyri, þá eru nemendur öldungadeildar MA hlutfalls- lega fleiri en nemendur í öld- ungadeild Hamrahlíðarskólans í Reykjavík. í vetur verður kennd íslenska, enska, þýska, franska, stærðfræði, saga og náttúrufræði og geta nemend- ur valið sér fög með tilliti til hvaða deild þeir hafa valið. Er gert ráð fyrir að þeir ljúki stúdentsprófi á 3—5 árum, en alls þurfa þeir að taka 132 námseiningar. Námstímanum er skipt niður í annir og ekki er hægt að taka færri en 14 námseiningar á önn til þess að fá námið viðurkennt. Langflestir þeirra sem eru innritaðir í öldungadeildina eru frá Akureyri og nágranna sveitunum. Sagði Tryggvi að sér litist mjög vel á hópinn og starfræksla nýju deildarinnar legðist vel í sig, enda sýndi reynslan úr Hamrahlíðarskól- anum að það væri yfirleitt dug Frh. á bls. 7. Stöðumæla- gjöld hækka Ákveðið hefur verið að hækka stöðumælagjald á Akureyri. Eftir hækkun verður almennt gjald fyr- ir allt að % klst. stöðu við stöðumæla 10 krónur, en þó verður gjald fyrir 15 minútna stöðu á stöðu- mælareitum við Hafnar- stræti norðan Kaupvangs strætis 10 krónur og 20 krónur fyrir 30 mínútna stöðu. Hækkunin gengur í gildi smám saman, eða eftir því sem hægt verður að gera nauðsynlegar breytingar á mælunum sem fyrir eru. Þá þarf að panta nýja stöðumæla með tvískiptum tímamæli sem verða settir upp í Hafnarstrætinu. Er verið að panta þá um þessar mundir og er þess að vænta að þeir verði komn ir í gagnið næsta vor. Sérkennsludeild við Barnaskóla Ak. A þcssu hausti tekur til starfa á Akureyri sérstök deild fyrir börn scm þurfa á sérkcnnslu að halda. Hólmfríður Guðmunds- dóttir sérkennari og Valdís Jónsdóttir talkennari munu annast kennsluna sein fer fram í Barnaskóla Akureyrar. Samkvæmt athugunum, sem hafa verið gerðar á tornæmum börnum, má gera ráð fyrir að allt að 14 hörn verði í deildinni. Valgarður Haraldsson náms stjóri, sagði í viðtali við blað- ið að fram hafi komið tillög- ur um að skipta börnunum niður í tvo hópa og mundi annar hópurinn njóta athvarfs kennslu á meðan hinn er í sér kennslunni innan veggja skól- ans. Athvarfskennslan miðar að því að hjálpa börnunum til aukins þroska og veita þeim þjálfun í ýmsum atriðum sem eðlilega greind börn læra yfir- leitt af sjálfsdáðum. Valgarður sagðist vonast til að athvarfið gæti komist í gagnið um áramótin, en uppi eru hugmyndir um að það verði til húsa á sama stað og fjölskylduheimili Sólborgar í Oddeyrargötu. Þá kom einnig fram að ætl- unin væri að láta börnin í sér- kennsludeildinni fá aðgang að kennslu í leikfimi, handavinnu og fl. fögum með öðrum bekkj um skólans.

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.