Íslendingur


Íslendingur - 11.09.1975, Blaðsíða 8

Íslendingur - 11.09.1975, Blaðsíða 8
ESaNGRUNARGLER ISPAN HF. • FURUVÖLLUM 5 • AKUREYRI • SÍMI (96)21332 AUGLYSINGASIMIISLENÐIN6B 215 00 Bfarm Jónsson sýnir í Hlíðarnæ Þann 18. sept. opnar Bjarni Jónsson listmálari sýningu á verkum sínum í Hlíðarbæ í Glæsibæjarhreppi. Sýningin stendur til sunnudags 21. sept. Bjarni tók fyrst þátt í sam- sýningu Félags ísl. myndlistar manna árið 1952 en fyrsta sjálfstæða sýning hans var í Sýningarsalnum í Rvík árið 1957. Síðan hefur hann hald- ið margar sýningar bæði í Reykjavík og víða um landið. Þá hefur hann fengist mikið við að myndskreyta bækur, gert leikmyndir og fl. Myndirnar sem Bjarni sýn- ir í Hlíðarbæ hafa verið vald- ar með það fyrir augum að sýna sem flestar hliðar á list Bjarna. Bjarni Jónsson er fæddur 15. sept. 1934. Lýsa undrun sinni á sam- þykktum bænda Á stjórnarfundi Landssam- bands iðnverkafólks sem hald inn var 6. sept. 1975, var gerð eftirfarandi samþykkt: „Stjórn Landssambands iðn verkafólks lýsir undrun sinni á hinum gikkslegu samþykkt- um Stéttarsambands bænda í garð verkalýðshreyfingarinn- ar. Virðist nú augljóst að áð- ur kunnur fjandskapur for- manns Stéttarsambandsins í garð verkalýðshreyfingarinn- ar er orðinn stefnumarkandi fyrir sambandið." Stjórn Landssambands iðn- verkafólks telur því tímabært að verkalýðssamtökin geri sín ar ráðstafanir til að mæta árás um Stéttarsambands bænda á viðeigandi hátt. (Fréttatilkynning.) Sólborg komin ■ þrot með húsnæði Smíði viðbótar- húsnæðis hafin Hafnar cru framkvæmdir við sérstaka sjúkradeild fyrir örvita og ósjálfbjarga hjúkrunar- sjúklinga á Sólborg. Sjúkradeildin verður um 450—500 fermetrar á einni hæð og ætluð fyrir 24 sjúklinga. Nýbyggingin verður tengd eldri byggingum á Sólborg með gangi eða verönd. Á yfirstandandi ári voru vcittar 20 milljónir króna úr Styrktarsjóði vangefinna til þcssara framkvæmda og í sl. mánuði hófst vinna við jarðgröft vegna sjúkradeildarinnar og cr það verkefni vel á veg komið. Norðurvcrk hf. hcfur annast jarðgröftinn, en nú er þess að ' vænta, að bygging húss sjúkradeildarinnar Verði boðin út innan skamms, og verður unnið við þá framkvæmd, meðan fjárveiting cndist og tíðarfar leyfir. Það er Teiknistofan Óðins- torg s.f. í Reykjavík, sem hefur teiknað nýju'sjúkradeildina. GlenJspcglan Sjúkradeildin er fyrsti á- fangi í verulegri stækkun á vistheimilinu Sólborg á Akur eyri. í öðrum áfanga er bygg ing nýs húss til kennslu og vinnuþjálfunar með aðstöðu til líkamsræktar. Húsið verð- ur að hluta til á tveimur hæð um, 450—500 fermetrar að grunnfleti. Á efri hæð verða kennslu- og vinnustofur ásamt vinnuaðstöðu fyrir starfslið, en í kjallara á neðri hæð verður sundlaug og að- staða fyrir sjúkraþjálfun og aðra nauðsynlega líkams- rækt. Þegar þessi hús verða kom in í gagnið verður hægt að endurskipuleggja það starf sem fer fram í núverandi hús næði Sólborgar og gera á því ýmsar endurbætur. Áætlað- ur heildarkostnaður vjð ný- byggingar og breytingar á eldra húsnæði er 160 millj. og 400 þús. kr., en sam- kvæmt áætlun á verkinu að vera lokið árið 1980. Sl. mánudag efndi stjórn vistheimilisins Sólborgar til blaðamannafundar þar sem skýrt var frá byggingar- áformunum og þar kom einn ig fram að þrengsli eru far- in að há allri starfsemi Sól- borgar verulega. Þóroddur Jónasson læknir og formaður stjórnarinnar sagði að upp- haflega hefði vistheimilið verið ætlað fyrir 32 vist- menn, sjálfbjarga á svipuð- um aldri og meðferðarstigi. En nú eru á heimilinu 60 vistmenn og þriðjungur þeirra eru örvitar og hjúkr- unarsjúklingar sem krefjast miklu sérhæfari aðstöðu en þeirrar sem hægt er að veita þeim nú. — í dag er um 90% yfir- fylling á heimilinu miðað við kennslu- og þjónusturými, en um 40% yfirfylling miðað við svefnpláss, sagði Þórodd- ur. — Við núverandi aðstæð- ur er ekki hugsanlegt að veita vistmönnum þá þjón- ustu sem nauðsynleg verður að teljast. Með því að hópa saman vangefnu fólki á öll- um meðferðarstigum í yfir- fullt húsnæði án möguleika á deildarskiptingu eru öll fræðileg lögmál um uppeldi og þjálfun þessa öryrkjahóps fótum troðin. Með slíkri skip an er jafnframt lagt óhóflegt álag á starfslið stofnunarinn- ar er leiða kann til ýmis kon- ar árekstra innbyrðis í þess- um hópi og við vistmenn. Ennfremur kann við þvílíkar aðstæður að þróast með vist- mönnum ýmis konar hátt- erni og viðbrögð sem jafnvel í hópi afbrigðilegra einstak- linga eru óeðlileg. Að lokum benti Þóroddur á að Sólborg þjónaði öllu Norðurlandi frá Hrútafirði til Langaness og væri heimil- ið komið í algjört þrot með húsnæði. Eru 5 manns á bið- lista og 10 í viðbót sem gætu þurft á vistun að halda fyrir- varalítið. FJÖL8KYLDU- HEIMILIÐ LOFAR GÖÐU — Við kunnum bara svo vcl við okkur hérna. Þetta er allt cins og það á að vera. Ég sakna bara sjónvarpsins frá Sólborg. Þetta sagði einn af fjórum vistmönnum sem eru fluttir inn í nýja fjölskylduheimili Sólborgar að Oddeyrargötu 32, þegar blaðamönnum og fleiri gestum var boðið í heimsókn þangað fyrir skömmu. Ætlunin er, að smám sam- an flytji þangað 8—10 vist- menn, sem eru best sjálf- bjarga á Sólborg. Enn er ekki hægt að taka á móti svo stór- um hópi, þar sem viðgerðir standa yfir á húsinu. Bjarni Kristjánsson, forstöðumaður Sólborgar, sagði, að svo virt- ist sem vistfókið kynni mjög vel við sig á heimilinu og hefði það þegar sýnt merki þess, að því liði betur í nú- verandi umhverfi en í þrengslunum á Sólborg. Hér fær fólk betra tæki- færi til þess að lifa fjölskyldu lífi. Það er meiri tími að lifa fjölskydulífi. Það er til þess að leyfa fólkinu að hjálpa til við heimilis- haldið og sinna áhugamálum sínum. Við höfum nú þegar uppgötvað ýmsa nýja þætti í þessum hópi, sem ekki fengu Framhald á bls. 7. ' >••• V.'.'.v.-.'.VÍV * *V * Nýjar rcglur hafa verið settar um tímasókn í Mcnnlaskólan- um á Akureyri. Verður gefin sérstök cinkunn fyrir tíma- sókn og reiknast liún til aðal- cinkunar á stúdentsprófi. Þýðir þetta í raun og veru að framvegis cr mögulcgt að fella ncmanda á lélcgri tímasókn. Hver cr ástæðan fyrir þcssari nýjung í MA? TTyggvi Gíslason, skóla- meistari, svarar: Þetta er fyrst og fremst gert til þess að veita nemendum skólans aukið aðhald og bæta námsárangur þeirra. Námsár- angur í MA og öðrum mennta skólum hefur verið lélegur undanfarin ár og hefur það aukið áhugann fyrir því að veita nemendum aukið aðhald og lækkað raddirnar um frjálsa tímasókn. Úrslit prófa sl. ár segja sína sögu um þörf- ina á aðaldi. í þriðja bekk féllu nær 20% nemenda, í 4. bekk féllu 16% og í 5. bekk 18%. Er þetta margföld aukn- ing á fallprósentu frá því sem var fyrir fáum árum. En þessi ráðstöfun er ekki einungis til þess að auka að- haldið í skólanum, heldur er tilgangurinn einnig sá að gera skipulag á kennslu í skólan- um auðveldara. Þess má að lokum geta að tímasóknarskylda verður áfram í skólanum og hægt að víkja nemendum frá skóla fyr ir lélega tímasókn. HÍ Á vistheimilinu Sólborg dveljast nú 60 vistmenn. AKUREYRINGAR - NORÐLENDINGAR! Ódýrar Lundúnaferðir. Ferðaskrifstofa Akureyrar I I cSd HÚSBYGGJENDUR! Timbur í úrvali. - HAGSTÆTT VERÐ. BYGGINGAVÖRUVERSLUN TÖMASAR BJÖRNSSONAR H.F. Glerárgötu 34. — Sími 2-39-60.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.