Íslendingur - 03.03.1977, Síða 7
JAkOB 6. PÉTURSSOIM
fyrrverandi ritstjóri
ÖRFÁ MIIMIMIIMGARORÐ
Er ég á öldum ljósvakans
heyrði, að öð'lingsmaðurinn
Jakob Ó. Pétursson væri geng
inn, flugu í hug mér mörg
minningabrot frá blaða-
menns'kuárum mínum á Akur
eyri, einkum þó það, er gaf
sólarsýn í amstri dægranna.
Mjög ofarlega á því minning-
arblaði er nafn Jakobs Ó. Pét
ur'ssonar, en hann var ritstjóri
ís'lendings fyrstu árin er ég rit
stýrði Alþýðumanninum. Mér
var vel kunn ritsnilli Ja'kobs
og ást hans á íslenskri tungu
— og því er eigi að leyna —
að nokkur kvíði sótti að mér,
þá er að því kaemi að við skipt
umst á skoðunum var'ðandi
stjórnmál. Jakob þekkti ég
eigi persónulega áður og vissi
lítt hvern mann hann hafði að
geyma, en beinskeyttni hans
þá er hann beitti stílvopni er
hann lenti í orrahríð við and-
stæðinga var mér en'ginn
leyndardómur og sú stað-
reynd að hann var vígfimast-
ur þeirra er þá lögðu stund á
blaðamennsku á Akureyri.
Fljótlega flu'gu nokkrar
hnútur á millli okkar Jakobs
— en strax var mér Jéttir að
finna að Jakob var léttur í til-
svörum, glettinn og grómlaus
— mér fannst það mikil hug-
fró, þvi að sá stílsmáti var
mér hugstæðastur — og vona
ég að Alþýðumaðurinn beri
þess merki frá þeim tima.
FljótUega varð ég svo gæfu-
samur að kynnast Jakobi per-
sónulega — og þau kynni urðu
mér eigi vonbrigði og óhikað
játa ég það, að Jakob er sá
persónuleiki sem er mér hvað
hugstæðastur frá blaða-
mennskuárum mínum á Akur
eyri. Mér er engin launung á
því að fljótlega eftir að per-
sónuleg kynni okkar hófust
veitti Jakob mér oft drengi-
lega liðveiölu, sem ég mun
aldrei gleyma. Ég hafði í blað-
inu fastan eindáíik er ég
nefndi „Stakan dkkar“. Oft
reyndist mér mögur uppsker-
an á þeim akri, því að ærið
oft bárust fáar stökur, en
kvöld eitt hringdi Jakob í mig
og bauð mér stökur, sem ég
þáði með þökkum — og þetta
urðu ekki einu stökurnar, er
hann miðlaði mér — og mér
eru enn minnistæð orð hans,
þá er ég eitt sinn sótti vísur
til hans á ritstjómarskrifstofu
íslendings. „Ég hefi reynslu
af því, Sigurjón, hve erfitt er
á stundum að strita í hlaða-
mennsku, einn á báti, en þrátt
fyrir það megum við aldrei
byrgja sólarsýn í sálarhrói
Okkar.“ Egi hætti Jakob að
luma að mér stökum þótt
hann hætti ritstjórn og tók
við forstöðu Fasteignamats
r'íkisins — og víst var það
meðal við streitu að tylla sér
niður á ákrifstofu hans og líta
hina falslausu glettni í augum
hans — og hlýða á gamanmál.
svo mér gleymdist taugaslít-
andi auglýsingasöfnun, sem þó
var óumflýjanleg nauðsyn. Ég
nam hjartahlýju þessa gáfaða
manns og skilning á því að
mannsfcepnan er eigi gerð úr
steinsteypu eða stáli.
Þá er ég hripa upp þessi fá-
tæklegu kveðjuorð norður í
Grímsey minnist ég er við átt
um eitt sinn orðræður saman
um hið mannlega — að Jakob
minntist á Grímsey, en þar
var hann eitt sinn skólastjóri.
„Þar er gott að vera, bæði hið
fu'llkomna og breyska er fall-
egt og frjóvgast í fullkomleika
hins frumstæða lífs, þess lífs
sem við nú erum að glata — og
eyjan er griðasíaður þeirra er
vilja hugsa.“ Eitthvað á þessa
l'eið mælti Jakob — og eigi
óraði mig fyrir því þá að ég
ætti eftir að gegna hinu sama
starfi í eyjunni í norðri, er
Jalkob kallaði, griðland þeirra
er vilja hugsa — og eftir nær
5 vetra dvöl í Grímsey tek ég
heils hugar undir þau um-
mæii hans.
Að lókum, Jakob, þakka ég
þér fyrir liðin kynni og þakka
vil ég forsjóninni fyrir að leið
ir ok'kar lágu saman. Með frá-
fa'lli þínu hefur Akureyri að
baki séð mi'kilhæfum dreng-
skaparmanni. Heil er þökk
mín til þín — og ég bið guð
að blessa ástvini þína.
Sigurjón Jóhannsson.
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
lónaðardeild ■ Akureyri
ATVIIMNA
Viljum ráða nú þegar starfsfólk á skinnadeild
okkar að Óseyri 1, á dagvakt.
Uppl. gefur Ingólfur Ólafsson sími 2-19-00 (56).
Fataverksmiðjan Hekla.
Glerárgata 28 • Pósthólf 606 • Sími (96)21900
Jeppamenn
Fundur verður haldinn hjá ldúbbnum „4 X 4“ á
Akureyri að Þingvallastræti 14, (á móti sundlaug-
inni) föstudaginn 4. mars kl. 20.30.
Félagar mætið og takið nýja félaga með.
Allir velkomnir.
Stjórnin
Læknaritari
óskast
Á handlæknisdeild F. S. A. frá 1. apríl 1977.
Góð vélritunarkunnátta og góð móðurmálskunn-
átta eru skilyrði.
Æskilegt er að umsækjandi hafi æfingu í að skrifa
eftir segulbandi og helst einnig eitt norðurlanda-
mál og eða ensku eða þýsku.
Skriflegar umsóknir ásamt meðmælum og uppl.
um fyrri störf, sendist til ritara Gauta Arnþórs-
sonar, yfirlæluiis, Handlæknisdeildar F. S. A.,
sem einnig veitir uppl. um starfið í síma 22100.
Handlæknisdeild F. S. A.
STÓRSVIGSMÓT -
Framhald af bls. 2.
9 ára drengir: sek.
Ólafur Hilmarsson 86.7
Smá't'i Kristinsson 91.0
Valur Gautason 92.3
9 ára stúlkur: sek.
Katrín Pétursdóttir 115.2
Guðrún Jóna Magnúsd. 121.6
10 ára drengir: sek.
Björn Júlíusson 89.0
Jón Björnsson 91.2
Andri Teitsson 91.3
10 ára stúlkur: sek.
Anna María Malmquist 93.5
Signe Viðarsdóttir 94.4
Andrea Björnsdóttir 114.2
11—12 ára drengir: sek.
Er'ling Ingvason 109.9
Davíð Björnsson 112.7
Pálmi Pétursson 113.6
11—12 ára stúlkur: sek.
Hrefna Magnúsdóttir 115.4
Lena Hallgrímsdóttir 117.4
Ingibjörg Harðardóttir 123.7
Handbolti Þór — Fram
Framhald af bls. 2.
var staðan orðin 13-5 Þór í vil
og skoraði Þor'björn 9 af þeim
mörkum Þórs. En það sem eft
ir var hálfleiksins var ekki
heil brú í leik Þórsara, sem
virtust vera búnir að vinna
leikinn að eigin mati. Framar
ar söxuðu á for'skotið og í hálf
leik skildu liðin aðeins 2 mörk,
15-12 Þór í vil.
í síðari hálfleik komst Fram
síðan yfir, en á síðustu mín-
útu leiksins var staðan jöfn,
21-21. Þórsarar fengu dæmt
vítakast, sem þeir misnotuðu
og Framarar náðu boltanum
og skoruðu sigur'm.arkið, loka-
staðan 22-21 Fram í vil.
Þorbjörn Jensson átti stór-
leik með Þórsliðinu og skor-
aði 13 mörk. Virtist hann geta
skorað þegar honum datt það
í hug. Mörk Þórs: Þorbj. 13,
Árni 3, Einar 2, og Óskar,
Ragnar og Sigtryggur 1 mark
hver.
Leilkinn dæmdu Ólafur Har
aldsson og Stefán Arnaldsson
fremur illa. AS
IJTSALA - LTSALA
Útsalan verður á gamla
lagernum, notið tækifærið
og gerið góð kaup. .
Selt verður meðal annars
Teppi- Teppabútar
Gluggatjöíd - Gluggatjaldabútar
Terylene - Terylenebútar
Áklæði - Áklæðisbútar
Útsala hefst á Gefjunarvörum mánudag
7. mars og stendur til 11. mars
af útsölunni í Gefjun.
Lllarverksmiðjan
GEFJtlM
ÍSLENDINGUR — 7