Íslendingur


Íslendingur - 27.03.1979, Qupperneq 5

Íslendingur - 27.03.1979, Qupperneq 5
ALDA 4. frumsýnir nýtf leikvit í kvöld lóttir,SigurðurBlöndal, Friðrik Rafnsson, Kristinn G. Kristinsson og Ing- og búninga eða við tónlistina. Þetta mjög vel við allan hópin og ég verð fólk hefurunniðmikiðoggott starf. að hrósa krökkunum fyrir dugnað Annars hefur samstarfið gengið og áhuga, sagði Kristín að lokum. Þau tilheyra leikhópnum; Birna Gunnlaugsdóttir, Hjörleifur Hjart- arson, Hólmkell Hreinsson og Sif Konráðsdóttir. -Ljósm.; Gunnar S. Ingimarsson og tók hann einnig aðrar myndir hér í opnunni, þar sem annað er ekki tilgreint. Alvarlegur grunntónn Og verkið vekur fólk til umhugsunar, segja félagar úr leikhópnum Við litum við í Spítalavegi 17, öðru nafni „Betlehem", í heim- sókn til þeirra skötuhjúa Birnu Gúnnlaugsdóttur, Hjörleifs Hjartarsonar, Hólmkelis Hreins sonar og Sifar Koilráðsdóttur. Þau eru öll í leikhópnum og standa í ströngu á fjölum 1 kvöld. ' Fyrst voru þau spurð hvað þeim findist um leikritið? Það er mjög gott og gaman hvað margir geta tekið þátt í sýningunni. Éinnig er jákvætt hve alvarlegur grunntónninn er og að verkið vekur fólk til umhugsunar. Höfðar efnið til ykkar? Já, tvímælalaust, og þáð var líka kominn tími tíl að féifa þetta vandamál, börnin í dag. Að vísu er myndin sem dregin er upp ýkt, en hún á sér þó hliðstæður í raunveruleikanum. En hvernig hefur samvinna - við leikstjóra verið? Með ágætum, hún setur leik- ritið skemmtilega á sviðog hefur góð tök á hópnum. Einnighefur það mikið að segja að hún heur starfað með LMA áður, þannig að hún hefur reynslu af að starfa með óreyndum leikurum. Er starfsemi leikfélagsins ein- göngu bundin við uppsetningu á einu stóru stykki á ári? Nei, það er nú síður en svo. Undanfarin ár hefur félagið séð um skemmtidagskrá 1. desem- ber. Nú tvö síðustu árin hefur hún verið í formi nokkurskonar „revíu“, sem félagsmenn hafa samið og æft að öllu leyti sjálfir. Einnig hafa félagar LMA starfað í samráði bókmennta- félag skólans og þá aðalega með upplestir ljóða og bókmennta- kynningum. Það nýmæli var tekið upp hjá leikfélaginu í vetur að gangast fyrir nokkurskonar leiklistar- námskeiði. Leiðbeinandin var Viðar Eggertsson og binda menn vönri við áframhald á slíkri starfsemi. Það kom fram í viðtalinu við krakkana, að flestir þeir sem starfa að félagslíft i skólanum hafna í leikfélaginu ög mæðir þvi margt annað á þessu fólki en LM A og var þó varla á bætandi! EINAR KRISTJÁNSSON. Hann leikur Tarsan í sýning- unni. Er hlutverkið erfitt? Nei. Finnurðu þig í hlutverkinu? Absolutt mín týpa, fær útrás við þetta. hvernig er með tjáskipti ykkar Jane? Gróf en santt Hún tók líka þátt í sýningu L.M.A. i fyrra, Hlaupvídd sex. Við spurðum hana hver væri helsti munurinn á þessum tveimur sýningum? Leikritið sjálfter betra, einnigersýningin fjölþættari og skemmtilegri. MARGRET Nú er tímafrekt að starfa með L.M.A., af hverju leggja krakkarnir þetta á sig? Það eru nú ekki eingöngu hæfileikarnir sem ráða því, heldur það að þetta er skemmtilegt hópstarf qg margt lærist af þessu. Ánægjan vegur upp á móti tímanum og vinnunni sem í 'A for SIGMUNDUR RUNARSSON. Er sýningin ekki erfið? Jú, það er hún, margir hlutir eru nær eingöngu túlkaðir nteð hreyf- ingum og áríðandi að líkamleg einbeiting sé jafnmikil og sú andlega allan tímann. KLAUSEN. Hann er einn af hljómlistar- monnunum og spurðum við hann hvernig honum fyndist tónlistin? Hún cr leikhúsmúsik og ber að taka hana sem slíka. Það er komið víða við, disco punk, þjóðlagastíll oíl. og hefur tekist vel að samræma hana leiknum. INGUN HAFSTAÐ. Hún leikur Mjallhvít. Hvernig gengur að samræma námið og það að starfa með L.M.A.? Það er mjög erfitt og sérstaklega nú þegar llða tekur að sýningum. En það er þess virði. Til Spánarfara K.A. Tveim dögum áður en 1. eildar liðið KA í knattspyrnu átti að leika sinn síðasa leik á keppnis- tímabilinu s.l. sumar, við knatt- spyrnuflagið Þrótt, hafði meiri- hluti liðsmanna pantað sér far til Spánar í sumarfrí. Mér er kunnugt um, að ekkert loforð lá þá fyrir frá Þrótturum um að þeir vildu færa leikinn fram og spila nokkru fyrr, enda ekki eðlilegt, því þá gátu þeir ekki vitað hvernig staða þeirra yrði í 1. deildinni, þegar komið væri fram í byrjun september. Ekki var heldur hugsað um, að ef til vill þyrfti að leika aukaleik, þar sem á gæti oltið hvort KA héldi sæti sínu í deildinni, eða ekki og þó er það, eins og allir vita, gífulegt fjárhagsspursmál hvort leikið er í 1. eða 2. deild. Nú fór það svo, þrátt fyrir allt, að þróttarar féllust á að flýta leiknum og okkar menn flýttu sér til Spánar, en hvað átti •að gera ef leika þyrfti aukaleik ???? Jú spánarfararnir áttu greið svör við því (en tæplega eins gáfuleg) þeir ætluðu nefnilega að æfa út á Spáni. Já svo einfalt var það. Að vísu hafa lið eins og Arsenal verið í æfingabúðum á Spáni, en trúlega er að betri stjórn og regla sé þar á hlutunum en hjá landanum. Breiðablik gerði svo það ótrúlega að vinna F.H. og færði KA áframhaldandi sæti í 1. deild á silfurfati og hafa æfingar þá eflaust fallið niður á Spáni. Að sjálfsögðu þurfa menn að fá frí, en ef menn eru að berjast fyrir sitt félag í alvöru, þá á ekkert elsku EG að komast að þar á meðan. Haldið þið KA menn, að menn eins og Tómas Steingrímsson og Helgi Schiöt hefðu farið af landi burt ef nokkur vafi léki á því að það hefði getað orðið KA til skaða?? Nei drengir mínir, slíkt hefði aldrei hvarflað að þeim, því þeir lögðu allan sinn hug og orku í að berjast fyrir KA og aðeins á þann hátt er hægt að ná árangri. En kæruleyið er ekki bara hjá leikmönnum KA því fyrir nokkru síðan var hér á ferð í Reykjavík einn forustumaður í knattspyrnudeild KA hann hringdi í mig á laugardags- kvöldi og vildi fá að tala við mig um að KA klúbburinn í Reykja vík, sem ég er formaður fyrir, styddi deildina. Mér var það mikil ánægja að taka þátt í slíkri umræðu og fá tækifæri til að hjálpa KA. Tími var ákveðin á skrifstofu minni. Ég mætti snemma, bjó til kaffi, og beið eftir forustumann- inum, en hann lét aldrei sjá sig. Síðar um daginn hringdi hann heim til mín og bað mig afsökunar á því að hann hefði GLEYMT að koma. Með öðrum orðum hann GLEYMDI KA. Hverju má búast við af skipshöfninni ef skipstjórinn er svona??????? Það vekur líka athygli mína að þrátt fyrir að meira en ár sé liðið síðan KA átti 50 ára afmæli, þá er ennþá ekkert afmælisrit komið út. A virkilega að trúa því, að framtaksleysið sé svo algjört að ekki sé hægt að koma út veglegu afmælisriti???? KA klúbburinn hefir hreinlega beðið eftir því að FÁ að skaffa auglýsingar í fyrirhugað afmælisrit. Til þess að gefa stjórn KA fyrirmynd af því hvernig slíkt rit á að líta út, þá mun ég senda stjórninni eitt eintak af 70 ára afmælisriti knattspyrnufélagsins Víkings. Nú skal ég geta þess að þótt .ég sé formaður KA klúbbsins í Reykjavík, þá skrifa ég þessa grein alls ekki fyrir hönd klúbbsins heldur sem prívat persóna og vegna þess að ég finn að það má gera miklu meira fyrir félagið en gert er, en það verður ekki gert nema með eldlegum áhuga og dugnaði. Tómas og Helgi eru ennþá í fullu fjöri, spyrjið þá um fyrri tíma sögu KA og þá vitið þið hvernig áframhaldið á að vera. Ég held að mér sé óhætt að segja það fyrir hönd meðlima KA klúbbsins í Reykjavík, að þótt langt sé um liðið síðan við kepptum fyrir KA eða störf- uðum á annan hátt í félaginu á Akureyri, þá þyki okkur alltaf jafn vænt um félagið og erum alltaf reiðubúin til að rétta því hjálparhönd, en þrátt fyrir það siculið þið KA menn í hvaða félagsdeild sem þið eruð muna hið fornkveðna: „Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir“. Sæmundur Óskarsson form. K.A. klúbbsins í Rvk. Gáfu heilalínurita Laugardaginn 10. þ.m. afhentu Kiwanismenn á Ákureyri og nágreni Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri heilalínurita, en hann var keyptur fyrir ágóða af sölu K - lykilsins á s.l. ári. Tækið mun koma í góðar þarfír á sjúkrahúsinu m.a. veita aukið öryggi í meðferð þeirra sem hafa orðið fyrir höfðumeiðslum. Kiwanismenn á Akureyri fengu 2 milljónir í sinn hlut til tækjakaupa fyrir geðdeild Fjórðungssjúkrahússins en eftir að samráð hafði verið haft við lækna á sjúkrahúsinu var ákveðið að kaupa tæki sem hentaði sem flestum deildum. Það kom fram er Kiwanis- menn afhentu tækið að það kostaði 7 milljónir króna en norðlenskir Kiwanismenn lögðu sjálfir fram 5 milljónir svo gjörin mætti vera veglegri. ÍSLENDINGUR - 5

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.