Íslendingur


Íslendingur - 14.07.1983, Qupperneq 3

Íslendingur - 14.07.1983, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1983 3$(cnáinður 3 Rafmagnið fór oftast á Norðurlandi eystra I engum landshluta urðu jafn oft bilanir á rafmagnslínum árið 1982 og á Norðurlandi eystra. Alls urðu bilanir af ýmsu tæi 17 sinnum í samtals 181 og hálfa klukkustund. Lengst stóð bilun í 20 klukku- stundir, þegar Langaneslína datt út, vegna þess að staur brotnaði í Eiðisskarði. Aðalástæður bil- ana voru helztar þær, að staurar brotnuðu, lína slitnaði, rofi brann, samsláttur varð eða þá að ísing og selta ollu bilun. Aðeins einn landshluti, Austurland, var rafmagnslaus lengur en Norðurland eystra í fyrra eða í 198 klukkustundir, þ.e. 16 og hálfri klukkustund lengur. Bilanir þar voru þó aðeins fjórar en flestar nokkuð myndarlegar. Til dæmis brotn- uðu 15 staurar á einu bretti við Kvísker í nóvember í fyrra. Eining segir upp öllum samningum A almennum félagsfundi . Einingu í fyrrakvöld voru eftir- farandi tvær tillögur samþykkt- ar samhljóða:_____________ Nýju lífi hleypt í Léttsteypuna A laugardag var aðalfundur Léttsteypunnar í Mývatnssveit, en það fyrirtæki hefur um árabil framleitt létta milliveggjasteina og hleðslusteina úr vikri og hraungrýti, sem nóg er af þar í sveit. Framleiðslan hefur verið nokkuð slitrótt en nú er meiningin að hleypa nýju lífi i starfsemina og endurskipuleggja hana með nýjum framleiðslu- tegundum og mun víðtækari söluaðferðum, m.a. með átaki í sölu fyrir sunnan og vestan. Haraldur Ásgeirsson, forstjóri R.annsóknastofnunar bygginga- iðnaðarins, var á fundinum og flutti erindi. Stjórnarformaður er Jón Illugason, Reykjáhlíð. Almennur félagsfundur Verkalýðsfélagsins Einingar, haldinn ll.júlí 1983, samþykkir að segja upp aðalkjarasamningi félagsins, þannig að hann falli úr gildi 31. ágúst í samræmi við uppsagnarákvæði samningsins. Jafnframt samþykktrfundurinn að segja upp öllum sérkjara- samningum félagsins frá og með sama tíma eða strax og upp- sagnarákvæði þeirra leyfa. Fundurinn felur stjórn félags- ins að tilkynna vinnuveitendum uppsögn samninganna og jafn- framt að fara með umboð til viðræðna um nýja samninga, þar til annað kynni að verða ákveðið". Þá var einnig samþykkt eftir- farandi: „Almennur félagsfundur, haldinn í Verkalýðsfélaginu Einingu mánudaginn 11. júlí 1983, varar við þeirri alvarlegu þróun, sem orðið hefur í atvinnumálum á Eyjafjarðar- svæðinu á síðustu árum, en þar er atvinnuleysi nú. meira en á öðrum stöðum á landinu* (INNAN SVICíA) Amerískur ferðalangur, blaða- maður að starfi, var á ferð í bænum um daginn. Eitt af því fyrsta sem hann gerði var að kíkja í bæjarblöðin og þóttu honum þetta sómablöð að sjá fyrir ekki stærri bæ. Þó hafði hann sitt hvað út á „bænda- blaðið“ (Dag) að setja. Einkum þótti honum einkennilegt, að forystuérein í Degi skyldi merkt SÓB. Á amerísku stendur nrfni- lega skammstöfunin SOB fyrir „son of a bitch“, eða tíkar- sonur. Þessi SÓB mun víst vera Sigurður Óli Brynjólfsson, ágætur maður að sögn, þótt sumum þyki hann vera ótta- legur SOB. ÍÞRÖTTIR Leikur KA og Reynis var hörmung KA-merm þurfa að taka sig verulega á efþeir œtla í 1. deild KA og Reynir, Sandgerði, gerðu jafntefli 1-1 á Akureyrar- velli í gærkvöldi. Með sigri í þessum leik hefðu KA-menn komist í efsta sæti 2. deildar. En það var af og frá að leikmenn hefðu áhuga á því. Þeir spiluðu á hálfri ferð allan tímann og varla það. En snúum okkur að leiknum. KA-menn fengu fyrsta færið á 12. mínútu er Ormar átti þrumu skot frá vítateig, en markmaður Reynis varði glæsilega. Fyrri hálfleikur var mjög slakur og var mest um miðjuhnoð og lítið um samspil og góð færi. Á 45. mínútu fyrri hálfleiks fékk þó Tómas, hægri bakvörður KA, eitt besta færi, sem undirritaður hefur séð. Hann fékk boltann fyrir innan markteig og stóð fyrir opnu marki, en mjög slakt skot hans fór framhjá. Á 5. mínútu síðari hálfleiks náðu KA-menn góðri sókn upp vinstri vænginn, Ásbjörn Björns son var með boltann við enda- línu, lék þar laglega á einn varnarmann Reynis og gaf góð- an bolta fyrir markið, þar var Hinrik Þórhallsson á réttum stað og potaði boltanum i markið. Á 25. mínútu opnaðist vörn KA illa og Reynismenn löbb- uðu í gegn eins og ekkert væri auðveldara og náðu að jafna Þórsarar bökuðu Skagamenn syðra Þórsarar gerðu góða ferð til Akraness síðast liðin laugar- dag, er þeir unnu Skagamenn mjög sanngjart 2-0. Strákarnir úr Þór byrjuðu þennan leik af fullum krafti, og gáfu Skaga- mönnum aldrei frið til að byggja upp spil. Á 17. mínútu skoruðu Þórs- arar fyrra mark sitt og skoraði Halldór Áskelsson markið með föstu skoti, eftir góðan undirbúning hjá Helga Bents- syni. Skagamenn voru meira með boltann í fyrri hálfleik, en náðu aldrei að skapa sér góð færi, en það gerður þórsarar og á síðustu mínútunni í fyrri hálfleik fengu þeir aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig. Guðjón Guðmundssou tók spyrnuna og skoraði með þrumuskoti. í síðari hálfleik börðust Þórs- arar eins og ljón til að halda fengnum hlut og voru nær því að skora sitt 3ja mark, en að Skagamenn að komast á blað. Bestu menn Þórs í þessum leik voru Halldór Áskelsson og Guðjón Guðmundsson, en liðið í heild átti góðan dag. með góðu skallamarki frá Sig- urði Stefánssyni. Á 35. mínútu fékk Jóhann Jakobsson, KA, dauðafæri er hann stóð einn og óvaldaður á vítapunkti en skot hans fór beint í fang mark- manns Reynis. K A-liðið átti í heild afar slak- an dag og mega þeir taka sig mikið á ef þeir ætla sér sæti í fyrstu deild. G.B. KA vann Njarðvík KA-menn unnu Njarðvík 3-2 á Akureyrarvelli síðastliðinn föstudag. Hinrik Þórhallsson skoraði 2 af mörkum KA, en Friðfinnur Hermannsson eitt. Mörk Njarðvík skoruðu Jón Halldórsson og Guðmundur V. Sigurðsson. Jafntefli á Húsavík Völsungar áttu allan leikinn á móti Einherja frá Vopnafirði, á Húsavík síðastliðinn föstu- dag, en máttu sætta sig við jafntefli 1-1. Mark Völsunga skoraði Kristján Kristjánsson en Vigfús Davíðsson jafnaði fyrir Einherja. Næstu leikir: Þór-KR á föstudag kl. 20 á Akureyrarvelli Fylkir-KA á sunnudag Vandi ríkisstjórnarinnar Það blandast varla nokkrum hugur um það, að ríkisstjórnin sem mynduð var í maí lok tók við geysierfiðum vandamálum til úrlausnar. Hún tók við 100% verðbólgu, ört vaxandi skuldasöfnun erlendis, gap- andi eyðu í fjárlög og samdrætti í fiskafla. Hún tók við því erfðaloforði íslenskra stjórn- málamanna að haldið skyldi uppi fullri atvinnu hvað sem öllum ytri og innri aðstæðum liði, loforði sem næstum er óhugsandi að standa við hvort sem menn ætla sér að halda áfram verðbólguvitleysunni eða lifa við samdrátt í útflutningi, neyslu og þjónustu án þess að auka erlenda skuldasöfnun. Sú aðferð, sem ríkisstjórnin greip til, að reyna að rjúfa víta- hring verðbólgunnar með einni skurðaðgerð er víst vel þekkt og reyndar sú eina, sem talin er líkleg til árangurs. Hins vegar er það háð ýmsum forsendum hvort þessi tilraun, því að vissulega er þetta aðeins til- raun, tekst eða ekki. Það er eftir að leysa ýmis vandamál sem hvert um sig er það stórt, að það getur riðið ríkisstjórn- inni að fullu. I fyrsta lagi eru vandamál sjávarútvegsins geigvænleg og það er ekki sjáanlegt hvernig þau verða leyst a.m.k. ekki með því að halda genginu blýföstu. I öðru lagi er engin leið að sjá hvernig endar nást saman á fjárlögum þessa árs, hvað þá næsta, án þess að taka meiri lán. í þriðja lagi er það allsendis óvíst hvort það tekst að koma verðbólgunni eitthvað nálægt því niður á það stig, sem Þjóð- hagsstofnun hefur spáð og búið er að hampa framan í Björn Dagbjartsson launþega. Það er alveg sama þó að þeir trúi því ekki, að þessarspárstandist. Þær verða hermdar uppá ríkisstjórnina sem loforð. í framhaldi af þessu er svo í fjórða lagi sú spurning hvort verkalýðshreyfingin lætur til skarar skríða á einhvern hátt. Með ýmsu móti verður reynt að neyða ríkisstjórnina til undanhalds án jæss að svo- kallaðir verkalýðsforingjar verði sakaðir beint um óábyrga afstöðu eða tilraun til að skapa atvinnuleysi. Sjálfsagt má finna fleiri stór- vandamál sem gætu orðið banabitar þessarar ríkisstjórn- ar. Það er auðvitað lítil reynd komin á stjórnarsamstarfið eða framkvæmd stjórnarstefn- unnar á 6 vikum. En víst er um það að fylgst verður grannt með framvindunni næstu vikurnar. Menn munu fylgjast með verðbólgustiginu og gengisbreytingum betur en áður vegna minnkandi fjár- ráða. Af sömu ástæðu verða fjölskyldur og byggðalög áþreifanlegar vör við atvinnu- leysi og minnkandi yfirvinnu. Sérhver tilslökun af hálfu stjórnvalda eða undansláttur frá ákvæðum bráðabirgðalag- anna í vor verður ákaflega illa séð af mörgum stuðnings- mönnum stjórnarinnar. Það verður. fylgst með því hvort dagpeningar opinberra starfs- manna verða hækkaðir um- fram 8% þrátt fyrir „ákvörðun“ launadeildar. Það verður fylgzt með því hvernig samið verður um sérstakar álags- greiðslur til starfsmanna við undirbúning Blönduvirkjunar. Og það verður alveg sérstak- lega tekið eftir hækkunum hjá Pósti og síma, hjá hitaveitum og orkuveitum og hækkunum landbúnaðarafurða. Það verð- ur erfitt viðfangsefni að koma 1 veg fyrir eftirtektarverðar hækkanir á þessum fram- færsluþáttum. Mesti vandi ríkisstjórnar- innar er þó líklega sá, að halda góðu sambandi við fólkið í landinu þrátt fyrir harðar efna- hagsaðgerðir og versnandi lífs- kjör. Þar er markviss og yfir- veguð upplýsingamiðlun snar þáttur. Ef þetta mistekst þá gleymist fljótt að þessi stjórn sé eitthvað sérstaklega STERK og að flokkarnir hafi sýnt einhverja feikilega ábyrgð og fórn að leggja til ráðherra í stólana.

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.