Íslendingur


Íslendingur - 24.05.1984, Síða 2

Íslendingur - 24.05.1984, Síða 2
3$lcwlinaur FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1984 ROBERTSON DAVIES:.... THE DEPTFORD TRILOGY... Fifth Business The Manticore World og Wonders. I’enguin Books 1983.... í smábænum Deptford í Kanada vill svo slysalega til, að ófrísk kona fær snjókúlu í hnakkann og reyndist það afdrifaríkur atburó- ur. Áttatíu dögum fyrir tímann fæóist henni sonur. Faðirinn er prestur sem ekki má vamm sitt vita og frúin tapar sinninu hægt og hægt og leggst með flækingi í mýrlendinu við bæinn. Sem bein afleiðing af þessu háttalagi konu sinnar kastar presturinn hemp- unni og bindur konuna svo hún lilaupi ekki út. Sonurinn Paul strýkur að heiman og á fyrir honum að liggja að verða mikils- virtur töframaður. Sá sem kastaði snjókúlunni var Boy Staunton. Hann er læknissonur, herst í fyrri heims- styrjöldinni kemur heim og kvænist draumadísinni Leolu. Hann auögast skjótt og kynnist kónginum yfir Breska heims- veldinu. Æskuvini sínum, Dunstahle Ramsey, reynist hann vel, hann fjárfestir fyrir hann í stöðugum fyrirtækjum. Þeir komast háðir klakklaust í gegn- um kreppuna. Ramsey harðist í fyrri heims- styrjöldinni og fékk æðstu orðu heimsveldisins en ekki fær hann konuna sem hann þráir, nefni- lega Leolu. Hann leggurstund á siigu og tekur að kenna. Áhuga- maður er hann um mystík og hiifundur nokkurra hóka um það efni. Snjókúlunni var ætlað að lenda í honum. Og Boy Staunton deyr með vofeiflegum hætti. Bifreið hans finnst undan hryggju og er lík hans illa útlítandi þar en í munninum er egglaga steinn. Steinninn sá hafði verið í snjó- kúlunni sem kom fæðingu Paul Dempsters af stað. The Deptford Trilogy inni- heldur þrjár skýrslur. Sú fyrsta er um uppvöxt og starf Ramseys og Stauntons. Þá kemur önnur sem er fyrir sálfræðing í Surich gerð og í þeirri þriðju segir töfra- maðurinn Magnus Eisengrim frá því sem á daga hans dreif frá því hann strauk að heiman með Ijölleikahúsi þar til hann kynnist manninum sem orsakaði það að hann fæddist fyrir timann og sturlun móður hans. En hver drap Boy Staunton? Allt snýst í kringum það. Höfundur þessa listilega ofna þríleiks er Kanadískur. Þekktast- ur er hann fyrir þetta verk. en að auki er hann liðtækt leikrita- skáld. Þessar bækur þrjár. Fifth Business. The Manticor og World of Wonders komu út 1970. 1972 og 1975. Þetta er fyrsta prentun verksins í einu og sama bindinu. Veiðitíminn fer að byrja Sportveiðafæraúrvalid hefur aldrei verið jafn stórkostlegt. Verð við allra hæfi. Lítiö inn meðan úrvalið er mest, það borgar sig. FUNDARTÍMAR AA-SAMTAKANNA Mánjud. . kl. 21.00 Þriðjud . kl. 21.00 Miðvikud . kl. 12.00 Fimmtud . kl. 21.00 Föstud . kl. 12.00 Föstud . kl. 21.00 Laugard . kl. 14.00 Laugard . kl. 16.00 Sunnud . kl. 10.30 Þriðjudagsfundir eru pontufundir. Annan og siðasta fimmtudag i hverjum mánuði er fundur. opinn pontu- Laugardagsfundir kl. 14.00 eru kvennafundir. Blaðburð arbörn vantar á Eyrina friLLITSSEMI y-ALLRA HAGUR Opið á laugardögum kl. 10-12. Eyfjörð Hjalteyrargötu 4 sími 22275 Starf ritstjóra íslendings er laust til umsóknar. Nánari upplýsingar veitir formaöur blaöstjórnar Stefán Sigtryggsson í síma 24881. Umsóknarfrestur er til 30. maí 1984. Stjórn íslendings. Skrifstofuvélar hf. og Bókval sf. sýna helstu nýjungar í skrifstofutækjum aö Hótel KEA 25. og 26. maí. Sýningin veröur opin frá kl. 10 til 18 báöa dagana. Umboð Akureyri 3ók^a| . V C»*. 'TsS' SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. 'vSOSSr HvertUgötu 53. Rvk. í tilefni af opnun nýs sýningarsalar fyrir nýja og notaða bíla í Skála við Laufásgötu, höldum við dagana 26. og 27. maí n.k. sýningu á nýjum bílum frá FORD, SUZUKI og MAZDA. Sýnum m.a. í fyrsta skipti á Akureyri hinn V-þýska Ford Sierra og Suzuki SA 310 frá Japan. Þá sýnum við nýjar gerðir af Ford Escort og Ford Fiesta, einnig Mazda 929 og Mazda 626 disel o.fl. Bílaslan hf. - BSA verkstæði Strandgötu 53 og Skála v/Laufásgötu. - Sími 21666 og 26301 Afmœlishappdrœtti Sjálfstœðisflokksins Vinsamlegast gerið skil é heimsendum happdrættismiðum. Skrifstofan er opin frá kl. 10.00~16.00 alla virka daga.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.