Íslendingur - 24.05.1984, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1984
3$lcuáin0ur
3
Golfrnót
um helgina
t dag, fimmtudag, er svokallað
„videomót” hjá Golfklúbbi
Akureyrar. Spilaðar verða 9
holur m. forgjöf og verður ræst
út milli kl. 16 og 18. Mótið er
haldið í því skyni að fjármagna
kaup klúbbsins á video- og sjón-
varpstæki, sem klúbburinn hefur
nýlega eignast. Á morgun kl. 9
hefst „four ball-best ball” keppni
og leika þar saman tveir og tveir.
Leikið verður með 3/4 forgjöf. Á
sunnudag kl. 13 verður svo
fyrsta drengjamót sumarsins.
Leiknar verða 18 holur með
fullri forgjöf. Má þar búast við
hörkukeppni þar sem áhugi
yngri kynslóðarinnar á golf-
íþróttinni fer sívaxandi. Þess má
geta að Ferðaskrifstofa
Akureyrar gefur vegleg verðlaun
í mótið.
Reykingalaust
innanlandsflug
Nú hefur verið ákveðið að frá og
með gildistöku sumaráætlunar
20. maí n.k. verði ekki heimiiaðar
reykingar í innanlandsflugi Flug-
leiða. Þessi ákvörðun var tekin
eftir að útkoma i skoðanakönn-
un, sem félagið framkvæmdi dag-
ana 1. til 19. apríl, varð kunn. Af
þeim sem tóku afstöðu voru
74,9% á móti reykingum í flug-
vélum en 25,1% meðmæltir.
Á því tímabili sem skoðana-
könnunin stóð yfir voru fluttir
5.579 farþegar í þeim ferðum
sem könnunin náði til. Afstöðu
tóku 4.389 eða 78,7%. Tekið skal
fram að í þessari farþegatölu eru
farþegar frá 2ja ára aldri en þar
sem könnunin náði aðeins til
þeirra er náð höfðu 15 ára aldri
má ætla a svörunin haft verið
mun betri en hlutfallstölur sýna.
Þátttakendum í könnuninni um
reykingar var gefmn kostur á að
skýra afstöðu sína nánar. Þeir
sem voru andvígir reykingum
sögðu m.a. Við eigum rétt á
ómenguðu lofti. Reykmettað loft
hefur í för með sér meiri van-
líðan fyrir þá sem eru flugveikir,
aðrir tilgreindu hugsanlega eld-
hættu í flugvélum. Þá var einnig
nefnt að leiðir innanlands væru
stuttar og engum ætti að vera
vorkun að vera reyklaus meðan
á þeim stutta flugtíma stendur.
Tölvunámskeið á Akureyri
Grunnnámskeið á tölvur. | BASIC námskeið
Þetta er átján kennslustunda námskeið Þetta er átján kennslustunda námskeið
í tölvufræðum og notkun tölva. í forritunarmáJinu BASIC.
Námse&í: Giundvallarhugtök Stjómtæki, minnið og jaðartækin Forritunamiál almennt Fomtunarmálið BASIC Stýrikerfi og vélamál Tölvustýrð tæki og tölvur í framtíðinni Einföld viðskiptaforrit Tölvur í íslensku atvinnúlífi Notkun tilbúinna forrita Námsdhi: Almennt um fonitunarmál Flæðirit BASIC skipanir Stærðfræðileg föll Töflugerð Teiknun súlurita o.fl. Tæknilegir útreikningar Viðskiptaforrit Notkun tilbúinna forrita
Leiðbeinendur: Leiðbeoiendun
Grímur Friðgeirsson tæknifræðingur, Gylfi Gunnarsson kennari. Grímur Friðgeirsson tæknifræðingur, Gylfi Gunnarsson kennari.
luni og staðun 24., 25. og26. maí kl. 19.15-22.15 í Bamaskóla Akureyrar. Námskeiðsgjald er kr. 2.500,- Táni og staður 24., 25. og 26. maí kl. 16-19 í Bamaskóla Akureyrar. Námskeiðsgjald er kr. 2.500,-
APPI.E-WRl I FR ritvinnsla: 12 kennslustunda námskeið í APPLE-WRTTER ritvinnslu MLTnPI.AN-áætianagerö: 12 kennslustunda námskeið í áætlanagerð.
Iæiðbeinandi: Leiðbeinandi:
Grímur Friðgeirsson tæknifræðingur. Gylfi Gunnarsson kennari.
Innritun fer fram á eftirfarandi stöðum:
Hljómver sími 23626 og í Skrifstofuvali sími 25004.
í lok námskeiða vera afhent viðurkenningarskírteini fyrir þátttöku.
Tölvufrœðslan s/f
Ármúla 36, Reykjavík
Frá Ferðafélagi Akureyrar. —
Farið verður til Hríseyjar laug-
ardaginn 26. maí. Leiðsögu-
maður í eyjunni verður Björn
Björnsson. Lagt af stað kl. 8.30
f.h. frá Skipagötu 12. Áríðandi
er að tilkynna þátttöku á skrif-
stofu F.F.A. föstudaginn 25.
maí kl. 18-19 í síma 22720 til
þess að hægt sé að tryggja öllum
bílfar út á Árskógssand.
Sunnudaginn 27. maí verður
farin létt gönguferð frá Steins-
skarði á Vaðlaheiði út Hrossa-
dal og komið niður í Víkur-
skarð. Lagt af stað kl. 10 f.h.
Tilkynna þarf þátttöku föstu-
daginn 25. maí kl. 18-19.
Ferðakynning F.F.A. á sumar-
ferðum félagsins í ár verður að
Laugarborg fimmtudaginn 31.
maí kl. 8.30 e.h. Nánar auglýst í
næstu viku.
Ferðanefnd.
A ög: LÝSIÐÍ
1 jte. ttttlttðl
. rr) ó?í_
?í 'k i cx cfO, r 'hnpi.l 1
Lýsing íbúðar
Raðhúsið er við Vestursíðu 6, Akureyri, og er
146z á tveim hæðum. Neðri hæð ca. 69 m2 með
bílgeymslu, aðalinngangi, snyrtingum, gufu-
baði og geymslu. Efri hæð 77 m2 með stofu,
eldhúsi, snyrtingu, herbergi, hjónaherbergi
ásamt litlum svölum. Hægt er að ganga af efri
hæð út á suðurlóð. Teiknað er sólhús með
íbúðunum sem möguleiki og leyfi fyrir
kaupendur til að byggja.
SS Byggir sf. hefur hafið byggingu
á sex íbúða raðhúsi að Vestursíðu 6
Áætlað lán Húsnæöismálastjórnar um áramót:
Einstaklingar
2-4ra manna fjöisk 649 þús.
6-6 manna fjölsk 759 þús.
7 manna eða fleiri
íbúðirnar verða afhentar fokheldar með útihurðum, pússaðar að utan,
frágengið þak og þakskegg, með steyptum stéttum, malbikuðum bílastæðum
og innkeyrslu. Lóð grófjöfnuð.
Áætlaður afhendingartími fokhelt: 1. des. ’84 -1. júlí ’85.
Verð íbúðar 1. apríl 1984 ca. 1.225 þús.
Allar nánari upplýsingar veita Heimir og Sigurður á verkstæði S.S. Byggis s.f.
sími 96-26277 Draupnisgötu 7c. Heimasímar: Sigurður 96-24719, Heimir 96-23956.
Teikningar
fyrirliggjandi
á verkstæði.
byggir sf.
Sigurður- Heimir.