Íslendingur - Ísafold - 19.03.1969, Síða 5
ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD — MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1969
) DRYGJA TEKJURIMAR!”
ósvipaða skáphurð í stássstofu,
og dregur út skúffu með tíst-
andi ungum, nýskriðnum úr
eggjunum. Þarna eru þrjár út-
ungunarvélar, sem geyma egg-
in við ákveðið hitastig í viku.
Eftir þann tíma eru eggin lýst
og ófrjó egg tekin úr. Afföllin
eru að jafnaði 5—10%. Frjóu
eggin eru geymd áfram í vél-
unum, en eftir þrjár vikur eru
ungar skriðnir úr þeim og þeir
færðir í búr. Sex vikum síðar
eru sláturungarnir settir á gólf,
en þeim er slátrað 2ja mánaða,
þá orðnir kjúklingar á verzl-
unarmáli, en megnið af kjúkl-
ingakjötinu, þessi 16 tonn á
ári, er selt til Reykjavíkur. Um
svipað leyti eða nokkru síðar
eru lífungarnir settir á eða seld
ir, en í fyrra seldi búið 8—10
þúsund unga á fæti.
Það gefur nokkra hugmynd
um hamsnafjölda Alifuglabús-
ins, að það notaði næstum 400
tonn af kjarnfóðri í fyrra,
sterkt fóður, sem gerir eggin
að fjöreggjum og kjötið meyrt
og ljúffengt, enda rennur hvort
tveggja úl eins og heitar lumm
ur.
© Jónas bóndi Halldórsson
lærði til þessarar búgreinar í
Noregi og hefur fitjað upp á
ýmsum nýjungum í hirðingu og
framleiðslu. Til dæmis er Fjör-
egg eina alifuglabúið á landinu,
sem selur stykkjaða kjúklinga
í mjög smekklegum umbúðum,
tilbúna í ofninn. Hægt er að
velja um læri og bringu og fjór
ar gerðir af heilum kjúkling-
um. Jónas leggur höfuðáherzlu
á gæði vörunnar og vandaða
framleiðslu á allan hátt og fylg
ist vel með öllum nýjungum í
greininni.
Framleiðsla og sala búsins
hefur vaxið stöðugt, sem sann-
ar vinsældir vörunnar. Verð á
kjúklingakjöti hefur staðið í
stað, en ekki hækkað, eins og
annað kjöt, og hefur það að
sjálfsögðu rýrt afkomuna, en
Jónas telur smásöluálagning-
una, sem er 50—60%, of háa.
Við búið vinna 5—6 manns,
fólk sem kann til þessara verka.
© Að lokinni skoðunarferð er
sezt að rjúkandi kaffiborði.
Þá kemur í ljós, að Jónas hef-
ur sótt fleira en fróðleik um
hænsnarækt til Noregs. Hann
kom einnig heim með Anny,
hina myndarlegu húsfreyju í
Sveinbjarnargerði. Auðheyri-
lega eru þau samhent um bú-
skapinn, bæði á heimilinu og
við reksturinn. Þar er lykillinn
að góðu gengi og ánægju af erf
iöi dagsins.
Jónas og Anny í Sveinbjarnargerði.
Útihúsin — áþekk verksmiðjuhúsum.
(Myndir: Sæm. G.)
Aðalskipulag Akureyrarhafnar var samþykkt með 8 atkv. gegn 1: j
TVÖ SJÓNARMIÐ RÍKJAIMDI UM STRAIMDGÖTUSVÆÐIÐ
ný tillaga um trjágarð og dýragarð austan Pollsins
Eins og skýrt hefur veri'ð frá, samþykkti hæjarstjórn Akureyr-
ar á síðasta fundi sínum nýtt aðalskipulag fyrir Akureyrarhöfn,
að undangenginni meðferð annarra aðila hjá hæ og ríki, sem
málið varðar. Atta bæjarfulltrúar greiddu atkv. með, einn á
móti og tveir sátu hjá.
Ekki kom fram ágreiningur í
áliti annarra aðila en hafnar-
stjórnar, en þar skilaði Tryggvi
Helgason, form. Sjómannafé-
lagsins, séráliti.
□ Álit mcirihlutans var þann-
ig: „Meiri hluti hafnarstjórn
ar leggur til, að skipulagið, eins
og því er lýst í fundargerð frá
8. marz sl., verði samþykkt í
höfuðatriðum, að því er tekur
til liafnarmannvirkja. Hins veg
ar bendir hafnarstjórn á, að
rannsóknum á hafnarsvæðinu
sunnan Strandgötu er ekki enn
lokið, og gætu niðurstöður rann
sókna haft áhrif á endanlega
staðsetningu hafnarmannvirkja.
Auk þess hefur ekki verið geng
ið endanlega frá skipulagi lóða
á hafnarsvæðinu. Meiri hluti
hafnarstjórnar leggur til, að
rannsóknum verði hraðað og frá
gangi skipulagsins á hafnar-
svæðinu verði lokið sem fyrst.“
Enn fremur lagði meiri hlutinn
til, að leitað yrði eftir lánsfé til
að hefja framkvæmdir við við-
legukant í hinni almennu vöru-
skipahöfn á næsta sumri.
□ Alit Tryggva Helgasonar var
þannig; „Eg álít mjög mis-
ráðið, að dreifa hafnarmann-
virkjum og starfsemi, sem bund
in er við höfnina, eins og gert
er ráð fyrir í því skipulagi, sem
hér er um að ræða, og er það
gerbreyting frá fyrri stefnu um
uppbyggingu hafnarinnar. Legg
ég því til, að haldið verði áfram
á þessu og allra næstu árum,
að byggja upp höfnina norðan-
til á Oddeyrinni, svo þar geti
orðið góð aðstaða fyrir af-
greiðslu farskipa, fiskiskipa,
skipa og báta, sem hér dvelja
vegna viðgerða og nýsmíði.
Verði leitað eftir lánum til fram
kvæmda á þessu svæði.“
□ í bæjarstjórn tók Jón G. Sól
nes upp tillögu Tryggva
Helgasonar, en þar var hún
felld ineð 8 atkv. gegn 2. Til
vara gerði Jón G. Sólnes þá til-
lögu, að málinu yrði visað lil
hafnarsi jórnar og henni gert að
gera kostnaðaráætlun um fram-
kvæmdir. Var hún felld með 7
atkv. gegn 2. Aðalskipulagið
var síðan samþykkt með 8 atkv.
gegn 1, Jón G. Sólnes greiddi
atkvæði á móti, en Jón Ingi-
marsson og Jón B. Rögnvalds-
son sátu hjá.
□ Eins og fram kernur hér að
framan, er ágreiningur um
framkvæmdatilhögun, vegna
stofn- og reksturskostnaðar. En
inn í blandast, að menn eru
ekki á eitt sáttir um ráðstöfun
Strandgötusvæðisins. Sumir
vilja hyggja höfnina þar, aðrir
að þar verði skemmtigarður.
Vegur það e.t.v. þyngst á met-
unum í almennum ágreiningi,
sem gætir meðal bæjarhúa. Að
því er blaðinu er bezt kunnugt
um, eru sérfræðingar í hafnar-
málum og skipstjórnarmenn
sammála um að hagkvæmast
sé að hyggja vöruskipahöfn á
því svæði, sem liið nýja aðal-
skipulag gerir ráð fyrir. En ýms
ir fagurfræðingar og áhuga-
menn um útlit hæjarins eru á
öðru máli og telja Strandgötu-
svæðið ómetanlegt í því efni,
svo að ekki megi skemma það
og þar með heildarsvip bæjar-
ins með hafnarmannvirkjum.
□ I þessu sambandi þarf auð-
vitað að kryfja það til mergj
ar, hversu hvoru tveggja verði
hezt borgíð, v’ðráðanlegri liafn
argerð og útliti hæjarins. Verð-
ur ekki lagður dómur á það hér,
livort unnt er að gera hafnar-
mannvirkin svo úr garði, að
þau falli vel að bæjarsvipnum.
í því samhandi verður að gæta
þess, að byggja verður höfn, þar
sem hcztar aðstæður eru fyrir
hendi, að gert er ráð fyrir 55
þúsund ferm. svæði ofan hafn-
arinnar við Strandgötu, þar
sem unnt er að koma fyrir hæði
byggingum og aðgengilegum
útisvæðum við miðbæinn, og að
unnt er að konva fyrir skraut-
grðum víðar við Pollinn.
M.a. hefur þeirri tillögu verið
varpað fram, að gera æiti stór'
Framhald á bls. 7
Á þcssum uppdrætti cr hið umdeilda Strandg'ötusvæði.
j