Íslendingur - Ísafold - 19.03.1969, Síða 8
klendhufwt
-ísafold
Miðvikudagur 19. marz 1969.
Hvers konar ferðaþjónusta
Odýrustu innan- og utanlandsferðirnar.
Afsláttarfargjöld fyrir fjölskyldur og hópa
Afborgunarkjör á flugleiðum Loftleiða.
FERÐASKRIFSTOFA AKUREYRAR
Strandgötu 5, Akureyri. Símar 11475 og 11650
HANDABIJRÐIJR
sem er framleiddur af lyfjafræðingum eftir
læknisráði, hefur marga sérstaka kosti.
Fæst aðcins í Akureyrar Apóteki og Vöru-
sölunni, Akureyri. 130 ml. glas kostar
aðeins 48,00 krónur.
Frá Varmahlíð í Skagafirði. (Ljósm: — herb.).
BARIMASKÓLIIMN í VARMAHLÍÐ Á HRAKHÖLLM
Allir, sem ekiö hafa um
Skagafjörð, kannast við Varma
hlíð á vegamótum þar sem
stendur á skiltum; Blönduós —
Sauðárkrókur — Akureyri —
og e.t.v. eitthvað fleira. Þetta
er staður í þjóðbraut og ber
þess nokkur merki þar er hót-
el þar eru tvær verzlanir þar
er sundlaug þar er nýtt félags-
heimili og þar eru tveir skólar,
annar þeirra að vísu á hrakhól-
um, vegna liúsnæðisskorts. En
yjræktin, sem einu sinni var
hafin, er niðurlögð, og nú vant-
ar einhvers konar iðnað til að
fylla upp í skarðið.
Hólelið hefur starfað lengi í
Varmahlíð, sömuleiðis önnur
verzlunin, Lundur, en útibú
Kaupfélags Skagfirðinga er
nýlt. Sundlaugin er ekki ný, en
hún fær heitt vatn úr iðrum
jarðar, og við hana er gufubað-
stofa, sem nýtur vinsælda. En
félagsheimilið er hins vegar. al-
veg nýtt. Það er mikið notað til
félagsstarfsemi, einnig eru þar
tveir bekkir skyldunáms, ungl-
ingaskóli, en barnaskólinn, sem
fékk þar inni í fyrra, er nú í
öðru húsi og ekki vitað hvar
hann verður næsta vetur. Þessi
skóli er á hrakhóium.
Héraðsskólamál Skagfirðnga
hafa lengi verið til umræðu, en
ekki hafa menn komizt að end-
anlegri niðurstöðu, sumir vilja
skóla í Varmahlíð, aðrir á
Reykjum í Lýtingsstaðahreppi,
enn aðrir á Hólum í Hjalladal,
og kannski má nefna fleiri
staði.
En hvort sem þeir í Varma-
hlíð fá skólann eða ekki, þá eru
þar möguleikar góðir fyrir ýms
an rekstur, ekki sízt vegna jarð
varmans. Og ef einhverjum
dytti í hug, að gera sér mat úr
staðnum fyrir sitt fyrirtæki, án
mikils fyrirvara, þá eru íbúðir
á lausu.
Annars hefur lífið gengið
sinn vanagang í Varmahlíð í
vetur og raunar yfirleitt í
Skagafirði, þótt bændum
blöskri verðið á fóðurbæti og
væntanlega einnig á áburði,
þegar þar að kemur. Eitt hefur
þó lyft brúninni eilítið, en það
eru sýningar hins nýja Leikfé-
lags Skagfirðinga á „Manni og
konu,“ sýningarnar eru orðnar
12 talsins heima og heiman cg
! fleiri eru fyrirhugaðar.
Fundur með
Magnúsi
Jónssyni
Sjálfstæðisfélögin á Akureyri
halda almennan þjóðmálafund í
Sjálfstæðisliúsinu nk. laugar-
dag, 22. marz, og hefst hann kl.
14. — Framsöguræðu flytur
Magnús Jónsson fjármálaráð-
herra.
Akureyringar og aðrir Eyfirð
ingar eru hvattir til að fjöl-
menna á fundinn.
Skemmdir
af vatnselg
• Fyrir og um síðustu helgi
gerði asahláku víðast hvar á
landinu og sums staðar miklar
rigningar. — Urðu verulegar
skemmdir syðra og einnig tals-
verðar á sumum fjörðunum
vestra. Vegir spilitust mjög og
varð ófært milli nokkurra hér-
aða. A sunnudag tók svo aftur
að snjóa og skapaðist við það
mikil hætta viða á vegum, er
skemmdir hurfu undir snjó.
O Þessir harðskeyttu hlákukafl
ar virðast vera orðnir fastur
I
liður í marzmanuði ar hvert.
Ferðamálafélagið vinnur að mörgum málum
— fyrirhugað að koma upp árlegri Akureyrarviku
Eins og kunnugt er, var
Ferðamálafélag Akureyrar end
urreist fyrir tæpum tveim mán-
uðum. Síðan liefur hin nýja
stjórn þess unnið að því að und
irbúa framtíðarstarfs félagsins
og er starfsskrá þess þegar orð-
in margþætt og viðamikil. Jafn
framt hefur stjórnin hafið fram
kvæmdir, m.a. með því að láta
gera tvær kynningarkvikmynd
ir, 20 mín. hvora, og bækling
til kynningar á vetrarferðum
til Akureyrar. Þetta kom fratn
á fundi, er stjórn félagsins hélt
með blaðamönnum á laugardag
inn, en þá fengu þeir að sjá
kvikmyndirnar og ræddu einn-
ig við Lúðvík Hjálmtýsson
framkvæmdastjóra Ferðamála-
ráðs, sem var viðstaddur í boði
félagsins.
Vevkefnum félagsins hefur
verið skipt í tvennt. Annars veg
ar mun það vinna að því að að-
staða ferðamanna á Akureyri
og í nágrenni batni. Hins vegar
mun það vinna að því að auka
fefðamannastrauminn til bæj-
ai'ins. En hvort tveggja ihiðar
að því, að gera Akureyri eftir-
sótta ferðamannamiðstöð og
auka hag Akureyringa og ná-
granna þeirra af ferðamanna-
þjónustu.
Eins og fyrr segir, eru nú þeg
ar margvisleg verkefni á starfs
skrá félagsins. Eru þau bæði
smá og stór. Meðal þess sem
stefnt er að, má nefna, að fé-
lagið hyggst stofna til sérstakr-
ar menniiígar- og skemmtiviku
á ári hverju í sambandi við af-
mæli Akureyrarbæjar, fyrst
1970. Verður stefnt að því að
fitja upp á ýmsum slíkum ný-
mælum í sambandi við bæjar-
lífið, veiðimcnnsku o. fl., til
þdss að auka aðdráttarafl bæjar
ins fýrir ferðamennina. Er það
hlutverk félagsins fyrst og ‘
fremst, að aðstoða félög og fyr-
irtæki til að hrinda þessum mál
um fram.
Formaður Ferðamáiafélags-
ins er Herbert Guðmundsson rit
stjóri, en aðrir í stjórn og vara-
stjórn eru: Pétur Jósefsson,
Gunnlaugur P. Kristinsson,
Ragnar Ragnarsson, Gunnar
Árnason, Jón Egilsson, Her-
mann Sigtryggson, Björgvin
Júníusson, Hörður Svanbergs-
son og Halldór Helgason.
Verksmiðjurnar í gang
Skóverksiniðjan á Egils- aðstoð við skógerðina og fárra vikna, en þar verða
stöðum og sokkabuxnaverk-
smiðjan á Sauðárkróki munu
báðar hefja framleiðslu inn-
an tíðar. Unnið cr að samn-
ingum við Hollendinga um
munu þeir láta í té tæknilega
aðstoð og fyrirmyndir að
karlmanna- og barnaskóm.
Sokkabuxnaverksmiðjan
mun hefja frainleiðslu innan
framleiddar sokkahuxur auk
nælonsokka.
Báðar verksmiðjurnar
skapa mikla atvinnu, hvor á
sínum stað.
SJOMIIMJASAFNIBOLUIMGARVÍK
• Bolungarvík er talin ein
elsta verstöð landsins, en
það er ekki fyrr en um 1904,
sem byggð fer að myndast á
staðnum, áður voru stundaðir
róðrar þaðan af kappi á vissum
árstímum. Nú hafa Bolvíkingar
komið sér upp vísi að sjóminja
safni og sl. sumar var byggð
þar upp verbúð úr torfi og
grjóti í gömlum stíl. Forgöngu
um þetta mál höfðu Lionsklúbb
ur Bolungarvikur og ýmis önn-
ur félagssamtök á staðnum. Eft
ir er að innrétta verbúðina og
í framtíðinni er áætlað að koma
bát í sama stíl.
• Verbúðin stendur skammt
frá barnaskólanum og er á-
formað að þar verði gerð tjörn
í náinni framtíð. Bolvíkingar
hafa mikinn áhuga á að halda
þessu máli vakandi og vinna að
innréttingu verbúðarinnar eftir
því sem fjármagn leyfir. Eins
og kunnugt er, stendur sjávar-
útvegurinn undir atvinnulífi
staðarins og er það því vel við
eigandi, að íbúarnir haldi merki
brautryðjendanna á lofti með
fyrirhuguðu sjóminjasafni, sem
eins og áður segir er nú nokkuð