Íslendingur - Ísafold - 23.08.1969, Page 3
ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD—LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1969. 3
fslmUugut
-ísufold
Útgeíandi: Útgáfufélagið Vörður h.f.
Framkv.stjóri: Oddur C. Thorarensen.
Blað f. Vestfirði, Norðurland og Austur-
land. Regluleg útgáfa um 90 tbl. á ári,
ýmist 8 eða 12 síður. Ársáskr. 300 kr.
Ritstjóri: Herbert Guðmundsson (áb.).
Skrifstofur að Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri. Afgreiðslusími 21500, auglýs-
ingasími 21500, ritstjórnarsími 21501.
Prentsmiðja að Glerárgötu 32, 2. hæð,
Akureyri. Sími prentsm.stjóra 21503.
SAMTÖK
SVEITAR-
FÉLAGA
Uni langt árabil hafa sveit
arfélögin hér á landi haft
með sér landssamtök til að
sinna ýmsum sameiginlegum
málum, til stuðnings sveitar
stjórnum í starfi og eflingar
sveitarfélögunum. Ekki leik
ur vafi á því, að Samband ís
lenzkra sveitarfélaga liefur
reynzt sveitarfélögunum
hinn mikilvægasti samstarfs
vettvangur og að mikill
styrkur hefur yerið í því. En
því eru þó skornar of þröng
ar skorður, sem leiðir af
stöðu og verksviði sveitarfé-
Iaganna í stjórnkerfinu.
Það sem fyrst og fremst
hefur amað að í þessu sam-
bandi er úrelt skipting sýslu
og sveitarfélaga og mjög tak
markað verksvið og vald til
sjálfstæðra ákvarðana.
Þetta hefur sveitarstjórn-
armönnum lengi verið ljóst.
Þó er það ekki fyrr en á síð-
ustu árum, að þeir hafa gert
alvarlegar tilraunir til að
brjóta af sér vandann. Ann-
ars vegar með stofnun kjör-
dæmissambanda sveitarfélag
anna, hins vegar með könn-
un á sameiningu og stækk-
un sveitarfélaganna.
En því er ekki að leyna,
að aðgerðir á þessum svið-
um nægja skammt, nema
sveitarfélögunum verði
markaður nýr og traustari
starfsgrundvöllur innan
stjórnkerfisins. Gera verður
sveitarfélögunum kleift að
efla kjördæmissambönd sín
svo, að þau geti annazt
margs konar sameiginlega
þjónustu, rannsóknir, skipu-
lagningu, áætlanagerð og
jafnvel annazt umsjpn eða
eftirlit með meiriháttar
framkvæmdum. Um leið
verður að draga skýrari
mörk milli verksviða svcit-
arfélaga og ríkisvaldsins og
gera verkaskiptinguna
hreinni og viðráðanlegri fyr-
ir báða aðila. Með þessu
myndu sveitarfélögin verða
það afl, sem þau eiga að
vera, þ.c.a.s. ef jafnhliða
tekst að koma á nauðsynleg-
um breytingum á skipan
þeirra. Hvorugt verður frá
öðru skilið, ef nokkur veru-
legur árangur á að nást.
Auglýsing
um lögtök á Akureyri og
í Eyjafjarðarsýslu
Hinn 18. ágúst 1969 var kveðinn upp al-
mennur lögtaksúrskurður fyrir Akureyri og
Eyjafjarðarsýslu vegna neðangreindra
gjalda:
1. Tekjuskattur.
2. Eignarskattur.
3. Námsbókagjald.
4. Kirkjugarðsgjald.
5. Almannatryggingasjóðsgjald.
6. Slysatryggingagjald atvinnurekenda
samkvæmt 40. gr. alm. tryggingalaga.
7. Lífeyristryggingagjald atvinnurekenda
samkvæmt 28. gr. alm. tryggingalaga.
8. Atvinnuleysistryggingagjald.
9. Launaskattur.
10. Kirkjugjald.
11. Hundaskattur.
12. Iðnlánasjóðsgjald.
13. Iðnaðargjald.
14. Söluskattur I. og II. ársf j. 1969 og eldri.
15. Gjöld af innlendum tollvörum.
16. Lögskráningargjöld sjómanna.
17. Aðflutningsgjöld.
18. Innflutningsgjöld.
19. Skemmtanaskattur.
20. Skipulagsgjöld.
21. Skipaskoðunargjöld.
22. Vitagjöld.
23. Lestagjöld.
24. Þungaskattur af bifreiðum.
25. Skoðunargjald af bifreiðum.
26. Vátryggingagjöld ökumanna.
27. Slysatrygginagjöld sjómanna.
28. Öryggiseftirlitsgjöld.
Taka má lögtaki á ábyrgð ríkissjóðs en á
kostnað gjaldenda ofangreind gjöld, sem ó-
greidd eru en gjaldfallin að liðnum 8 dög-
um frá birtingu þessa úrskurðar.
Skrifstofu Akureyrar og Eyjafjarðarsýslu,
18. ágúst 1969.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
NÝKOMIÐ
Smergelsteinar
mismunandi stærðir.
Fiberdiskar
I rJn I lii I rii I
mm
___iTiriyi
slippstödin
PÓSTHÓLF 246 . SlMI 06)21300 . AKUREYRI
H.F.
Nýtt...Nýtt
Ghesterfield
filter
með hinu góðaW.
bragfði
Zoksins kom fíitcr
siffareita með sönnu
tóbaksbraffði
Reynið ffóða bragðið
Reynið
Chesteriieid iiiter
Frá Barnaskóla Akur-
eyrar og Oddeyrarskóla
Börn fædd 1960, 1961 og 1962 (1.—3. b.)
eiga að mæta í skólum sínum þriðjudaginn
2. september nk. kl. 10 árdegis. Tilkynna*
þarf forföll.
Aðflutt börn eiga að koma til innritunar
laugardaginn 30. ágúst kl. 10—12 fyrir hád.
Kennarafundur verður 1. sept. kl. 10 árd.
Að gefnu tilefni skal það tekið fram, að skóli
fyrir 10, 11 og 12 ára börn hefst um miðjan
sept. og verða skólasetningar augl. síðar.
Skólastjórar.
Frá Glerárskólanum
Skólinn byrjar mánudaginn 1. september.
2. og 3. bekkur (börn fædd 1961 og 1960)
komi í skólann mánud. 1. sept. kl. 1.
1. bekkur (börn fædd 1962) komi í
skólann mánud. 8. sept. kl. 1.
4., 5. og 6. bekkur (börn fædd 1957-58-59)
komi í skólann mánud. 15. sept. kl. 10.
Skólastjóri.