Íslendingur - Ísafold

Tölublað

Íslendingur - Ísafold - 10.09.1969, Blaðsíða 8

Íslendingur - Ísafold - 10.09.1969, Blaðsíða 8
a an ístendingur -Ísuíold MuYvikudagur 10. sept. 1969. Hvers konar ferðaþjónusta Ódýrustu innan- og utanlandsferðirnar. Afsláttarfargjöld fyrir fjölskyldur og hópa. Afborgunarkjör á flugleiðum Loftleiða. FERÐASKRIFSTOFA AKUREYRAR Strandgötu 5, Akureyri. Símar 11475 & 11650. SJÁLFSTÆÐISHIJSIÐ 9Ð Opið föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. 90 Hljómsv. Ingimars Eydals, Helena og Þorvaldur. SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ, Akureyri (Borða- og matarpantanir í síma 1-29-70). Vilja mennta skóla á Austurlandi nú þegar □ Stúdentafélag Austurlands hélt aðalfund sinn þann 23. ágúst sl. og voru skólamál fjórð ungsins aðalmál fundarins. — Urðu miklar umrseður og allir sammála um, að skólamál í fjórðungnum væru mjög á eft- ir tímanum og styttra á veg komin en í öðrum fjórðungum. Ein tillaga kom fram og var hún samþykkt samhljóða. Var það tiilaga um menntaskólamál sem hér fer á eftir: □ „Aðalfundur Stúdentafélags Austurlands, haldinn að Hallormsstað 23. ág. 1969, skor ar á menntamálaráðherra, að ákveða nú þegar stofnun og staðsetningu menntaskóla á Austurlandi." Hrímbakur í brotajárn □ Hinn afdankaði togari ÚA, Hrímbakur, sem dreginn var nýlega úr fjörunni við Gler á, verður seldur í brotajárn, væntanlega í haust. Togarinn var smíðaður 1948, en hefur ekki verið rekinn um nokkurt árabil. Rak hann upp af legu fyrir rúmum þrem árum og lá þar þangað til fyrir skömmu. Er hann nú í dokk Torfunefs- bryggju. □ ÚA hefur leitað tilboða í Hrímbak og eru þau nú í at- hugun. □ Eftir krókaleiðum hefur blaðið fengið þær upplýs- ingar frá Reykjavík, að togar- ar á borð við Hrímbak seljist í brotajárn fyrir 2—2% millj. kr. komnir út, en verðið fer að sjálfsögðu eftir mati á ýmsum atriðum og gæti vafalaust orð- ið bæði lægra og hærra í þessu tilfelli. IHíklar vega- skemmdir vestra / Um helgina var feiknamikið úrfelli á Vestfjörðum og olli það miklum skemmdum á veg- um, einkum nýbyggðum veg- um, sem eru margir vestra. — Tepptust margir þeirra um tíma. Ekki er Ijóst, hversu mik ið tjón hefur orðið á vcgunum, en í gær leit út fyrir að það hefði orðið verulegt og skemmd irnar myndu tefja frekari fram- kvæmdir við nýbyggingar veg- anna. Viðbyggingar Elliheimilis Akureyrar t.v. og Elliheimilisins í Skjaldarvík t.h. (Myndir: Sæm. G.). 8ELJA SKULDABRÉF VEGNA IIPP- BYGGINGAR ELLIHEIIHILANNA - 40 RÍJMUM BÆTT VIÐ OG AÐSTAÐAN STÓRBÆTT © Stjórn Elliheimilis Akureyr- ar og Elliheimilisins í Skjald arvík lætur nú byggja við hús- næði beggja heimilanna í þeim tilgangi að bæta við um 40 rúm um og stórbæta aðstöðu vist- manna og starfsfólks. Fékk stjórnsn lieimild til þess hjá bæjarstjórn á liðnu vori, en með því skilyrði, að hún sæi algjörlega um fjármögnun fram kvæmdanna fyrst um sinn. — Töluvert eigið fé var til í sjóð- um og hefur bætzt við það, á þessu ári, svo verulega munar um. En til að tryggja, að unnt reynist að gera viðbyggingarn- ar fokheldar fyrir veturinn og þoka þeim lengra í vetur, hefur stjórnin nú gefið út skuldabréf, sem nýlega var byrjað að selja. @ Elliheimilin tvö, sem bæði eru í eigu og umsjá Akureyr arbæjar, hýsa nú um 110 vist- menn. Er þó oft langur biðlisti eftir vist. Verður unnt að bæta við um 40 vistmönnum, er við- byggingarnar komast í not. En einnig mun aðstaða vistfólksins og starfsfólks stórbatna. Við- byggingin við Elliheimili Akur eyrar er tæpir 3 þús. rúmmetr- ar. Er áætlað að hún kosti um 15 millj. kr. Viðbyggingin við Ellliheimilið í Skjaldarvík cr Ingólfur í Gröf með bagga úr heybindivél sinni. tæpir 770 rúmmetrar, og er áætlað að muni kosta um 2 millj. kr. Eru báðar þessar j framkvæmdir mjög brýnar. @ Skuldabréfin, sem nú er haf in sala á til að auðvelda fram kvæmdirnar, eru samtals að upphæð 5 millj. kr. ,og skiptast í 10 þús., 5 þús. og 1 þús. kr. bréf. Eru þau til 7 ára og með bæjarábyrgð. Vextir eru 9M> % og eru greiddir fyrirfram fyrir 2 fyrstu árin. Eru því ekki greiddar nema 8.100 kr. fyrir stærstu bréfin, 4.050 kr. fyrir þau næstu og 810 kr. fyrir þau mrnnstu. Lánið endurgreiðist síðan á árunum 1972—1976 eft ir útdrætti og fer greiðsla fram 1. okt. hvert áranna. Eru skulda bréf’n seld í skrífstofum Akur- eyrarbæjar og ölluni bankaúti- búunum á Akureyri. HEYBINDIVÉLIN ER EIN MERKILEGASTA TÆKNINÝJUNG HJA ÍSLENZKUM BÆNDUM: ‘Vélbinda jafnt í eigin hlöður og til að selja — VÉLBINDINGIN SPARAR 30 — 40% HLÖÐURÝMI □ Á síðustu fjórum árum hef- ur merkileg nýjung rutt sér til rúms í búskap íslenzkra bænda, heybindivélin. — Árið 1965 voru fluttar til landsins þrjár slíkar vélar, 1966 sjö og síðan margfalt fleiri. Fyrst var notkun heybindivélanna nær eingöngu bundin við Suðurland en síðan hefur hún breiðst út um landið, og í fyrra keyptu Norðlendingar margar vélar, er heysala og flutningar færðust í vöxt. Það hefur sýnt sig, að vélbundið hey er á allan hátt meðfærilegra en óbundið, fer vel í flutningum og sparar 30 til 40% hlöðurými, og loks er jafnvel unnt að súgþurrka í böggunum. Bændur vélbinda því jafnt í eigin hlöður, ekki sízt hána, og til að selja. □ Blaðið kom við i Gröf í Kaupangssveit við Akureyri og hitti að máli Ingólf Lárusson bónda, sem vélbatt hey af kappi. Vélina keypti hann hjá Globusi hf. í fyrravor og á þess um tveim sumrum síðan hefur hann bundið mikið bæði fyrir sig og aðra, svo notkún vélar- innar svarar nú til 9 ára notk- unar á meðalbúi, — og er vél- in enn sem ný. Heybindivéi- arnar eru dýrar og því nauð- synlegt, að bændur sameinist um notkunina, enda er það auð velt þar sem vélarnar eru mjög afkastamiklar, binda 4—5 20— 30 kg bagga á mínútu.

x

Íslendingur - Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur - Ísafold
https://timarit.is/publication/677

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.