Íslendingur


Íslendingur - 18.05.2002, Blaðsíða 8

Íslendingur - 18.05.2002, Blaðsíða 8
lþrótta- og menningartengd ferðaþjónusta mikilvæg Steingrímur Birgisson skipar 5. sæti D-lista Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjómarkosningunum. Markmiðið er að flokkurinn haldi fimm fulltrúum í bæjarstjórn. „Ég lit svo á að ég sé í bar- áttusætinu,” segir Steingrímur meðai annars í viðtali við Islending og ieggur áhersiu á að Sjálfstæðisfólk þurfi aö vinna vel til að halda sínum hlut í kosningunum 25. maí. Steingrimur hefur unnið hjá Höldi frá því að hann kom aftur til Akureyrar að loknu háskólanámi. Hann tók þar við starfi framkvæmdastjóra í febrúar i fyrra. Steingrímur er 37 ára, fæddur Reykvíkingur en ættaður frá Akureyri og lsafirði. Hann kveöst hafa orðiö Akureyringur þegar hann kom hing- að til náms í Menntaskólanum 15 ára gamall. Hér hefur hann búið alla tiö siðan ef frá eru taldir veturnir þegar hann nam viöskiptafræöi við Háskóla íslands og eitt ár að námi loknu. Eftir að hann kom aftur til Akureyrar hefur hann starfaö hjá Höldi. Steingnmur er giftur Svanhildi Vilhelms- dóttur lækni og eiga þau tvær dætur, Eddu 10 ára og Þórhildi 8 ára. Svanhildur stundar nú í framhaldsnám í Noregi. Steingrimur kveður ástæðu þess að hann vill starfa að bæjarmálunum mjög einfalda. „Mér stendur ekki á sama um hlutina, ég vil leggja mitt af mörkum til þess aö gera Akureyri að eins góðum og spennandi bæ til aö búa í og heimsækja sem kostur er. Ég vil aö hér sé sem fjölbreyttast úrval atvinnutækifæra, góðir skól- ar og gott úrval afþreyingar og útivistarmögu- leika og til að reyna aö hafa áhrif á þetta er þátttaka i bæjarpólitikinni góð leið.” Vinnusamur og jákvæöur Steingrímur er vinnusamur og segir það vera i senn bæði kost sinn og galla, hann eigi erfitt með að segja nei þegar hann er beðinn um að taka að sér einhver verkefni og það þýði oft og tíðum ansi mikla vinnu. „Ég reyni aö horfa meö jákvæðum augum til lífsins, hafa gaman af þvi sem ég er að gera og dreifa þvi út frá mér,” segir hann. Steingrímur hóf stjórnmálaþátttöku sína fyrir bæjarstjórnarkosningamar 1998 og var þá kjörinn varabæjarfulltrúi. Hann tók síðan sæti sem aöalmaður i bæjarstjórn siðastliðið haust og stefnir á áframhaldandi setu þar. „Ég lít svo á að ég sé í baráttusætinu,” segir hann spurö- ur um væntingar til kosningabaráttunnar og úrslitanna 25. mai. Hann bendir hins vegar á aö til þess aö halda því þurfi menn að vinna vel og telur aö tölur sem sýni að flokkurinn sé nálægt hreinum meirihluta ekki raunhæfar. Uppbygging afþreyingar Steingrímur er mikið fyrir útivist og íþróttir og má segja að baráttumál hans i bæjarstjórninni beri keim af þvi. „Þetta snýr að því aö gera Ak- ureyri að lífvænlegum bæ,” segir hann þegar komiö er inn á helstu baráttumálin. „Sá þáttur sem ég hef kannski mestan áhuga á er upp- bygging afþreyingarmöguleika í bænum. Það snýr þá mest aö möguleikum til afþreyingar, útivistar og iþrótta fyrir þá sem hér búa.” Steingrimur bendir jafnframt á aö allt þetta tengist mjög atvinnulifinu og þá einkum ferða- þjónustunni, sem er gifurlega mikilvæg fyrir Akureyri að hans mati. Hann rifjar upp könnun sem sýndi að Akureyri er sá staður sem flestir lslendingar vilja verja einhverjum hluta af sum- arleyfi sínu á eða koma til. „Þetta skiptir okkur miklu máli og ég vil tengja þetta mjög mikið saman, það er að segja uppbyggingu á útivist- ar- og afþreyingarmöguleikum fýrir bæjarbúa og ferðamenn. Þaö á að vera af hinu góöa fyr- ir okkur sem hér búum, eykur líkurnar á að aðr- ir sjái sér hag í þvi að flytja hingaö og styður um leiö mjög við ferðaþjónustuna i bænum sem er orðin gífurlega mikilvæg í atvinnumál- um okkar.” Iþrótta- og menningartengd ferðaþjónusta Steingrímur tekur dæmi um það hve mikilvægt er að tengja saman uppbyggingu útivistar- og afþreyingarmöguleika og ferðaþjónustuna f bænum. Hann bendir á að við eigum ekki að skilgreina Hlfðargall og Akureyrarsundlaug sem fþróttamannvirki eingöngu, eða Listagilið, leik- húsið og söfnin eingöngu sem menningar- tengda staði. „Þetta eru ekki síður ferða- mannastaðir og við getum nefnt þetta íþrótta- tengda ferðaþjónustu og menningartengda ferðaþjónustu. Að þessu þurfum við að hfúa mjög vel, halda áfram þeirri uppbyggingu sem þar hefur verið staðið að undanfarin ár okkur Akureyringum sem og öðrum landsmönnum til góða. Dæmi um svona samvinnu er verkefni sem nú er á teikniborðinu og ber vinnuheitið Afþreyingarmiðstöð Islands. Þar er hugmyndin að tengja saman Akureyrarbæ og hagsmunaað- ila f ferðaþjónustu og menningargeiranum til hagsbóta fyrir alla aöila.” Steingrimur vill meðal ann- ars að við reynum að bæta við- horf okkar og viðmót til ferða- manna og visar þar meðal ann- ars til þess sem tiðum er sagt um Akureyringa, aö þeir séu lokaðir og erfitt að ná sam- bandi við þá og kynnast þeim. „Þetta er ímynd sem er kannski alls ekki sönn og þeim mun mikilvægara er að við náum henni af okkur. Til þess þurfum við að verða enn opn- ari fyrir nýju fólki og viö þurf- um að bæta þjónustulund okk- ar þannig aö við fáum á okkur þaö orö að hingað séu allir velkomnir og láta fólk finna aö svo sé. Að þessu hafa menn unnið undanfarin ár og mér finnst það hafa gengið ágætlega en við þurfum að gera enn betur.” Margar stóriöjur í bænum Aðspurður segir Steingrimur helstu framtíöar- möguleika Akureyrar liggja í þvi aö halda áfram þeirri miklu og góðu uppbyggingu á grunn- þjónustu og afþreyingu sem unnin hefur verið síðustu árin. „Akureyri er þekkt sem skólabær og við það eigum við að styðja meö áframhald- andi uppbyggingu Háskólans á Akureyri ásamt meö öörum menntastofnunum. Tengt þessu eigum við svo að reyna að fá aukiö fjármagn og verkefni til annars stóriðjufyrirtækis sem er FSA. Ég vil benda sérstaklega á að mennta- stofnanirnar í bænum og FSA eru í raun ekkert annað en stóriðjufyrirtæki, á sina visu.” Steingrímur telur að auki nauðsynlegt að unnið verði að því meö markvissum hætti að kanna möguleika á að fá fleiri stóriðjufyrirtæki til svæðisins. „Ég vil ekki loka á neitt þar, hvorki orkufrekan iðnaö né annað. Viö þurfum að fá nýjan 3-500 manna vinnustað á svæðið. Þá skulum við ekki gleyma þvi að Akureyri, sem eitt sinn var mikill iönaöarbær, er nú orðinn einn stærsti útgerðarbær landsins með tvö af öflugustu útgerðarfyrirtækjum lslands innan bæjarmarkanna. Fyrir þetta skulum við þakka og mér leiðist afskaplega að heyra þegar talaö er öfundartóni til Samherjamanna til dæmis, en þeir eru að gera stórkostlega hluti og sem bet- ur fer að hagnast á því. Þeirra hagnaöur er lika hagnaður okkar hinna og þaö verðum við að meta,” segir Steingrimur Birgisson bæjarfulltrúi og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins. Kristján Þór Júlíusson hefur skilað frábæru starfi sem bæjarstjóri á Akureyri undanfarin fjögur ár. Vísasta leiðin tit að tryggja að hann gegni því starfi áfram er að kjósa D-listann. Það ætlum við að gera og skorum á ykkur að gera stíkt hið sama. Anna Þóra Baldursdóttir, lektor Ásta Árnadóttir, fimleikaþjálfari Birna Sigurbjörnsdóttir, hjúkrunarfræðingur Borghildur Blöndal, kennslustjóri Dagmar L. Björgvinsdóttir, skrifstofumaður Eivor Jónsdóttir, húsfrú Elva Björk Ragnarsdóttir, menntaskólanemi Emilía Jóhannsdóttir, sölumaður fasteigna Ester Björnsdóttir, menntaskólanemi Guðrún Á. Lárusdóttir, skrifstofumaður Halldóra Steindórsdóttir, starfsmaður á FSA Helga Ingólfsdóttir, talsímavörður Helga Rún Traustadóttir, kennari Helga Þórðardóttir, sjúkraliði Hulda Hafsteinsdóttir, hárgreiðslumeistari íris Ósk Blöndal, háskólanemi Jakobína Stefánsdóttir, útgerðarmaður Kolbrún Stefánsdóttir, bankastarfsmaður Margrét Hólm Magnúsdóttir, verslunareigandi Nanna Guðrún Yngvadóttir, snyrtifræðingur Ragnheiður Sveinsdóttir, sjúkraþjálfari Ruth Hansen, listamaður Sigrún Birna Óladóttir, ferðamálafræðingur Sigrún Skarphéðinsdóttir, skrifstofustjóri Vilborg Sveinbjörnsdóttir, hjúkrunarfræðinemi Þorbjörg Jóhannsdóttir, rekstrarfræðingur

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.