Faxi

Volume

Faxi - 01.03.1942, Page 3

Faxi - 01.03.1942, Page 3
F A X I 3 Nokkrar fjáröflunarleiðir fyrir Keflavíkurhrepp Á fyrsta funcli hinnar ný- ' þaer svo ekki heldur, það er í kjörnu hreppsnefndar Kefla- víkurhrepps 3. febr. s. i. kom ég með þá tillögu, að nefndar- menn reyndu að benda á hugs- anlegar fjáröflunarleiðir fyrir Keflavíkurhrepp. Ástæðan fyrir því að tillaga mín kom fram, er sú, að nú sýn- ist allt velta á því að heppileg- ar fjáröflunarleiðir verði farn- ar. T þessu þorpi er svo ótal margt öunnið, sem óhugsanlegt er að fresta lengur að fram- kvæma. Við höfum verið svo seinheppnir, að láta alltaf nauð- synjamálin bíða og bíða, en auð- vitað kemur svo að því að lok- um, að það er ekki hægt að bíða lengur. Og til þess að við hérna náum nokkurn veginn samtíð- armönnum okkar annarstaðai- á landinu í framförum og fram- kvæmdum þarf hreppurinn á miklu fé að halda. Nú; er það svo, að hér um bii einu tekjur hreppssjóðs eru sveitarútsvörin. Enda þó þau séu nú allvæn fúlga, þá nægja þau í rauninni skammt, ef eklci er úr öðru að spila. Að vísu er hægt að taka lán, það er sjálfsögð leið. En við verðum að gæta þess að við liíum á, verðbólguUmum, sem geta verið mjög hættuleg- ir ef óhóflegum skuldum er þá hrúgað saman. Við verðum að reikna með, að greiðslur gcti með góðu móti farið fram, þeg- ar eðlilegir tímar koma hér aftur. Það er því höfuð nauðsyn, að nú sé beitl öllum hugsanlegum ráðum tii tekjuöflunar fyrir hreppinn. Um þetta verða allir að vera samtaka og sammála. Það er nauðsynlegt að geta borgað sem mest strax af því, sem gcrt er, meðan þcssi mikla peningavelta stendur. — Að halda að sér höndunum nú, og hirða ekki umi að sjá lieilbrigð- ar leiðir til fjáröflunar, og fara raun og veru glæpur. Ef einhver hér í þorpinu væri svo ókunnugur að hann þyrfti að spyrja: Hvað er nú þetta mikið, sem þið þurfið endilega að framkvæma? Mvað þurfið þið mikið fé? Því skal ég svara honum í mestu hreinskilni og segja: 1. Við þurfum að leggja fram í lendingarbætur -J millj. króna. Hjá því verður ekki komist, eins og rhenn vita vel. 2. Við þurfum að leggja fram í vatns- og sltolpleiðslur í þorpinu \ millj. króna. Það er líka óumflýjanlegt. 3. Göturnar í þorpinu þurfa að vera færar bæði fyrir fót- gangandi menn og venjuleg farartæki. Til þess þarf að gera miklar umbætur á þeim. sem kosta mikið fé. 4. Við þurfum að byggja nýjan barnaskóla. Það er varla hugsanlegt að láta hann duga öllu lengur, bæði vegna þrengsla og annars vanbún- aðar. Nýr skóli kostar mikið fé. 5. Við þurfum að koma hér upp sjúkraskýli. Svona mætti lengi telja, því það má segja. að þetta sé nokk- uð af því allra nauðsynlegasta. En hér skal nú staðar numið, og' vil ég nú snúa mér að því sem ég hóf máls á, nefnilega tillögur til fjáröflunar. Valtýr Guðjónsson kennari benti réttilega á eina sjálfsagða leið í blaðinu um daginn. 1 síðasta blaði Faxa birtist grein eftir hann sem nefnist: »Bíórekstur í Keflavík«. Ég er honum mjög þakklátur fyrir þessa grein, og hygg ég að svo sé um marga Keflvíkinga. Ég vil undirstrika það sem hann segir: »Kvikmyndarekstur er rífleg tekjulind í störum þorp- um, þar sem ekki er um neinn sambærilegan keppinaut á sviði skemmtana að ræða ... sé ... um það að ræða, að kvikmynd- in geti skilað af sér verulegum tekjum ... þá eiga þær tekjur að renna í sjóð almennings, þann sjóð, sem skyldur er að sjá fyrir útgjöldum til fram- fara og menningarbóta. — Þao er sýnilegt, að bíó í Kcflavík getur í framtíð — auk {iess að leggja til uppeldisleg menning- arverðmæti — miðlað all-rífleg- um tekjurn í þágu almennings, þegar hreppurinn hefir tekiö einkaleyfi á öllum kvikmynda- rekstri hér í byggðarlaginu«. Eg held að þessu verði ekki á inóti mæit með rökum. Tillaga mín er því að hrepp- urinn taki einkaleyfi á kvik- myndarekstri hér í Keflavík, og hygg ég það auðsótt mál, því menn eru yfirleitt mjög sammála um þessa tekjuöflun- arleið. Þá er önnur tillaga, að hrepp- urinn. fái leyfi til að innheimta skatt af sætum í bifreiðum sér- leyfishafanna á leiðinni Kefla- vík—Ilafnarfjörður—Reykja- vík, sainanber Hafnarfjörður, þar sem slíkur skattur er inn- heimtur. Ennfremur þyrfti að reyna að fá því breytt, að skatt- ur sá sem rennur í ríkissjóð af sætunum renni framvegis í hreppssjóð. Þriðja tillaga mín er sú, að hreppurinn leggi sér- stakan skatt á óbyggðar lóðir og lönd. Með þeirri tillögu minni vinnst tvennt, nokkrar tekjur í hreppssjóðinn, og hitt, að þá munu eigendur þessara eigna vera fúsir til að láta þær af hendi undir hús og til ræktun- ar með sanngjarnara verði, en gera ekki leik að því að halda þeim tímum saman óbyggðum og önotuðum og ófáanlegum hvað sem í boði er. Er það mjög óheppilegt þó ekki sé nema upp á skipulag þorpsins. Fjórða tillaga mín cr, að hreppurinn leggi þungaskatt á alla vöru. sem fer um hafnar- mannvirki Keflavíkur. Má benda á í því sambandi, að í Vestmannaeyjum hefir þetta verið gert um nokkurt skeið. Ég hefi komið með þessar til-

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.