Faxi - 01.06.1942, Page 12
12
F A X I
Stofnun kvenfélags
ef aðrar upplýsiiií'ar liendi
ótvírætt í þá átt að þessi
skattur sé ósanngjarn.
Ragnar studdi tillögu Sig-
urþórs ,en óskaði ei'tir, að
við hana yrði bætt því, að
bíóeigendur legðu íram
rekstursreikning fyrirtækis-
ins fyrir mánuðina des.-~
jan.—febr. —marz. — Hann
upplýsti og í sambandi viö
andúð manna á hrepps-
rekstri, að Hafnarfjörður
væri nú að byggja kvik-
myndahús til þess að hefja
kvikmyndarekstur sjálfur.
Samþ. samhljóða.
4. Kosin í barnaverndarnefnd
Jón Tómasson (vegna þess
að Bergþóra Þorbjarnar-
dóttir baðst undan þátt-
töku).
* 5. Danival gerði fýrirspurn um
afgreiðslustarf við Haf-
skipabryggjuna, sem sam-
þykkt var í vetur, að hrepp-
urinn tæki að sér. Lögreglu-
stjóri upplýsti að hafnar-
nefnd hefði verið falið að
ganga frá þeim málum. Að
upplýsingar í þessu máii
að öðru leyti lægi ekki fyrir
nema það, að bryggjuverði
hefði verið skrifað og iron-
um tilkynnt, að hann skyidi
taka að sér skipaafgr. I'. n.
hreppsins.
6 Fyrirspurn Danivals um
það hvað gerzt hefði í kaup-
um á landi innan Keflavík-
urhrepps af Njarðvíkingum.
Upplýsingar lágu ekki f\*r-
ir. Nef'ndarmenn lýstu á-
huga sínum á því, að lóðir
þær, sem enn eru óhyggðar
innan þorpsins yrðu byggð-
ar fyrst áður en byggðinni
er dreit't meir en orðið er.
7. Tillaga frá Ragnari utn að
barnaleikvöllurinn verði
gerður þannig í stand að
börn komist þangað af göt-
unni og að haft verði eftir-
lit með því, að börn verði
ekki á götum úti, eftir þann
tíma, sem lögreglusam-
þykktin ákveður.
Samþykkt samhljóða.
Ligi fyrir alls löngu vaknaði
sú hugmynd hjá nokkrum kefl-
vískum konum að stofna kven-
félag. Var ákveðinn staður og
stund, en svo fáar mædttu. að
eigi varð úr félagsstofnun. í
þess stað voru lögð á ráðin um
það, hvernig fá mætti konur til
almennari þátttöku en þarna
var raun á orðin.
1 Grindavík er starfandi
kvenfélag. Það hefur byggt svo
veglegt samkomuhús, að nægja
mun Grindvíkingum nokkuð
l'ram í tímann. Um önnur störf
þess í þágu grindvískrar menn-
ingar var ítarlega ritað í síð-
asta blaöi.
Með þetta l'yrir augúm var
ákveðiö að fá tvær kvenfélags-
konur þaðan, »suður« hingað, til
þess að gefa hinu verðandi
kvenfélagi holl ráð og bending-
ar. —
Aftur var ákveðinn staður og
stund, og að þessu sinni all-
rækilega auglýst bæði á götum
úti og í húðargluggum.
Dagurinn rann upp, stundin
nálgaðist og sjá: Að frátöldum
g'estum stofnfundarins mættu
Ijórar konur.
Fleira var víst ekki gert og
fundi slitið.
★
Þessi stutta kvenfélagssaga er
iv: sínu le.vti dæmi um telags-
lyndi vor Keflvíkinga. Að vísu
hefur tekizt að stofna hér fé-
log, mörg félög en hversu
mörg þeirra eru vel vakandi og
starfandi?
Fundi eins hins fjölmennasta
félags hér sækja að öllum jafn-
aði 5—10 sálir. Sé viðhöfð kaffi-
drykkja með dansi áeftir tvö-
faldast hópurinn. Aftur á móti
hrapar talan ofan í einn eða
engan, ef æfa þarf sjónleik eða
ön n u r s ke mm t i a t r i ði.
Um fagfélag nokkurt er þad
að segja, að einn góðan veður-
dag gengu allir úr því nema
stjórnin. Síðan munu t'undir
þess eingöngu vera stjórnar-
fundir.
*
f auglýsingum l'rá séitrúar-
flokkum höl'uðstaðarins les
maður stundum um vakningar-
samkomur. Tilgangur þeirra
mun vera sá, að vekja menn at’
værum svefni syndarinnar.
Æskilegt væri, að hin ýmsu
félög hér héldu sínar vakninga-
samkomur, þar sem meðlimirn-
ii v;eru vaktir til ineðvitundar
um gildi fétagslífs.
Mætti þá svo fara, að kefl-
vískar konur l'jölsæktu þangáð,
sem fyrr var frá horfið vegna
önógrar þátttöku, og stofnuðu.
íiölmennt kvenfélag, sem liafi
varanleg og víðtæk áhrif til
heilla byggðarlagi voru.
—krp—
Ferðamaður (kemur inn í 1.
farrými á skipi): »Býr nokkur
hér svo vek.að hann eigi tii of-
urlítið af brennivíni. Það leið
yfir stúlku á 2. farrýmk.
Einn farþeginn réttir honum
í flýti flösku; hann tekur við
henni, setur hana á munn sér,
dreggur væna sopa úr henni,
réttir eigandanum hana aftur
og segir: »Þetta var gott. Mér
verður alltal' svo önotalegt fyr-
ir hjartanu. þegar ég sé líða
yl'ir einh\ern«.
★
Kennari: »Maður verður að
tala varlega á þessum tínnim.
I gær var ég að segja einum
skóladrengnum til í reikningi
og sagði við hann svona tii
dæmis: »Nú lána ég honum föð-
ur þínum 100 krónur«. En í dag
kemur gamli maðurinn og
beimtar af mér þessa upphæð,
og hermir upp á mig loforð, sem
ég hafi gefið syni hans í gær«.
★
Kona (fyrir rétti): »Ég krefst
þess að fá skilnaö við mann-
inn minn. Hann hefir'ekki tai-
að orð við mig í tvö ár«.
Maðurinn: »Já, en skilurðu
það ekki kona, að það er. bara
af því, að ég hefi aldrei viljað
grípa fram í fyrir'þér«.