Faxi - 01.01.1944, Page 1
Scra Eiríkui' Brynjólfsson:
Áraiuót
Tíminn líður, óstöðvandi eins
og straumþungt fljót. Eitt ár
kemur og fer eins og gestur, og
eftir lifir minningin um allt, sem
það var. Síðastliðið ár hefir flutt
mönnunum mikið af þungri og
sárri baráttu, já enginn orð geta
lýst því. En íslenzkri þjóð hefir
það verið mikið hagsældar og
velgengnis ár. Tímanleg auðæfi
hafa aldrei fallið svo ríkulega í
skaut hennar, svo hún má vera
þakklát. Inn í þessa miklu hag-
sæld hafa líka komið sorgarat-
burðir með söknuð og trega.
Harmafregnir hafa verið fluttar
mörgum heimilum eftir átak-
leg sjóslys, og öll þjóðin hefir
tekið hlutdeild í þeirri miklu
sorg.
Áramótin eru sjónarhóll til að
svipast um á líðandi stund. Nýtt
ár rennur upp yfir heim, sem er
í sárum. Æðandi öfl dauða og
tortímingar fara um lönd og höf
til að leggja í rústir og tortíma
öllu sem fyrir er. Glæsulegustu
borgir eru lagðar í rústir og frjó-
sömu landi, endalausum víðátt-
um af ökrum og engjum er
breytt í eyðimörk. Glæsilegum
skipaflotum er sökkt, og herskör-
um af úrvalsmönnum, ungum og
glæsilegum, er skipað út í
sprengjuregn og fallbyssuskot-
hríð. Það er eins og mannkynið
sé haldið stjórnlausu æði, svo
djúpt er það fallið í synd og
sekt. — En svo er líka unnið lát-
laust að því að byggja á ný.
Stórkostleg mannvirki eru reist,
hafnir, orkuver, borgir og þorp,
allt rís upp með ævintýralegum
hraða, og ófrjótt land er ræktað
svo kornakrar teygjast svo langt
sem augað eygir. Æskan er alin
upp við glæsilegustu skilyrði.
Starf er unnið af frábærum kær-
leika, umhyggju og trúfesti, og
einasta vonin er sú, að þetta
muni að lokum sigra. Hið illa
hljóti að lúta fyrir sigurmætti,
vizku og kærleika.
Svo er spurt: Hvað bíður vor
í framtíðinni, hvað geymir árið,
sem nú er byrjað, í skauti sínu?
Það veit enginn. Nýtt ár er eins
og óskrifað blað, eða efniviður,
sem mönnum er ætlað að vinna
úr. Og það sem þeir skrifa, er
þeirra eigin lífssaga, með sorg
og gleði. En við vitum, að yfir
hið ókunna hvelfist bládjúpur
himinn. Sólin hellir geislaflóði
yfir lönd og höf. Vorið kemur
með lækjarniö og fuglasöng.
Jörðin mun klæðast skrúða sín-
um, grænum og glitrandi fögr-
um, og framundan er starf og
barátta, lífið með öllum sínum
leyndardómum, undursamlegt
fagurt og fjölskrúðugt- Þar verða
tækifæri til að sýna manndóm
og þroska, vit og hyggindi, trú
og kærleika. Tækifæri til þess
að reyna hvað það er, að vera
'landsbókasafn
Séra Eiríkur Brynjólfsson
íslendingur og eiga dásamlegt
föðurland, sem krefst fórnfýsi
og ættjarðarástar af börnum
sínum. Nú getur rætzt fegurstu
draumar liðinna alda, að hér
búi alfrjáls þjóð í alfrjálsu landi.
En til þess þarf hver einasti ís-
lendingur að sýna það í verki,
að hann elskar land sitt og þjóð.
Nú er vaxandi birta og dag-
arnir lengjast. Vorið og sumarið
eru í nánd. Guð gefi að einnig
birti yfir þjóðlífinu öllu með
vaxandi einingu, samvinnu og
samhug allra landsins barna. Þá
er frelsisvorið i nánd, með und-
ursamlega hamingju okkar elsk-
aða föðurlandi til handa.
Guð blessi land vort og þjóð
á nýju ári. Hann gefi öllu mann-
kyni farsæld og frið.
Vv i 567 48