Faxi

Årgang

Faxi - 01.01.1944, Side 3

Faxi - 01.01.1944, Side 3
F A X I 3 1 n «111111 In gim u n <1 arclótti r: JBI aðain a ii ii aliei uasókii i ii íslenzkir blaSamenn í heimsókn hjá ameríska setuliðinu. Tæp tvö ár eru nú liðin síö- an ameríska herstjórnin tók á leigu, af íslenzku stjórninni, mikinn hluta skaga þess, er við byggjum. Enginn vissi meö vissu, hvað til stæði, þvi að af eðlileg- um ástæðum var öllum stórvægi- legum hernaðarframkvæmdum haldið sem mest leyndum fyrir óviðkomandi. Miklar sögur gengu þó um, að verið væri að byggja þarna flugvöll, sem væri eitthvert hið mesta mannvirki í heimi. Öllum landsmönnum, og ekki sízt okk- ur Keflvíkingum, hefir leikið nokkur forvitni á, hvað rétt yæri um þetta. í erlend blöð var skrifað um stórkostlega flugvelli, fullkomið nýtízku hótel o. fl. Þetta varð til þess, að íslenzkir blaðamenn fóru fram á, að þeir fengju tæki- færi til hins sama, og var því máli vel tekið. Það lá þó nærri að okkur Keflvíkingum væri al- veg gleymt. Blaðamennska okk- ar er mjög ung, og hefir víst getið sér lítillar frægðar út í frá, enn sem komið er. Hugul- sömum nágranna okkar datt þó í hug að aðgæta, hvort ekki væru gefin út blöð í Keflavík, og var boði hans um þátttöku þegið með þökkum. Fimmtudaginn 16. des. kl. 10 að morgni mættumst við öll í Spítalahverfinu á Stapanum, og var það skoðað fyrst. Þegar keyrt er framhjá þessari lág- kúrulegu braggaþyrpingu, er erf- an í frá.“ Eftir þetta kallaði hann sig alla jafna Stjána bláa. Látum dauða liggja í friði, en heiðrum minningu Stjána bláa. Hann var sjómaðúr, einrænn og harður, hlaðinn kyngikrafti að hverju sem hann gekk, hvort heldur sem það var sjór eða vín, íem vætti varir hans og skegg. itt að gera sér í hugarlund, hvað augum mætir þegar inn kemur. Þarna er hið fullkomnasta sjúkrahús sem hugsast getur, með skujrðstofu,, röntgentækj- um, tannlækingastofu, tann- smíðastofu, lyfjabúð, sjúkra- stofum fyrr hundruð manna. Þarna er allt hreint og í'ágað, hlýtt og bjart. Frá spítalanum fórum við inn á bannsvæðið, í lítinn „camp“, þar sem Key, yfirhershöfðingi beið okkar. Þar voru haldnar skotæfingar fyrir blaðamenn, en ekki tókust þær sem bezt sökum dimmviðris. Nú var haldið inn á flugvallar- svæðið undir leiðsögn Holdiman ofursta. Fyrst heimsóttum við hvíldar- og skemmtistað fyrr hermenn, sem Rauði Krossinn stendur fyrir. Eru þar mjög falleg og stór húsakynni, sam- komusalir. Kvikmyndahús, sem einnig er notað til íþróttaiðk- ana, bókasafn, hljómlistasalur, með allskonar hljóðfærum, borð- tennis- og billiiard-herbergi og síðast en ekki síst, keilubraut, þar sem við dvöldum litla stund og lærðum keiluspil, og tókst okkur vonum framar. Næst var skoðað líkan eitt mikið af öllu flugvallarsvæðinu. Líkan þetta er margir fermetrar að stærð, mjög nákvæmt og haglega gert. Sýnir meðal annars hvert hús hér í bæ, flugvellina og öll mannvirki þar í kring. Veður fór hríöversnandi, rok og rigning, og áður en lengra væri haldið var okkur boðið kaffi í „Meeks Officers Club.“ Þar sáum við myndir af flugmönnunum Meeks og Patterson, sem fórust hér skammt frá. Eru flugvellirnir nefndir eftr þeim. Næst var ekið um minni flugvöllinn, tók sú ferð rúman hálftíma. Gat ég ekki að því gert, að óska, að eitt- hvað af öllu því gífurlega stein- steypuflæmi væri komið á göt- urnar okkar. Nú var komið fram á hádegi, cg vakti það almennan fögnuð, er tilkynnt var, að næsti áfangi væri Hótel de Gink, þar sem

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.