Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1944, Blaðsíða 4

Faxi - 01.01.1944, Blaðsíða 4
4 F A X I --ir ---inni- n ^laöbtr fpemta (Kritick) Klœðaburður. Nýlega las ég í blaði nokkru grein sem fjallaði um klæðnað kvenfólksins. Það er nú reynd- ar ekki nýtt, því alltaf eru bless- aðir karlmennirnir að deila á fatnað okkar kvenþjóðarinnar. Það er næstum sama hvað við finnum upp nýtt, um það get- um við lesið í næsta blaði sem við náum í eða næstum það. En það er nú kannske einhver leið fyrir okkur, að deila einnig á þeirra klæðnað, þótt við enn höf- i i um harla lítið af því gert. Þeir ganga eins klæddr vetur, sum- ar,vor og haust, í vel fóðruðum fötum og rykfrökkum þar utan- yfir, með hatt á höfði. Þeir hafa löngum deilt á okkur kvenþjóð- ina fyrir að ganga með skýlu- klúta um höfuðið, en það finnst mér ólíkt skemmtilegra en að ganga með helblá eyru niður undan höttunum, eins og við sjá- um dags-daglega hjá þeim þeg- ar kuldar eru. Eins er það með samkvæmisklæðnaðinn. — Þar verða þeir að sitja eða dansa í sínum þykku jökkum, þegar kvenfólkið er létt klætt. Mér fyndist að finna mætti upp létt- ari klæðnað fyrir karlmennina, t. d. ófóðraða jakka. En mitt álit á þessum málum er, að það eigi að hætta að setja út á klæðnað, hvort heldur er á kvenfólki eða karlmönnum, en koma heldur með vinsamlegar leiðbeiningar ef hægt er, því að ádeilur hafa aldrei annað en illt eitt í för með sér, að minnsta kosti í svona málum. Og vil ég nú mælast til þess að fólk komi með ráðlegg- ingar í þessum efnum og birti þær þar sem flestir geta fylgst með þeim. Z. okkar biði hádegisverður, ásamt Tourtellæt Hug, hershöfðingja. Blönduð góðri matarlyst var eft- irvænting mikil að sjá þetta margumrædda hótel, sem Vil- helmína Hollandsdrottning, Pét- ur Jugóslafakóngur, Dr. Benes, Eddie Richenbacker, Bob Hope, Jack Benny og fleiri frægir menn höfðu gist. Að utan er hótel þetta með venjulegu „braggasniði," en að innan er það búið öllum nýtízku þægindum, einföldum en sér- staklega smekklegum húsbúnaði og er sagt, að það gefi ekki eftir beztu hótelum erlendis. Nú var haldið af stað aftur og voru nú skoðuð flugvélaskýli, birgðaskemmur og vélaverk- stæði. Þar fær maður svolitla hugmynd um, hversu geysimikl- ar framkvæmdir eiga sér stað þarna. Á viðgerðaverkstæði flug- véla voru flugvélar. svo tugum skipti. Þar voru og hreyflaverk- stæði, viðtækjaverkstæði og fall- hlífaverkstæði, sem mér þótti mjög gaman að sjá. Þar eru fall- hlífarnar opnaðar tíunda hvern dag - reyndar, hengdar upp til þurks, og svo brotnar saman aft- ur. Var okkur sýnt hvernig það er gert, og krefst það verk mik- illar nákvæmni og vandvirkni, þar sem mannslíf liggur við að hver lítill þráður og felling séu í réttum skorðum. Að siðustu var heimsótt lítil loftvarnarstöð sem er mjög með sama sniði og smáherbúðir út á landi. Feng- um við þar tækifæri til að sjá hvern aðbúnað óbreyttir her- menn hafa. Þar eru kvikmynda- tæki í borðsalnuin svo að hægt er að horfa á kvikmynd um leið og matast er. Þarna er lækn- ingastofa, smáverslun sem sel- ur tóbak, sælgæti o. fl. og geta hermennirnir verið öðrum ó- háðir á flestan hátt. Allstaðar var aðdáanlega hreinlegt og vel um gengið, og þrátt fyrir óveðr- ið og svaðið útifyrir, virtist al- staðar hreint og vistlegt inni- fyrir. Nú var orðð áliðið dags og á- kveðið að snúa heim þó margt væri eftir óséð. Við kvöddum nú hershöfðingj- ana og fylgdarmenn þeirra og þökkuðum vinsemd og gestrisni okkur sýnda. Á heimleiðinni var okkur Keflvíkingiim sýnt þvottahús eitt mikið og efnalaug sem ný- búið var að reysa hér nálægt. Er þar þveginn og hreinsaður allur fatnaður hermannanna hér — og eru öll tæki af full- komnustu gerð. Ferð þessi var á allan hátt ánægjuleg og fróðleg. Þakka ég þeim sem hlut eiga að máli, og og vona að ekki verði þess langt að biða að Keflvíkngar megi með eigin augum sjá þessi miklu mannvirki. Lausavísuv Undir þessari fyrirsögn munu fram- vegis birtast vísur, er blaðinu kunna að berast frá hagyrðingum af Suður- nesjum, og er þar átt við þá, er búið hafa á Suðurnesjum lengri eða skemri tíma. Þó ekki hafi farið mikið orð af skáidskap Suðurnesjabúa, þá er það óvíst, að til hafa verið þeir menn, og eru enn, fleiri en margan grunar, sem iðka þá þjóðlegu íþrótt, að færa í bún- ing ferskeytlunnar þá viðburði um menn og málefni, er vekja athygli þeirra og þeir vilja geyma. Því er beint til þeirra, er senda vilja blað- inu vísur eftir sig, eða aðra, að fróð- legt væri að þeim fylgdi frásögn um tilefni þeirra. Vísa þessi, er hér fer á eftir, er tekin úr Formannavísum, sem ortar hafa verið um formennina hér í Kefla- vik og Njarðvík. — Því miður er ekki rúm fyrir þær allar í þessu blaði, en framhald þeirra verður birt við' tæki- færi. Sá hefir hlotið seltu á brár í sóknarlotum skarpur. Mangi í Koti mörg um ár mesti flotans garpur.

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.