Faxi - 01.11.1946, Page 7
F A X I
7
15 ára afmæli.
15 ára afmæli Kvennadeildar Slysavarna-
félags Keflavíkur var hátíðlegt haldið 16.
nóvember, í húsi Ungmennafélagsins. Að vísu
eru 15 ár og nokkrir mánuðir síðan það var
stofnað, en þar sem saga félagsins er ítar-
lega rakin á öðrum stað í blaðinu fer ég
ekki frekar út í það, en mér finnst ástæða
til að rekja með örfáum orðum gang þessa
hófs, sem mun vera eitt hið mesta sem sögur
fara af hér um slóðir.
Það átti að hefjast klukkan 9 stundvíslega,
en að keflvíkskum hætti byrjaði það fullum
hálftíma síðar, og er það mjög bagalegt, þar
sem löng dagskrá liggur fyrir. Hér er aðeins
þátttakendum um að kenna, því að kl. 9
voru ekld yfir 20 af þeim 200 mætt. Ostund-
vísi er orðir. þjóðar vandamál, sem verður
að taka til ítarlegrar íhugunar og róttækra
róðstafana, og verða félagasamtök að ryðja
þar brautina eins og víðar.
Frú Jóna Einarsdóttir bauð félaga og gesti
velkomna, lýsti tilhögun hófsins og stýrði
síðan samkvæminu.
Þá voru mættir meðal gesta Jón Berg-
sveinsson erindreki og frú, Henry Hálfdánar-
son skrifstofustjóri og frú, nokkrar frúr úr
systra deildinni í Reykjavík o. fl.
Frk. Jónína Guðjónsdóttir, formaður félags-
ins rakti sögu félagsins frá byrjun. Þá söng
flokkur kvenna undir stjórn og undirleik
Friðriks Þorsteinssonar, organista. Frk. Inga
Lára Lárusdóttir flutti kveðjur Slysavarna-
deildar kvenna í Reykjavík. Sex skátastúlk-
ur tóku síðan lagið, með gítar undirleik
Guðnýjar Ragnarsdóttur. Séra Eiríkur Bryn-
jólfsson var næsti ræðumaður. Ræddi hann
einkum um álit sitt á takmörkunum valda-
sviðs kvenna. Friðriksfreyjurnar tóku lagið á
nýjan leik, en Henry Hálfdánarson fékk orðið
að því loknu, og flutti kveðjur frá forseta
Slysavarnafélagsins og Slysavarnafélaginu í
heild, rakti síðan þátt Kvennadeildarinnar
hér í björgunarmálum. Benti m. a. á, að
deildin hefði sent Slysavarnafélaginu yfir 53
þús. króna í þeim tilgangi. Skátastúlkurnar
sungu aftur nokkur lög. Þá tók Jón Berg-
sveinsson til máls. Hann túlkaði einkum þau
góðu áhrif, sem verkuðu á alla, er leiddu
af líknar og hjólpar starfsemi kvennanna í
þessum félögum. Því næst var orðið gefið laust
og kvað Alfreð Gíslason, lögreglustjóri sér
hljóðs og mælti hann einkum þakkar og hvatn-
ingarorð á grundvelli þess öryggis sem nauð-
synlegt er að sé, ef friður og ró á að ríkja
í heiminum. Þá las formaður skeyti og kveðj-
ur, sem borizt höfðu, þakkaði fyrir blóm,
kveðjur, ræður og aðra vinsemd sýnda félag-
inu. Samkór allra viðstaddra söng nokkur lög
með undirleik Friðriks Þorsteinssonar. Gam-
anleikurinn „Hættuleg tilraun" var leikinn af
Margréti Arinbjarnardóttir, Elintínusi Júlíus-
syni og Jóni Þórarinssyni, og nokkrir kvik-
myndaþættir úr starfi Slysavarnafélagsins
sýndir að lokum af Henry Hálfdánarsyni og
Guðmundi Péturssyni.
Þegar þessu öllu var lokið var klukkan
orðin hálf þrjú. Kaffi og smurt brauð var
rausnarlega fram borið allan tímann, og voru
menn og konur vel við því búnir að hefja
erfiðasta og síðasta þátt dagskrárinnar, dans-
inn — en eftir honum mun einkum unga
fólkið hafa beðið með nokkurri óþreyju og
stóð svo dynjandi dans eftir tónfalli frá hljóm-
sveit Keflvíkinganna undir stjórn Kristjáns
Helgasonar til kl. 5 um morguninn.
Það er vafalaust hægt að segja að allir hafi
skemmt sér hið bezta í þessu 15 ára afmælis-
hófi og það setti gleðilegan framfarablæ á
samkvæmið að vín sást ekki á neinum manni.
J.
STRAND.
Gufuskipið ROSITA strandaði innan á Há-
kotstanga í Innri-Njarðvíkum aðfaranótt þess
21. nóv. s. 1. Skip þetta kom með sement
til Keflavíkur, og var lokið við að afferma það
kvöldinu áður og lagði það þá þegar úr
höfn, en mun hafa ætlað að bíða birtingar
áður en það tæki Reykjavíkurhöfn, en þangað
var ferðinni heitið. Því mun svo hafa verið
lagt út af Njarðvíkum. Allhvassa hrinu gerði
svo um nóttina og mun þá Rosita hafa slitnað
upp og rekið á land.
Fólk í Innri-Njarðvíkum varð strandsins
vart um kl. 7,30.
Björgunarsveitinni í Keflavík var gert að-
vart undir kl. 9, og brá hún fljótt við og
kom á strandstaðinn eftir fáar mínútur með
öll sín tæki, undir stjórn Jóns G. Pálssonar,
fiskimatsmanns. Fljótlega náðist línusamband
við skipið. Ekki leið á löngu þar til öllum
björgunarlínum hafði verið komið fyrir og
byrjað að draga skipshöfnina í land í björg-
unarstól. En þar sem nokkuð langt var milli
skips og lands drógust skipverjar í sjó á land-
leiðinni, þó tókst allt vel.
A skipinu voru 12 menn og ein kona, 7
þeirra fóru í land og voru flutt á bílum til
Reykjavíkur en skipstjórinn var kyrr um
borð við fimmta mann, enda var veður allgott
FAXI
Blaðstjórn skipa:
Hallgr. Th. Björnsson,
Jón Tómasson,
Ragnar Guðleifsson.
Blaðstjórn ber ábyrgð á blaðinu og
annast ritstjórn þess.
Gjaldkeri blaðsins:
Guðni Magnússon.
Afgreiðslumaður:
Jón Þórarinsson.
Auglýsingastjóri:
Björn Pétursson.
Verð blaðsins í lausasölu kr. 2,00.
Faxi fæst í Bókabúð KRON, Reykja-
vík, og verzlun Valdimars Long,
Hafnarfirði.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
og brimlítið og dráttarbáturinn Magni kom-
inn á vettvang til að gera tilraun til að ná
skipinu út á flóðinu, sem og tókst enda þótt
það væri þá orðið töluvert lekt. Magni dró
skipið svo til Reykjavíkur þar sem það mun
fá viðgerð. Rosita er frá Eistlandi, 60 ára, 500
smálestir að stærð og mun skipshöfnin að
mestu leyti vera Eistlendingar.
J.
Guðmundur Guðmundsson
hefur nú sagt af sér skólastjórastarfinu
eftir 25 ár. Hann var af flestum mjög vel
látinn, enda mun hann hafa leyst þetta erfiða
starf vel af höndum. Þetta er nokkuð hár
starfsaldur en þó mun hann ekki hafa sagt
upp störfum fyrir elli sakir, því enn er hann
ungur og býr yfir miklu starfsþreki. Hitt
mun líklegra, að hann vilji gjarnan skifta um
aðalatvinnu, að þessa tíma sið, enda hugðar-
efni hans fleiri en barnafræðsla. Vafalaust
eru margir nemendur hans sem þakka hon-
um nú fyrir liðnu árin og óska honum til
heilla á þessum krossgötum.
Sá sem tekur við af honum heitir Hermann
Eiríksson. Hann hefur verið hér kennari í
nokkur ár, og einnig skólastjóri Iðnskólans.
Hann hefur verið mjög vel látinn og er full
ástæða til að ætla að hann verði það einnig í
hinu nýja embætti. Það er ábyrgðarmikið
starf sem hann hefur tekið sér fyrir hendur
og fyrir hina upprennandi Keflavík er það
mikið í húfi að þær vonir sem við hann eru
tengdar rætist. En það á hann, að vísu, mikið
undir kennaraliði sínu, sem er að miklu leyti
vel þekkt og að góðu kunnugt.
J.
Umboð fyrir Samvinnufryggingar. Kaupfélagið-
(útibúið Hafnargötu 62)