Faxi - 01.11.1946, Page 8
8
F A X I
Síldarsöltun
var allmikil í verstöðvum skagans í haust,
einkum í Keflavík, en einnig í Grindavík og
Sandgerði. Saltendur voru margir og við-
búnaður allmikill, en þó var ekki hægt að
koma öllu sem á land kom í tunnur eða ís,
því að suma daga var aflinn mjög mikill, og
þá varð að grípa til þess óyndisúrræðis að
skila sjónum aftur því sem umfram aflaðist.
Það er afar leiðinlegt þegar þannig verður
að fara. En síldin er kenjótt og briggðlynd.
Enda varð síldveiðin í ár á öllu landinu full
endaslepp. Hin svokallaða Faxaflóasíld veidd-
ist að þessu sinni langmest langt suðvestur
af Eldey, og mun það hafa hamlað veiðinni
hvað þetta var langsótt og einnig hvað vera
afar ónæðissamt þarna úti í reginhafi og
veldur þar Reykjanesröstin mestu um. Agætt
verð var á síldinni og sökum þeirrar miklu
vinnu sem síldveiðin skapar, þá er jafnan
lif og fjör þar sem „sú gylta“ lætur sjá sig.
J.
Flugvöllurinn
hér í heiðinni hefur nú verið afhentur ís-
lenzkum yfirvöldum af yfirmanni ameríska
setuliðsins. Flugvallarmálið svonefnda hefur
vakið gífurlega harðar deilur í herbúðum
stjórnmálamanna og olli það friðslitum hjá
stjórnarflokkunum, í bili að minnsta kosti.
Hingað til hafa Suðurnesjamenn lagt lítið til
málanna á opinberum vettvangi um þetta mál.
Yfirleitt munu þeir vera samþykkir þessari
lausn málsins. Komið hafa fram ýmsar hug-
myndir að nafngift á flugvöllinn og lítur svo út
sem sumir Reykvíkingar vilji ógjarnan leyfa
Keflavík þann heiður að fá nafn sitt tengt við
þetta mikla mannvirki. En hvað sem því
líður þá hefur nú Keflavík þegar hlotið all-
mikla frægð af vellinum. Nafn hennar hefur
flogið um allan heim bæði í útvarpi og blöð-
um. Og þó að vallarmálið hafi valdið veru-
legum hugaræsingi hér á landi þá er vissa
fyrir því að stórþjóðirnar, sem ekki trúa
100% á friðinn, hafa einnig fengið hjartslátt
af áhuga þegar hið háa Alþingi greiddi at-
kvæði um afdrif þessa máls.
J.
Barnaskólabyggingu í Grindavík
miðar vel áfram. Vonast Grindvíkingar til
að geta tekið, að minnsta kosti nokkurn hluta
hans, í notkun nú á þessum vetri. Eins og
áður hefur verið sagt frá hér í blaðinu mun
þetta verða allra mesta myndar hús.
Öðru máli
gegnir um byggingu barnaskóla hér í Kefla-
vík. Hreppsnefndin hefur þegar ákveðið að
hefjast handa strax og unnt er, og var búizt
við að það gæti orðið á liðnu sumri, en skóla-
nefndinni tókst ekki að fá húsið teiknað.
Teikningin mun þó vera væntanleg bráðlega,
svo að hægt verði að byrja fljótlega, enda ein-
hugur um að láta barnafræðsluna fara fram
við betri skilyrði en að undanförnu.
J.
Marsvín.
Það kemur sjaldan fyrir að hvalir hlaupi
á land hér á Islandi. Þó kemur þetta stund-
um fyrir og þykir jafnan mikill viðburður
enda þótt ekki verði þjóðarfögnuður eins og
mun verða í Færeyjum við slík tækifæri.
Grindin er mjög mikil búbót þar í landi. Suð-
urnesin virðast ekki fara varhluta af þess-
um sjávardýrum. Það eru ekki nema nokkur
ár síðan stór torfa af marsvínum hljóp á
land í Njarðvíkinni og 3. og 4. júlí í sumar
kom hvalatorfa á land í Leirunni. Það voru
alls 66 marsvín. 64 þeirra komu í flæðarmál
Bakkakots og sitt hvort í fjöru Litlhólms og
Stórhólms. Hvalirnir voru skornir og komið í
mat eftir megni. Kjötið var selt í Keflavík og
víðar fyrir 3,00 kr. pr. kg. Ekki mun þó hafa
orðið góð nýting af hvalreka þessum. Er
sennilegt að verkunaraðferð eða öðrum ó-
kunnugleik hafi verið um að kenna.
J.
Varðan.
Nýlega hófst útgáfa á blaði með þessu nafni.
Skátafélagið Heiðabúar er útgefandi þess og
fjallar það um skátamálefni fyrst og fremst.
Það er fjölritað og samið af skátunum sjálf-
um. Stærð þess eru fjórar síður í nokkuð
stóru broti. Aferð og frágangur er góður og
þess má vænta að marga fýsi að sjá Vörð-
una og þá einkum aðstandendur þeirra barna
og unglinga, sem eru útgefendur hennar. Faxi
óskar blaðinu góðs gengis og langra lífdaga.
J.
Herverndin og
ástandið.
í Ameríku breyta þeir mold í mjólk og ull.
Hjá mörlandanum finnast engir slíkir.
Ur verstu tegund bergsins þeir vinna
skíra gull
og verða líka óskaplega rikir.
Þó íslendingar þykist á öllu kunna skil
er engum fært að skilja hvað þeir meina
því ánægjuna kæfa þeir úlfúðar í hyl
og ekta gulli breyta þeir í steina.
Og stjórnarvöldin sáu hver voði á ferðum var
en vildu hyggið fólk og digra sjóði
þau sömdu því við valdamenn vesturálfunnar
að veita hingað amerísku blóði.
Og hermenn voru sendir að hitta íslenzk fljóð,
sem hugarburð og skraf ei þoldu lengur,
og trúðu helzt á verkin til vaxtar sinni þjóð.
En víða skorti þegnlund eins og gengur.
Og Islands stjórn skal þakka en ekki vekja pex
þó ástaheit og tryggðabjörgin klofni.
Því nú er öllu borgið og næsta kynslóð vex
af nógu traustum amerískum stofni.
S. Jóhannesson.
Ofíusamlag
Keflavíkur
tilkynnir!
Framvegis verður olía
keyrð út í hús alla virka
daga frá kl. 9 f. h.
til 5 e. h. og skal hún
greiðast við móttöku.
Að gefnu tilefni skal það
tekið fram, að
þýðingarlaust er að gera
pöntun á olíu hjá
afgreiðslumanni samlagsins,
sem ætlast er til,
að komið sé með eftir
kl. 5 e. h., þar sem
starfsmaðurinn er algerlega
óháður samlaginu utan
síns vinnutíma.
Símanúmer
Olíusamlags Keflavíkur
eru 127 og 77.
Einnig má panta olíu í
síma 87.
Málning og veggfóður. Kaupfélagið.