Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1957, Blaðsíða 18

Faxi - 01.02.1957, Blaðsíða 18
30 F A X I e><><xxx<><xx><xxxx><><xxx><x><><x><><xxx><xxxxxe><><x><xxx><x><><x><><x><xxxx><><><xx><xxx<><xxxxxxxxxxxxx><><xxx><£><><><x>^^ I Tilkynning fró skrifstofu Keflavíkurbæjar Samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar Keflavíkur, ber út- svarsgjaldendum í Keflavík að greiða upp í útsvör þessa árs sem svarar 50% af útsvari fyrra árs, á gjald- dögum 1. marz, 1. apríl, 1. maí og 1. júní, sem næst 12,5% hverju sinni. Keflavík, 25. febr. 1957. Bœjargjaldkerinn xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx Aðalfundur Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags íslands, verður haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugar- daginn 1. júnt 1957 og hefst kl. 1.30 e. h. 1. Stjúrn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga ti! 31. des. 1956 og efna- hagsreikning með athugasemdum endurskoðenda, svör- um stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endur- skoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu ársarðsins. 3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins. 4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins varaendurskoðanda. 5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins. 6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að vera borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 27.—29. ma! næstk. Menn geta fengið eyðublöð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Oskað er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins í hendur til skrásetningar, ef unnt er 10 dögum fyrir fundinn, þ. e. eigi síðar en 19. maí 1957. Reykjavíl{, 8. janúar 1957- STJÓRNIN. ^xxxxxxxxxxxxxxx^^><xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx3><xxxxxxx><xxxx><xxx><xxxxxxx><xxxxx><xx> Samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar Keflavíkur auglýsist hér með eftir tillöguuppdrætti að skjaldarmerki fyrir Keflavík. Eitt þúsund króna verðlaun verða veitt fyrir þann uppdrátt, sem vænt- anlegt skjaldarmerki verður gert eftir. Uppdrættirnir sendist í bæjarskrif- stofuna, í lokuðu umslagi, með höf- undarmerki, fyrir 15. marz, n.k. Kejlav'tl(, 9. jan. 1957. Bœjarstjórinn CXXVXX

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.