Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1957, Blaðsíða 1

Faxi - 01.05.1957, Blaðsíða 1
FAXI 4.-5. tbl.'XVII. ár APRÍL-MAÍ 1957 lllgefandi: Málfundafélagið Faxi Keflavík. Lélegri vertíð senn lokið Eins og meðfylgjandi aflaskýrsla ber með sér, hefur vertíðin að þessu sinni gengið mjög illa, hvað snertir aflabrögð á línubátunum. Hins vegar hafa gæftir yfir- leitt verið góðar, eins og róðrafjöldi bát- anna í skýrslunni sýnir. Reyndar má geta þess, að nú hófst vertíð strax upp úr ára- mótunum, eða þrern vikum fyrr en í fyrra. En gæftir í janúar voru hins vegar stirðar, þegar róið var út fyrir skaga, en aftur á móti reru þá margir með ýsulóð. Loðnuveiði til beitu hófst um mánaða- mótin febrúar—marz og hélzt fram undir páska. Lítill sem enginn munur varð á aflabrögðum bátanna meðan loðnunni var beitt, — svipuð aflatregða mátti segja að héldist út alla vertíðina, að undanskildum örfáum róðrum, sem afli var lítið eitt betri. Inflúenzufaraldur gekk ekki á þessari vertíð, eins og oft liefur verið að undan- förnu, svo að ekki tafði það veiðarnar að þessu sinni. Pað, sem hér hefur vcrið sagt um aflabrögð á línubáta, gildir um allar verstöðvarnar á Suðvesturlandi, sem stunda línuveiðar. Þó mun þetta vera einna skárst í Sandgerði. Þorskveiðar í net gengu hins vegar mun betur, en sú veiðiaðferð er cinna mcst stunduð frá Vestmannaeyjum, Grindavík, Hafnarfirði og Rcykjavík, auk nokkurra annarra smærri verstöðva og einnig af ör- fáum bátum úr Keflavík og Akranesi. En netaveiði hefur aukizt á undanförnum ár- um í þessurn verstöðvum og má í því sam- bandi benda á betri veiðarfæri, þar scm nylon netin eru. Vertíð er nú að ljúka í flestum verstöðv- um hér sunnanlands, og hætta ýmsir bátar nokkru fyrr, vegna aflatregðunnar, t. d. bættu sumir aðkomubátar strax upp úr páskunum. Magnús Bergmann. Einar Guðmundsson. svo að fleiri báturn gefist kostur á að stunda hana og geti selt afla sinn við sæmi- legu verði. Sú síld, sem nú hefur veiðst, cr fryst til útflutnings, en hér er aðeins um lítið og óverulegt magn að ræða. Eftirfarandi samanburður sýnir afla- brögð þriggja síðustu vertfða í Keflavík, miðað við apríllok hvert ár. Ber saman- burðurinn það með sér, að útkoman núna á þessari vertíð er tæpum tveim lestum verri að meðaltili í hverjum róðri og fer afkoma bátanna vitanlega eftir því. F.ins og aflaskýrslan ber með sér, eru bátarnir Kópur og Hilrnir aflahæstir, en þar sem róðrum var ekki lokið, þegar blaðið fór í prentun, verða lokatölur þar um að bíða næsta blaðs, cn hins vegar þótti rétt og skylt, að birta hér myndir af skipstjórum þessara aflahæstu báta Keflavíkurflotans, sem báðir eru þekktir aflakóngar. Yfirlit um róðrafjölda og aflamagn þeirra báta, sem róið hafa frá Keflavík með línu vertíðirnar 1955, 1956 og 1957. Yfirlitið miðast við tímabilið frá ára- mótum til aprílloka ár hvert. Vertíðin 1955. Þá reru 38 bátar með línu og öfluðu samtals 20805 lestir í 2993 róðrum. Meðalafli á bát var þá 547,5 lestir. Meðalafli í róðri var þá 6951 kg. Vertíðin 1956. Þá reru 44 bátar með línu og öfluðu samtals 17507 lestir í 2688 róðrum. Meðalafli á bát var 397,9 lestir. Meðalafli í róðri 6513 kg. Nú hafa ýmsir bátar hafið síldveiðar Vertíðin 1957. með góðum árangri surna dagana. Er ó- Þá reru 46 bátar með línu og öfluðu venjulegt að bátar hefji síldveiðar svo samtals 14639 lestir í 3070 róðrum. snemma árs, en hins vegar er nauðsynlegt Meðalafli á bát 318,2 lestir. að geta nýtt þessa veiði, þegar hún gefst, Meðalafli í róðri 4768 kg.

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.