Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1957, Síða 1

Faxi - 01.10.1957, Síða 1
FAXI 7. tbl. • XVII. ár OKTÓBER 1957 Ú tgefatidi: Málfundafélagið Faxi Keflavík. Skátafélagið Heiðabúar 20 ára Afmælishútíð „Heiðabúa" fór fram 15. seþtember s.l. en þá voru liðin rétt 20 ar frá stofnun félagsins. A sunnudagsmorguninn söfnuðust skát- arnir saman við hús sitt og var gengið þaðan fylktu liði til kirkju. Séra Jakob Jonsson messaði og skírði 5 börn skáta- mæðra, þeirra Jóhönnu Kristinsdóttur, Ingibjargar Elíasdóttur, Sigurveigar Hauksdóttur, Helgu Atladóttur og Guð- laugar Bergmann. Mæðurnar voru allar í skátabúningum sínum og héldu sjálfar bö rnunum undir skírn. Var þetta fögur og hátíðleg athöfn. Síðdegis var sýnd í Bíóhöllinni l-tvik- mynd frá skátamótinu á Þingvöllum 1948 við liúsfylli skáta og annarra. Um kvöldið var svo afmælishóf í sam- komuhúsi Njarðvíktir. Þar var saman- komið 330 manns, skátar eldri og yngri og margir þeirra elclri langt að komnir. Meðal boðsgesta var stjórn Bandalags ís- lenzkra skáta og félagsforingjar nágranna- féla ganna svo og nokkrir skátar aðrir úr Reykjavíkurfélögunum og frá Hafnar- firði. Bæjarstjórn Keflavíkur, skólastjór- arnir og nokkrir vinir og velunnarar fé- lagsins í Keflavík sátu einnig hófið. Meðan á sameiginlegri kaffidrykkju stóð, var varðeldur á leiksviðinu, en Inga Arnadóttir stjórnaði lionum. Skiftust þar a leikir og söngur í meira en 3 klukku- tnna. Undir borðum voru ræður fluttar. Helgi S. Jónsson, félagsforingi „Heiða- búa“ rakti sögu félagsins í stórum drátt- um og félagsforingjar hinna félaganna Huttu kveðjur og afhentu gjafir til félags- ms. Höskuldur Goði Karlsson, sveitar- foringi, mælti fyrir minni Helga S., sem stofnaði félagið og verið hefur óslitið for- mgi þess í bliðu og stríðu á liðnum aldar- fimmtungi. Jónas B. Jónsson flutti lcveðju fra BÍS og sæmdi Jón Tomasson hciðurs- merki Bandalagsins fyrir langt og gott slarf. Hrefna Thynis sæmdi lteiðurs- merkjum frá bandalaginu, þær Jóhönnu Kristinsdóttur aðstoðarfélagsforingja, Ingu Árnadóttur sveitarforingja og flokksfor- ingjana Jönu Erlu Olafsdóttur og Jónu Margeirsdóttur. Jana og Jóna eru báðar erlendis og tóku því mæður þeirra við heiðursmerkjunum. Gunnar Þ. Þorsteinsson og Helga Krist- insdóttir aflientu Helga S. fagurt og dýr- mætt málverk eftir Jón Stelánsson list- málara, frá Heiðabúum bæði eldri og yngri. Kveðjur og skeyti bárust hvaðanæfa, frá Ameríku, Englandi og Danmörku og Kanada, því 20 Heiðabúar eru ýmist bú- settir erlendis eða dvelja þar langdvölum. Mikill fjöldi skeyta barst frá einstakling- um bæði af landi og sjó. Þegar borð voru upp tekin, hófst dans með einum ferlegum villimannadansi. Þá var og nokkrum gömlum og nýjum æfi- félögum afhent skírteini sín. Afmælishátíðin fór öll hið bezta fram og rifjuðu skátarnir upp minningar frá liðnum dögum. Margir þeirra höfðu ekki sést lengi. Við þetta tækifæri flutti Helgi S. Jóns- son aðalræðuna, þar sem rakin er saga félagsins frá stofnun þess og fram á þennan dag. Mun ræðan síðar birt hér í blaðinu. Stofnendur Heiðabúa 15. sept. 1937. Fremri röð: Marteinn Árnason, Gunnar Þorsteinsson, Helgi S. Jónsson, félagsforingi, og Arn björn Ólafsson. Aftari röð: Ólafur Guðmundsson, Óskar Ingibergsson, Alexander Magnús- son og Helgi Jónsson.

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.