Faxi - 01.12.1957, Blaðsíða 23
F A X I
131
—— —.—,— — —.
NÝJA FISKBÚÐIN FRÁ VERKALÝÐS- OG
Selur ykkur daglega: frá kl. 9—12 f. h. SJÓMANNAFÉLAGI KEFLAVÍKUR
og 4—6 e. h.
Nýjan og saltaðan fisk. Þá verkamenn í Keflavík og Njarðvíkum,
Keykt og saltað hrossakjöt og fleira í
matinn. sem ennþá hafa ekki tryggt sér félagsrétt-
Góðar kartöflur og allskonar pakka- indi í VERKALÝÐS- OG SJÓMANNA-
vörur. FÉLAGI KEFLAVÍKUR, viljum við hér
Góðar og ódýrar hreinlætisvörur. með minna á, að bótaréttur samkvæmt
Framleiðir hina viðurkenndu og góðu lögum um atvinnuleysistryggingar er
Hamsatolg. bundinn því skilyrði, að viðkomandi laun- .
Munið þjóðarréttinn á Þorláksmessu, Skötuna góðu með Hamsatólg útá. þegi sé fullgildur meðlimur í viðkomandi
verkalýðsfélagi.
Gleðileg jól! Farscelt \omandi ár. Keflavík, 30. nóv. 1957.
NÝJA FISKBÚÐI N
Hringbraut — Sími 826. Verkalýðs- og Sjómannafélag Keflavíkur
*
ast um hvernig gangi, þá er honum sagt
umbúðalaust að honum komi það ekkert
við; hann geti hara haldið sig á sinni leið-
inda símastöð — en daginn eftir hefur
hann þó tekið á móti aurunum og talið
vel og vandlega — og að sjálfsögðu
harmað mjög hve síminn missti þar spón
úr aski.
Að fyrirmynd Heiðabúa hafa þessar
skeytasendingar breiðzt út um allt land
og verið hvarvetna vel tekið og orðið
mörgum skátafélögum fjárhagsleg stoð. —
Við erum stoltir af því að á þessu sviði
hefur Keflavík orðið til fyrirmyndar öðr-
um. — Mestur hluti af starfsemi Heiða-
búa er ekki á yfirborði dagsins. — Við
tökum þátt í þjóðhátíðinni 17. júní, veit-
um aðstoð þegar forsetar koma — hjálp-
um við hitt og þetta þegar þess er óskað
eða þarf. — A stríðsárunum var kjarni
hjálparsveitanna, yfirstjórn þeirra og skipu-
lag allt í höndum skátanna — söfnun
fyrir alþjóða-barnahjálpina var fram-
kvæmd af skátunum — nú erum við að
undirbúa og skipuleggja hjálparsveit og
blóðgjafasveit. Mörg önnur smærri verk-
efni hafa einnig fallið í hlut skátanna —
og við erum í dag þakklát fyrir traust
og vinsemd, þakklát fyrir að hafa fengið
að koma við sögu í mörgu því sem byggð
okkar og samferðafólki hefur á einhvern
hátt til heilla orðið.
Skátastörfin, nám og æfingar fara fram
í flokkunum og sveitunum, þar sem er
lært og kennt. Það eru ekki áberandi störf,
þó að þau fylli upp frítíma foringjanna.
Það kann að vera, að eitthvað af því, sem
lært er, komi að gagni síðar — skátinn
kann að hnýta réttan hnút á réttum stað —
binda um fingur, átta sig og rata og getur
sagt öðrum til vegar. — Oll kennsla og
nám miðar að því að vera viðbúinn hverju
sem að höndum ber og að hjálpa öðrum.
Skátaheitið og skátalögin eru okkar mikla
markmið, þau vinna kyrlátlega og hljóð-
lega, eins og dropinn, sem holar steininn.
A jólum, þegar skólafólkið kemur
heim, þá höfum við okkar skáta-jól —
litla jólahátíð með sérstökum blæ. — Þegar
vorar þá eru tjöldin tekin fram og heiðar
og há fjöll lögð undir fót. — Samneytið við
náttúruna er mikill og sterkur þáttur í
öllu skátalífi — enda á skátahreyfingin
ætt sína að rekja til hinna frumstæðu
bræðra í sólarlöndunum sígrænu. —
Margir siðir okkar, sem sumum finnst
framandi og kjánalegir, er arfur frá nátt-
úrunni og lögmálum hennar — það er
arfur frá hinu óspillta lífi, sem öll hin
glæsilega menning megnar ekki að beygja
eða sveigja til hliðar. — Hinn virðulegi
borgari fær annan og sannari svip upp á
fjöllum. — Frá fjöllunum, úr faðmi nátt-
úrunnar koma allir menn betri til baka.
Þó að Heiðabúa-saga sé enn ekki löng,
þá á hún víða spor. Við höfum engin
afrek unnið, engin heimsmet sett, ekki
fært nein verðlaun, gull né silfur heim í
okkar byggðarlag sem slíkir, en þess skal
minnst, að allt okkar bezta íþrótta-afreka-
fólk eru líka skátar — þó að sá ljómi falli
eðlilega á þeirra íþróttafélag.
Nú þarf ekki að örvænta um líf og
framtíð félagsins. Það er borið uppi af
ungum nýjum kröftum, við gömlu menn-
irnir úr fyrstu flokkunum og þær gömlu
úr 3. sveit — við getum með gleði og
sátt litið yfir farinn veg og vörðurnar,
sem einhver okkar hlóð halda áfram að
vísa veginn kynslóðum nýrra skáta.
Eg vil svo þakka ykkur foringjum og
skátum, drengjum og stúlkum — þakka
ykkur öll störfin á liðnum árum, þakka
ykkur þá auðlegð minninga, sem skapazt
hafa við samveruna í þessu félagi okkar
á liðnum 20 árum.
Eg flyt skátaforeldrum og öðrum vin-
um okkar hugheilar þakkir fyrir um-
burðalyndi þeirra, velvild og skilning
bæði fyrr og síðar. — Þakka ykkur öllum.