Faxi - 01.11.1960, Blaðsíða 1
9. tbl. • XX. ár
NÓVEMBER
1960
U tgefandi: ;;
Málfundafélagið Faxi ;;
Keflavík ;;
Knattspyrnufélagið Reynir
25 ára
15. sept. s. 1. varð Knattspyrnufélagið
Reynir í Sandgerði 25 ára. Félagið var
stofnað árið 1935 og voru aðalhvatamenn
að stofnun félagsins þeir Trausti Jónsson
Magnús Þórðarson og Páll O. Pálsson.
Fyrstu ár félagsins var félagið fámennt
og öll aðstaða til æfinga slæm. Knatt-
spyrnuvöllur var enginn til og húsnæði til
inniæfinga var ekkert. Urðu Reynismenn
því að notast við fjörusandinn í Sandgerði
en þar varð að sæta lagi til æfinga og oft
voru æfingar stundaðar af slíku kappi að
hálf flætt var yfir völlinn þegar hætt var
á æfingu.
Nú eftir 25 ára starf er þetta breytt.
Félagið er nú orðið fjölmennt og það
hefur komið sér upp allgóðum knatt-
spyrnuvelli og ágætu félagsheimili. Fyrir-
hugaðar eru frekari framkvæmdir hjá
Reynismönnum, m. a. hafa þeir hug á því
að koma sér upp fyrsta flokks grasvelli
með aðstöðu til frjáls íþrótta, og einnig
hafa þeir hug á að koma sér upp sundlaug.
Er meiningin að þessi mannvirki rísi upp
á nýju íþróttasvæði sem félaginu hefur
verið úthlutað, en það er rétt ofan við
félagsheimilið.
Sigurscelir \nattspyrnumenn.
Sandgerðingar hafa ætíð átt sterkt knatt-
spyrnulið. Hafa þeir oft náð undraverðum
árangri á móti sterkum meistaraflokks-
liðum, m. a. léku þeir við íslandsmeist-
ara K. R. sumarið 1956 og gerðu jafntefli
við þá 4:4. Þá hafa Reynismenn þrisvar
orðið Suðurnesjameistarar í knattspyrnu
og síðan farið var að keppa í II. deild á
Knattspyrnumóti Islands hafa þeir ávalt
komist langt í þeirri keppni. Þá hafa
nokkrir leikmenn félagsins verið valdir í
úrvalslið t. d. léku þeir Eiríkur Helgason
og Gunnlaugur Gunnlaugsson með góðum
árangri með Reykjanesúrvali á móti lands-
liðinu sumarið 1959.
Sandgerði — Vagar.
Arið 1957 tóku Sandgerðingar upp sam-
vinnu við íþróttafél. í Vági i Færeyjum.
Hafa Reynismenn tvívegis farið utan, fyrst
sumarið 1957 og aftur s. 1. sumar. Færey-
ingar heimsóttu svo Sandgerðinga sumar-
ið 1959 og fyrirhugað er að þeir komi
aftur næsta sumar. Samskiftum Sandgerð-
inga og Færeyinga er þannig háttað að
þeir heimsækja hvorir aðra til skiftis. Er
hér um bikarkeppni að ræða og verður
keppt um bikarinn í 6 ár þ. e. þrisvar
Meistaraflokkur
Reynis, sem
sigraði K. R. í
afmælisleiknum.
Talið frá vinstri:
Vilhjálmur Ólafs-
son, Kári Sæ-
björnsson, Björn
Maronsson, Ólafur
Stefánsson, Eyj-
ólfur Gíslason,
Eiríkur Helgason,
Magnús Þórðar-
son, form. Reynis,
Gottskálk Ólafs-
son, John Hill,
Karl Einaí'sson,
Ari Einarsson,
Ólafur Gunn-
laugsson og
Gunnlaugur
Gunnlaugsson.