Faxi - 01.12.1960, Blaðsíða 11
F A X I
155
Sandgerði og höfnin séð úr lofti.
— Hér í Sandgerði er starfandi Knatt-
spyrnufélagið Reynir, sem nýskeð átti sitt
25 ára starfsafmæli, eins og getið var um
í síðasta tölublaði Faxa. Er það þróttmikill
og heilbrigður félagsskapur. Þá er hér
einnig starfandi kvenfélag og verkalýðs-
og sjómannafélag, sem bæði vinna gott
verk, hvort á sínu sviði. Og nú í haust var
stofnuð lúðrasveit, sem æfir af kappi um
þessar mundir, og er þess vænzt, að hún
láti til sín heyra nú um áramótin. Hefur
hreppsnefnd og hreppsbúar allir tekið vel
þessari félagsstofnun og stutt hana með
ríflegu fjárframlagi.
— Viltu botna þetta viðtalsrabb okkar
með nokkru sérstöku, Björn?
— Eg vil benda á, að fram til þessa hef-
ur samstarf milli Sandgerðis og Keflavík-
ur verið gott og vinsamlegt. Þetta sam-
starf þarf og hlýtur að aukast með batn-
andi símaþjónustu og betri samgöngum.
Er hér um margvísleg hagsmunamál að
ræða, sem gætu verið sameiginleg, t. d.
bankaþjónusta, sjúkrahúss- og skólamál,
svo nokkuð sé nefnt. Þó slíkar stofnanir
hljóti að vera dýrar í rekstri, þá eru þær
nauðsynlegar og án þeirra verður ekki lif-
að menningarlífi. Sakir stærðar sinnar og
legu, er Keflavík kjörin höfuðborg Suður-
nesja og ættum við, sem eigum búsetu í
nágrenni hennar, að hafa áhuga og vilja
til að efla þessar stofnanir hennar, svo þær
geti veitt öllum Suðurnesjamönnum sem
fullkomnasta þjónustu.
H. Th. B.
•h
•V
BÓKABÚÐ
við lestur góðra bóka
KEFLAVÍKUR
Jólavers.
Ljósin á himninum ljóma,
lifandi guð er í verki.
Herskarar englanna hljóma.
Heilagi mátturinn sterki,
Jesú á jólunum sendir
jarðnesku barnanna ljósið.
Á miskunn hans aldrei er endir.
Að eilífu sé honum hrósið.
----+
G. F.