Faxi - 01.12.1964, Blaðsíða 35
Barnablaðið Æskan 65 ára
Hver sá, sem ber í brjósti sér einlæga þrá
til að styðja og styrkja æskumanninn og
beina för hans inn á réttar og heillavæn-
legar brautir, vinnur í víngarði höfundar
lífsins, — hjálpar guði í hans mikla sköp-
unarstarfi og uppsker að launum blessun
hans og tiltrú allra góðra manna.
Hver sá, sem velur sér vorið til fylgdar,
knúinn fram af mannkærleika, miskunn-
semi og bróðurhug, gengur áreiðanlega á
guðs vegum. A þeim vegum hefur barna-
blaðið Æskan gengið frá upphafi sinnar
tilveru fyrir 65 árum, er hún fyrst leit
dagsins ljós. Hún er eitt af aldamótabörn-
um þjóðarinnar, fædd og fullsköpuð á
vormorgni íslenzkrar frelsishyggju og
vaknandi þjóðarmetnaðar. Hún er frum-
getin dóttir hinnar ágætu Stórstúku Is-
lands og sannkallað óskabarn lands og
lýðs.
Og nú, þegar þetta óskabarn er að verða
hálfsjötugt, vil ég nota tækifærið og senda
því kveðjur og margfaldar þakkir fyrir
órofa tryggð þess við sitt háleita mann-
bótastarf.
Sjálfsagt hafa fáar þjóðir veraldar um-
breytt atvinnu- og lífsvenjum sínum á
jafn skömmum tíma og við íslendingar.
Svo til allt hefur fengið hér nýjan tilgang
og annan svip en það hafði um aldamótin
síðustu. Og þó segja megi, að vel flestar
breytingarnar hafi orðið til stórra bóta, þá
a það því miður ekki við um alla hluti.
En eins og skáldið kvað: „----Móður-
ástin býr á bjargi og breytir aldrei sér,“
þá á það einnig við um tilgang og tilveru
Stórstúku Islands og barnablað hennar,
Æskuna. Sínu upprunalega mannbóta-
leið. Þegar þau komu til Arnarstapa, var
Ouðmundur látinn hátta ofan í rúm, en
bóndinn, Sigmundur, tók að sér að koma
ljósmóðurinni upp að Alftártungu, enda
var veðrið þá tekið mjög að skána.
Það þykir vera frásagnarvert í þessu
sambandi, að þegar ljósmóðirin kom inn
ur dyrunum á Alftártungu, eftir alla þessa
hrakninga, brá svo við, að sængurkonan,
Sesselja, tók jóðsótt og fæddi barnið, svo
að segja samstundis. Var engu líkara en
einhver hulin hönd hefði stjórnað þessu,
eða var konan sjálf svo máttug í veikleika
sínum, að hún hafi getað beðið komu
ljósmóðurinnar með að fæða barnið?
H. T/i. B.
starfi heldur Æskan áfram, ótrauð og
sigurglöð. Hún fylgist vel með tímanum
og flytur sínum ungu lesendum bæði
fræðandi og skemmtandi lesefni. Raunar
má segja, að í hverju blaði Æskunnar sc
að finna sithvað við hæfi hinna fullorðnu
líka, enda er hún aufúsugestur allra, sem
til henar þekkja. En burt séð frá öllu þessu,
er aðaltilgangur blaðsins æ 'hinn sami og í
upphafi, að laða það góða fram í barnssál-
unni, benda hverju ungmenni á góð og
göfug foræmi og vara þau jafnframt við
hættunum, skaðlegum eiturnautnum og
slæmum lífsvenjum.
Barnablaðið Æskan hefur löngum haft
í þjónustu sinni mikilvirka hugsjónamenn,
sem rækt hafa starf sitt við blaðið af alúð
og samvizkusemi, svo að til hreinnar fyrir-
myndar má telja, enda hefur biaðið ætíð
verið í fremstu röð sinnar tegundar, gagn-
legt, skemmtilegt og fallegt. Ritstjórinn,
Grímur Engilberts, og afgreiðslumaður-
inn, Kristján Guðmundsson, eiga miklar
þakkir fyrir frammistöðu sína, sem er að
mínu viti alveg frábær. Þetta fallega blað
þeirra á engan sinn líka hér á landi, hvorki
að efni né útliti.
Megi sú verða afmælisgjöfin til þessa
ágæta barnablaðs, að það verði keypt inn
á hvert einasta íslenzkt heimili. Þannig
mundi „Æskan“ bezt ná sínum hugsjóna-
ríka, mannbætandi tilgangi.
H. Th. B.
><<<><<<><><><><><<<<><><><<><><><><><><><><><><<<<><<< ?><><><<þ<<><<><><>^^
KEFLAVSK - SUÐURNES
FRAMKVÆMUM
ALLSKONAR
MYNDATÖKUR
Á stofu.
I heimahúsum.
I samkvæmum.
Passamyndir.
Ökuskírteinismyndir.
Eftirtökur á gömlum myndum.
Auglýsingamyndir.
Pantið í síma 1890 eða 1133.
Ljósmyndastofa Suðurnesja
Túngötu 22 — Keflavík — Sími 1890 — Pósthólf 70
c<<<><<><><><<><><<<<><><><><><><<<<<<><<<<><><><<><><^
CLOROX
■ u,
Fjólubláa blævatnið „Clorox“ inniheldur ekkert klór-
kalk né önnur brenniefni og fer því vel með þvottinn.
Apótek Keflavíkur
1 ‘ < Suðurgötu 2. ' «
Opið vir\a daga \l. 9—19. — Laugardaga \l. 9—16. — Sunnudaga \l. 13—16.
ö<><3><3><><3><><5><><^<3><3><><3><><3><3><><3><3><><í><><><>0<><; ^»<><><><><3><><><><><3><3><3><><3><3><><><><><3><><><><3><><><J><3><><3><>0<><
F A X I — 187