Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1968, Síða 5

Faxi - 01.01.1968, Síða 5
Hugleiðingar um stækkun sveitarfélaga og þróun Reykjanesskaga Framsöguerindi, flutt á málfundanámskeiði Iðnaðarmanna- félagsins 28. febrúar 1967. Það er skoðun fjölmargra góðra manna, bæði meðal Keflvíkinga og Njarðvíkurbúa, — og þeirri skoðun vex stöðugt fylgi, að Kefla- víkurbær og Njarðvíkurhreppur eigi að sam- einast á ný, að þvi yrði hið mesta hagræði fyrir báða þessa staði. Fjölmargar gildar stoðir renna undir þessa skoðun og því fleiri, sem málið er betur rannsakað. Einn þeirra, sem þetta hefir gert, er Eyþór Þórðarson. Á s. 1. vetri flutti hann um þetta mál fróðlegt erindi á málfundanárrískeiði Iðnaðarmannafélags Suðurnesja, eða nánar til tekið þann 28. febrúar 1967. Þar rekur hann í stuttu en skýru máli þróunarsögu hreppa og byggðarlaga á Suðurnesjum, leiðir fram góð og gild rök og vísar í fornar og nýjar heimildir máli sínu til stuðnings. Þar eð erindi 'þetta þótti hið athyglis- verðasta, fékk ég leyfi höfundar til að birta það hér i Faxa, svo að mönnum gefist kostur á að kynnast þessum sjónarmiðum og mynda sér skoðanir um málið á sem víðustum grundvelli. H. Th. B. Herra fundarstjóri, góðir fundarmenn. Efni erindis míns er eitt af þeim málum, sem nú eru nokkuð rædd, eða stækkun sveitarfélaga, sem almennt er talið, að sé til hagsbóta fyrir þjóðarheildina. Þar sem tími er takmarkaður til umræðna um þessi mál, þá hef ég valið þann kostinn að beina umræðum í meginatriðum að okkar heima- byggð eða byggðarlögum á Reykjanes- skaga og þá sérstaklega Keflavík og Njarð- vík. Það, sem einkum hefur vakið áhuga minn fyrir því, að við hugleiddum nokkuð þessi mál, er útvarpscrindi, er ég hlvddi á, þriðjudaginn 21. febr. 1967 um stækkun sveitarfélaga, flutt af Hjálmari Vilhjálms- syni, ráðuneytisstjóra, og grein, er birtist í desemberblaði Faxa 1963 um Keflavík og Njarðvík eftir Unnar Stefánsson, full- trúa hjá Sambandi íslenzkra sveitarfélaga. Eg vil strax í upphafi erindis míns taka ákveðna afstöðu í þá átt, að ég tel, að sveitarfélög séu hér of mörg og hafi of lítið samstarf. Hagstæðara væri fyrir íbúa sveitarfélaganna á Reykjanesskaga og þjóð- arheildina, að þau væru færri. Því teldi ég eðlilegast að taka nokkuð til athugunar upphaf og þróun byggðar á Reykjanes- skaga. Það litla, sem Landnáma segir um upp- haf byggðar á Suðurnesjum er eftirfar- andi: „Steinunn in gamla frændkona Ingólfs fór til Islands og var með honum inn fyrsta vetur. Hann bauð að gefa henni Rosmhvalanes allt fyrir utan Hvassahraun, en hún gaf fyrir heklu flekkótta enska og vildi Kaup kalla. Henni þótti það óhætt- ara við riftingu. Steinunn hafði átt Herlaug bróðir Skallagríms, þeirra synir voru Njáll og Arnór,,.1.) Þetta er öll landnámssaga Steinunnar gömlu og næstum allt og sumt, sem um hana verður vitað eftir rituðum heimild- um. Þó víst sé talið, að við Islendingar sé- um af norrænum uppruna, þá eru miklar líkur fyrir því, að Steinunn landnámskona sem er talin vera sú fyrsta, sem reisti sér bú á Suðurnesjum, hafi komið frá Vestur- löndum. Synir hennar hétu Njáll og Arn- ór. Njálsnafnið bendir til þess, að hún hafi komið frá Vesturlöndum og styrkist það við frásögnina um ensku hekluna, er hún gaf Ingólfi fyrir landnámið. Hún hafði enska vöru og getur maður því ætlað, að það hafi verið fleira af því tagi í fórum hennar, en hekla þessi, því að bæði vík- ingar og landnemar fluttu með sér nokkr- ar birgðir af varningi frá þeim löndum, sem þeir lögðu frá, er þeir fóru í herferðir eða landaleit.2) Talið er, að Steinunn hafi reist sér bú að Stóra Hólmi í Leiru og hafi rekið þar um árabil mikið höfuðból og verstöð. Það er talið, að á landnáms- öld hafi Keflavík og Njarðvík verið sel frá Stóra-Hólmi í Leiru.4) Hið forna höfuðból Steinunnar gömlu er nú komið í eyði, en sel hennar eru aftur á móti ört vaxandi byggðarlög. I bókum um landnám Ingólfs er getið um, að í Rosmhvalaneshreppi hafi verið Keflavík, Leira, Garður og Miðnes og allt að Osabotnum. Greinilegt er, að Njarðvíkur eru teknar undan Rosmhvalanesi, er hreppar eru myndaðir.6) Njarðvíkur, Vantleysuströnd og Vogar mynduðu Vatnsleysustranda- hrepp. Fyrsta breytingin, sem gerð er á Suður- nesjum er, að Njarðvíkur segja skilið við Vatnsleysustrandahrepp og sameinast Rosmhvalaneshreppi árið 1885°). Næsta breytingin á breppaskilum er, að Miðnesingar segja skilið við Rosmhvala- neshrepp árið 1886.7) Það ár verður því Miðneshreppur til í sinni núverandi mynd, og hefur engin breyting orðið á síðan. Næsta breytingin á Rosmhvalaneshreppi Á myndinni sjást Keflavík og báðar Njarðvíkurnar. F A X I — 5

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.