Faxi - 01.03.1983, Qupperneq 28
Ljúfur konsert
Pað mun hafa verið fyrir tæpum
tuttugu árum að Karlakór Kefla-
víkur var eitthvað síðbúinn með
konsert eins og gengur. Kom þá
upp sú hugmynd að fara þess á leit
við nokkrar músíkalskar konur í
bænum að æfa með Karlakóm-
um nokkur lög og var það gert með
ágætum árangri. Enginn vissi þá að
þetta tiltæki ætti eftir að fæða af
sér Kvennakór Suðurnesja. Sam-
starf þetta stóð með blóma í ein
þrjú ár, m.a. var farið til írlands
undir stjóm Póris Baldurssonar.
Síðan skildu leiðir og konurnar
stofnuðu Kvennakór Suðumesja,
sem hefur starfað nær óslitið síðan
eða í fimmtán ár.
Að sjálfsögðu hefur margt á
dagana drifið á þessum fimmtán
árum og mikið verið æft og púlað,
sungið og skemmt sér og öðrum.
Arið 1974 var farið á gamlar
slóðir, til írlands, og stóð kórinn
sig þar með mikilli prýði. Kalda-
lónsprógrammið fræga, farið með
það til Austfjarða ásamt Gunnari
M. .Magnúss. rithöfundi, Kanada-
ferðin glæsilega, sungið í íslend-
ingabyggðuin um Kanada þvert og
endilangt (1977) o.s.frv. og nú var
komið að fimmtán ára afmælistón-
leikum. Þeir vomn haldnir í
Njarðvíkurkirkju dagana 10. og
11. mars sl.
Byrjað var á lagi eftir Herbert
H. Agústsson sem hafði stjórnað
kómum fyrstu tíu árin, og var það
vel til fundið. Lagið, sem heitir
, ,Söngur“, að sjálfsögðu mjög gott
og flutningur góður. Síðan tók
hvert eymagullið við af öðru,
flutningur laganna hófsamur og
ljúfur.
Einsöngvarar stóðu sig með
stakri prýði, Hlíf Káradóttir söng
Viljasönginn eftir Lekar og
Vöggukvæði Emils Thoroddsens,
Jón M. Kristinsson söng Lindina
eftir Eyþór Stefánsson í útsetningu
Siguróla Geirssonar og þeir Sverr-
ir Guðmundsson og Steinn Erl-
ingsson sungu dúetta.
í hléi leið undirrituðum mjög
vel, og hafði á orði við kunningja
að þetta væri ,,Ijúfur konsert“.
Eftir hlé tók allt að lyftast. Byrjaði
með stórgóðum söng Hlífar Kára-
dóttur sem hafði gert Viljasöngn-
um góð skil fyrir hlé. í Puccini-
aríunni „Omio Babbino Caro“,
þar sem unga stúlkan biður föður
sinn um að fá að eiga piltinn, sem
hún elskar, sýndi Hlíf stórgóðan
söng, röddin mikil og ræður yfir
blæbrigðum m júkum og hárfínum.
Konan er í stöðugri framför.
Skemmtisöngvar í glúrnum útsetn-
ingum eru oft vel fallnir til að lyfta
upp húmornum og tókst það vel
þetta marskvöld. „Meistari
Jakob“ í skemmtiútsetningu var
gaman að hlusta á, lipurt sungið.
Menn hafa leikið sér lengi að Bach
gamla með misjöfnum árangri,
þetta sem við fengum að heyra
rann átakalítið. Lögin hans Bern-
steins „To night“ og „America"
eru erfið í flutningi og voru þau
ekki nógu vel æfð til að ég nyti
þeirra. Sverrir söng „Þú ert aldrei
einn á ferð“ mjög vel að vanda.
Við komu karlmannanna níu
breyttist kórinn mikið, sem von-
legt er, og var eins og allur kórinn
lyftist og tók að syngja með meiri
þrótti og af meira öryggi.
Söngur Steins Erlingssonar
hreif mig og kórinn með sér og
síðan komu Madrígalamir sem
voru hápunktur kvöldsins bæði
sem tónlist og í flutningi.
Söngskráin endaði á fögrum trú-
arlegum lofsöng sem átti vel við,
þar sem við sátum í kirkju.
Aukalagið er orðið svolítið
þreytt, ég hefði heldu kosið að fá
að heyra aftur madrígalinn eftir
Thomas Morley „Springtime
Mantleth Every Bough“.
Sú sem bar hitann og þungann af
þessu öllu var söngstjórinn Krist-
jana Ásgeirsdóttir, leysti hún hlut-
verk sitt með miklum ágætum.
Undirleikari var Ragnheiður
Skúladóttir. Hlutverk hennar var
stórt þetta kvöld og leysti hún það
af öryggi og músíkaliteti.
Að sjálfsögðu vonast ég til að
heyra Kvennakór Suðurnesja
syngja að fimmtán árum liðnum.
Til hamingju.
Eiríkur Ámi Sigtryggsson.
MANNASKIPTIISTJORN
SPARISJÓÐSINS ÍKEFLAVÍK
Marteinn J. Arnason.
Á aðalfundi Sparisjóðsins í Keflavík, sem haldinn
var 18. mars s.l., baðst Marteinn J. Ámason, formað-
ur sjóðsstjómarinnar, undan endurkosningu. Jón
Eysteinsson, bæjarfógeti var kosinn í stjórn Spari-
sjóðsins í stað Marteins. Þegar þetta er skrifað er ekki
vitað hvernig stjómin skipar með sér verkum.
Marteinn var kosinn í aðalstjómina árið 1976 og
árið eftir var honum falin formennskan. Fundarmenn
þökkuðu Marteini ágæta forustu á liðnum stjórnar-
ámm hans.
Jón Eysteinsson.
84-FAXI