Faxi - 01.06.1983, Page 20
Suðurnesjamenn skipta
um hlutverk
Ólafur.
Dagbjartur.
Suðurnesjamenn hafa löngum veriö í
forystu fyrir fisksölusamtökum íslend-
inga. Tómas Þorvaldsson, Grindavík,
hafði um langt árabil verið formaður
stjórnar SÍF, Þorsteinn Jóhannesson,
Garði, tók við af honum fyrir tveimur
árum en baðst nú undan endurkosn-
ingu á aðalfundinum í vor og var þá
Dagbjartur Einarsson, Grindavík,
kosinn formaður.
í Samlagi Skreiðarframleiðenda var
svipuð saga. Benedikt Jónsson, Kefla-
vík hafði verið þar formaður í nokkur
ár, en Keflvíkingurinn Olafur Björns-
son tók við af honum. Báðir eru fráfar-
andi formenn áfram í stjórnum hlutað-
eigandi félaga. Það er varla dans á rós-
um að vinna þessi stjórnarstörf við nú-
verandi aðstæður - minnkandi fram-
leiðslu, harðnandi samkeppni um
markaði, óhagstæða gengisþróun og
stór rekstrarvandræði hjá flestum
framleiðendum.
En við Suðurnesjamenn hljótum að
vera dálítið upp með okkur yfir því að
sveitungum okkar skuli hvað eftir ann-
að vera falin þessi vandasömu og erf-
iðu störf og óskum þeim farsaældar í
starfi.
FRETT FRA ÞROSKAHJALP
Tímaritið Þroskahjálp 1. hefti 1983
kom út í apríl síðast liðnum. Utgefandi
er Landssamtökin Þroskahjálp.
í ritinu er að finna ýmsar greinar,
upplýsingar og fróöleik um málefni
fatlaðra.
Sem dæmi um efni má nefna: Grein
um íþróttafélag fatlaðra, skrifuö af
Elsu Stefánsdóttur. Frásögn af starf-
semi athugunar- og greiningardeildar-
innar í Kjarvalshúsi eftir Ásgeir Sigur-
gestsson. Þá má nefna viðtal við
Borgny Rusten, en hún er norsk og á
einhverfan son.
Sonja Helgason skrifar um líkams-
þjálfun þroskaheftra og félagar úr
ferðafélaginu Oskju rita ferðasögu.
Einnig láta foreldrar frá sér heyra.
Það tölublað sem nú kemur fyrir
sjónir lesenda er með nokkuð breyttu
sniði frá því sem verið hefur. Það er
von okkar sem stöndum að útgáfu þessa
tímarits að sú breyting sem átt hefur
sér stað á útliti ritsins falli mönnum vel
í geð og glæði áhuga á því efni sem það
fjallar um.
Tímaritið Þroskahjálp er sent áskrif-
Já,
það fæst margt í
V.P. búðinni
m.a. öryggislokará vatns-
inntakið á þ vottavélina.
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
v.p.
Baldursgötu 14 Keflavík - Sími 1212
endum og er til sölu á skrifstofu sam-
takanna Nóatúni I7, 105 Reykjavík,
sími: 29901. Þarer einnig tekið á móti
áskriftarbeiðnum svo og ábendingum
um efni.
HJALPARS VEIT SKATA
í Njarðvík er nú búin að fá lóð að
Holtsgötu 51 í Njarðvík og ætlar að
byggja þar hús undir starfsemi sína.
Hingað til hefur hann verið með tæki
sín og aðstöðu í gömlu fiskhúsi, sem
var ófullnægjandi og ekki til frambúð-
ar. Þessi framkvæmd, sem þeir eru nú
að byrja á af fullum krafti, kostar
mikla vinnu og mikið fé.
Oft hefur veriö leitað til sveitarinnar
þegar mikið hefur legið við og hún
ávallt brugðist vel við. Nú leitar hún til
almennings um stuðning við nauðsyn-
lega framkvæmd, og er það m.a. til
þess að búa svo í haginn að hún geti
veitt betri aðstoð og þjónustu þegar á
þarf að halda.
Hafið samband við formann sveitar-
innar, Arna Stefánsson, Holtsgötu 48
Njarðvík, eða í síma 3957 og leitið upp-
lýsinga um hvernig þið getið stutt gotl
málefni.
„DUXAR”
Á AFMÆLI FÖÐUR SÍNS
Laugardaginn 14. maí gafst þrefalt til-
efni til fagnaðar hjá fjölskyldunni að
Bessahrauni 6 í Eyjum. Þann dag varð
heimilisfaðirinn, Theódór Snorri
Ólafsson vélstjóri, fimmtugur og sama
dag útskrifuðust tveir synir hans með
hæstu meðaleinkunn hvor úr sínum
skóla.
Sigurbjörn Theódórsson braut-
skráðist úr vélstjórabraut Fjölbrauta-
skólans með ágætiseinkunn, 9,67, og
Hafþór bróðir hans brautskráðist með
hæstu meðaleinkunn, 8,71, úr Stýri-
mannaskólanum í Eyjum.
Má því með sanni segja að þeir
bræður hafi fært föður sínum ánægju-
legar afmælisgjafir.
Á mynd Sigurgeirs Jónassonar eru
þau hjónin Theódór Snorri Ólafsson
og Margrét Sigurbjörndóttir ásamt
„dúxunum”, Sigurbjörn vinstra megin
og Hafþór hægra megin á myndinni.
Faxi samfagnar öllum er vel gengur
og óskar þessari fjölskyldu til heilla
með afköst og glæsta frammistöðu
bræðranna. Kannske finnst okkur
þetta meir flæðarmálsfrétt vegna ætt-
ernis þeirra - en Margrét er dóttir Sig-
urbjörns Metusalmessonar á Stafnesi
og Júlíönnu Jónsdóttur, sem ættuð er
frá Hvoli í Ölfusi, en á margt ættmenna
hér á Skaganum.
Leiðrétting
Smávægilegur misskilningur hefir.
slæðst með í grein um dragnótaveiðar í
Faxaflóa í síðasta blaði. Sagt var að
koli hafi verið 85% af heildaraflanum.
Það rétta er að koli hefur reynst 90 -
92%.
Fari hins vegar afli af bolfiski fram
úr 15% í viku hverri er sá afli upptæk-
ur.
Svanur.
HORÐ KEPPNI
Þrír fyrrverandi sölukóngar háðu
harða keppni um titilinn að þessu
sinni:
Halldór Sverrisson varð sigurvegari,
seldi 110 blöð yfir helgina. Svanur M.
Skarphéðinsson seldi 100 blöð, einnig
yfir helgina og Jón Tómasson seldi 90
blöð á laugardeginum sem blaðið kom
út.
160-FAXI