Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1984, Blaðsíða 16

Faxi - 01.02.1984, Blaðsíða 16
hnútan eöa söxin. í þetta rúm voru valdir fisknir menn, stórir, sterkir, fótvissir, yfirleitt kunnir að kari- mennsku, aðgætni og sjóhæfni. Þeir voru skiphaldsmenn og leiö- sögumenn á grynningum, ef á þurfti að haida. Þessir síðasttöldu fjórir voru yfir-skipsmennirnir. Þeir höfðu það starf meðal annars, að hvíla ræðara í háandófi, fyrir- rúmi og miðrúmi. Þá skal röðinni haldið áfram: Næst kom háandófið eða andófið, eins og það var oftast kallað. í það rúm voru valdir úrvais sjómenn, afburðamenn til allra verka, alltaf stórir menn, ef hægt var, sterkir og miklir ræðarar, en þurftu ekki að vera fiskimenn. Skiprúmið í há- andófinu á stjórnborða var að öllu jöfnu mesta virðingarsæti og virð- ingarstaða næst formanni. Sá mað- ur, er þaö sæti skipaði, þurfi að hafa mikla sjóhæfni og yfirgrips- mikla þekkingu á sjólagi og vind- um. Þá kom fyrirrúmið. Þar var einna óglöggast, hvernig menn voru valdir, en venjulegast voru þar látnir ófisknir menn, en þolnir ræðarar. Þá kom miðskipsrúmið eða mið- rúmið. í það rúm voru valdirgóðir ræðarar og helst miklir fiskimenn um leið. Síðan kom slógrúmið. Þar voru valdir jafnbestu ræðarar skipsins. Þá var næst austurrúmið. Þar voru valdir gætnir og reyndir sjó- menn, fremur en kraftamenn eöa ræðarar. Þeirra verk var jafnan meðal annarra að „leggja lagið“, þegar róið var. Þá komu tveir bitamenn, en bit- inn var, eins og sagt hefur verið. aftari þófta austurrúmsins. Þetta voru mikil virðingarsæti, ein mestu á skipinu, og þangað valdir úrvals fiskimenn. Þeir voru um leið ráð- gjafar formanns, ef hann þurfti einhvers með, sem sjaldan kom fyrir. Bitamenn höfðu það starf að hvíla ræðara í slógrúmi og austur- rúmi. Loks kom miðskutsmaðurinn, sem venjulega var óharðnaður unglingur. Hann hvíldi ekki, en stundaði fiskdrátt eins og hann gat, og renndi færi sínu samkvæmt skipun alltaf undantekningarlaust á stjórnborða. Að endingu var svo rúm for- manns fyrir aftan skorbitann. Það var þiljað af niöur undir kjölsog, svo ekkert bærist til hans úr eða af fiski. Hann stundaði ekki fiskdrátt frekar en honum sýndist. Þá hefur verið minnst á starf og stöður þeirra nítján manna, sem mynduðu skipshöfnina. Að vera formaður á teinæringi var mikil virðingar- og heiðurs- staða. Til þess völdust afburða- menn. Þeir voru virðingamenn síns tíma. Þá höfðu formenn á teinæringum þær eftirfarandi regl- ur, sem enginn nú á tímum þekkir ástæður fyrir. Þeir reyndu alltaf að hafa besta fiskimanninn áskipinu, bitamanninn, á bakborða, ogsjálf- ur renndi formaöurinn, ef hann bar það við, undantekningarlaust alltaf á bakborða. Það var regla hjá formönnum yfirleitt, að hafa alla þá skipshafnarmenn, sem renndu á bakborða, bestu fiski- dráttarmennina. Hér er lýst þjóðháttum á teinær- ingum, lýst skiprúmum, lýst hvernig menn voru valdir, hvernig þeim var raðað niður í sambandi við hæfileika þeirra og verkaskipt- ingu, en í öllu slíku eru lýsandi sjávarhættir lífsreynsla og lærdóm- ur í löngu starfi formanns. Allt vekur þetta óteljandi spurningar um margt, sem við nútímamenn höfum eigi svör við. En þetta sýn- ir, hve geysilegt verkefni þetta er, og á einskis eins manns færi að gera því rækileg skil. Lúðvík Kristjánsson hefur með riti sínu gefið fræðimönnum nú og síðar tækifæri til þess að bæta við verk þetta, því að sjávarhættir og alls konar siðvenjur í sambandi viö trú sjómanna, er sá mikli frum- skógur sem líklega næst nú ekki til lengur, en þyrfti sem mest að tengjast byggingarsögu sjávarút- vegsins, sem er mjög ýtarleg hjá höfundi. Aldrei töluðu þeir Hjalti og Oddur um sexæringa og feræringa og aldrei heyrði ég þessi orð í upp- vexti mínum, heldur fjögramanna- far og sexmannafar. Aftur á móti alltaf um áttæring og teinæring. Eins og við vitum var misjafnt mál- far á milli héraða. A blaðsíðu 142, II. bindi, segir höfundur: ,,... bönd fremst og aft- ast í skipi voru kölluð á Suður- nesjum krikkjur." Þessi bönd hétu líka krypjur. A blaðsíöu 167 byrjar kafli svona: „Umbúnaðurinn, sem árin leikur í, þegar róið er, heitir einu nafni ræði.“ Hér heföi þurft strax a byrjun. að útskýra hvað er ræði, og lýsa því, en síðan útskýra hver er mun- ur á ræði og keip. Hvergi er þetta rétt í orðabók- um, jafnvel Blöndalsorðabók hef- ur þetta rangt. Ræði er það, þegar keipjárnin hafa verið fest á keipstokkinn, sem öðru nafni kallast hástokkur. Keipjárn komin á skipið heita ræði. Þegar svo keipnefjurnar, litlir þríkantaðir trébútar, sem líka heita vaðnefjur, hafa verið festar sitt hvoru megin við keipjárnin, þá fyrst heitir þetta allt keipur. Kcip- járnið með nefjum heita þannig einu nafni keipur. Síðan rekur höfundur sögu um hvemig búið var um árarnar á ýmsum tímum, og er það fróðlegt. í kaflanum um skipasmíðar á blaðsíðu 291 síðast er aöeins minnst Eggerts Björnssonar í Kirkjuvogi (1825 - 1905), en honum hefði þurft að gera miklu betri skil, þar sem hann var einn mesti stórkipa- smiður á Suðurlandi á sinni tíð. Hann var framúrskarandi sjón- hagur við skipasmíðar og afkasta- mikill, eins og sá fjöldi skipa sýnir, sem hann smíðaði. Ég hef nú minnst hér á nokkur atriði, en miklu fleiri athugasemd- ir mætti gera með fullri virðingu fyrir ritverkinu. Þaö er engin furða, því að hér er ekki neitt lítið efni á ferðinni, þar sem um er að ræða lýsingu á hinum forna sjávar- útvegi þjóðarinnar. Þaö er alveg útilokað, að einn maður geti gert þessu geysilega verki skil til hlítar. En þetta rýrir ekki þakklætið til Lúðvíks Kristjánssonar. Hann hefur komið þessu saman með dugnaði, og þó að það sé ekki fullkomið og ekki gallalaust, þá er þetta merkilegt verk, og mikil vinna að baki. Sumir kaflar eru skemmtilegir svo sem: Heiti umfara, bls. 153, II. bindi, og Bitafjalir og Bátavísur á bls. 266, II. bindi. Að lokum má segj, að það sem skilur á milli sr. Jónasar frá Hrafnagili í íslenzkum Þjóðhátt- um og Lúðvíks Kristjánssonar í ís- lenskum Sjávarháttum, er sámun- ur að þjóðháttalýsingar sr. Jónasar eru meiri, hvar sem hann kemur þeim við. Þess vegna verður rit hans safaríkara og skemmtilegra af- lestrar, en í Sjávarháttum Lúðvíks er byggingarsaga skipanna og margs konar merkilegur fróðleik- ur meginefnið, en þjóðhættimir, sem hér eru nefndir sjávarhættir, minni miðað við þetta mikla efni. Þess vegna verður rit Lúðvíks Kristjánssonar þurrara og þyngra aflestrar. Báðir hafa þeir, sr. Jónas og Lúðvík skipað sér verðugan sess í þjóðháttum, og rit þeirra verða grunnrit, þegar þjóðfræðingar framtíðarinnar fara við þau að bæta. KALLT A HÖNDUNUM? HOTSHOTS hitapokamir eru svarið við því ÞÚ STINGUR HOTSHOTS HITAPOKANUM í HANSKANN EÐA VETTLINGINN OGHANN HELDUR Á PÉR HITA í ALLT AÐ 3 TÍMA. VERÐKR.46 POKINN. ri f ; dfopion Æk Hafnargötu 80 - 230 Keflavík - Sími 2652 48-FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.