Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1984, Blaðsíða 25

Faxi - 01.10.1984, Blaðsíða 25
ámaðheilla.... ámaðheilla.... ámaðheilla.... ámaðheilla.... ámað Tómas Tómasson forseti bæjarstjómar sextugur Tómas Tómasson forseti bœjar- stjórnar Keflavíkur varð 60 ára 7. júlí s.l. Þó það sé ekki ýkja hár aldur, þá hefur Tómas lagt að baki langan starfsaldur að málefnum Keflavíkurbœjar. Hann var fyrst kjörinn í bœjar- stjórn fyrir Sjálfstœðisflokkinn árið 1954, þá tæplega þrítugur. Hann tók strax virkan þátt í starfi bœjar- stjórnar og var kjörinn í bœjarráð og á fyrsta fundi þess var hann kjörinn formaður þess. Hann sat síðan bœjarstjórn og bœjarráð til 1962 er hann lét af störfum. A þessum árum var póli- tík á Islandi með nokkuð öðrum hœtti en nú er. Þá voru návígi all- hörð og hvergi hlíft. Það var því ekkifyrir hvern sem er að taka þar þátt í. Það þurfti einlæga sannfær- ingu og trú á eigin málstað og ekki sakaði að hafa góða menntun að styðjast við. Tómas er einn af fáum lang- skólagengnum mönnum, sem sest hafa að á Suðurnesjum. Stúdent varð hann frá Menntaskólanum á Akureyri 1943 með 1. einkunn og cand. juris frá Háskóla Islands 1950, einnig með 1. einkunn. Það er svo sem ekki að undra þó Suður- nesin hafi togað í manninn. Hann er fæddur í Grindavík, sonur hjón- anna Tómasar Snorrasonar, kenn- ara og útvegsbónda sem þá bjó á Járngerðarstöðum í Grindavík og konu hans Jórunnar Tómasdóttur. Tómas hefur alla tíð litið á Suð- urnes sem eina byggð. Hans áhugamál er að byggðirnar verði eitt sveitarfélag og þegar hann held- ur rœður um málið, mætti halda að þar vœri trúboði á ferð, eða templ- ari, svo mikill er sannfæringar- krafturinn. En Tómas er hvorki trúboði né templari í eiginlegum skilningi, þó aldrei hafi ég heyrt nokkurn mann tala jafn sannfærandi fyrir bindindi og hann og sannarlega er hann trú- maður góður. Tómas hefur öðlast margbrotna lífsreynslu. Hann var eins og flestir unglingar á Islandi á hans ungl- ingsárum alinn upp við sjósókn og störf sem unnin voru hörðum höndum, en gekk þó til mennta. Að námi loknu vann hann við al- menn lögfræðistörf og fasteigna- sölu og gegndi ritstjórnarstörfum við blaðið íslending á Akureyri árin 1950-51 og var fulltrúi hjá Bæjarfógetaembættinu í Keflavík frá 1954-61. Fram til ársins 1974 rak Tómas lögfrœðiskrifstofu og fasteignasölu auk annarra starfa svo sem fyrir Aðalstöðina í Kefla- vík o.fl. Hinn 1. maí 1974, var Tómas ráðinn Sparisjóðsstjóri í Keflavík ásamt Páli Jónssyni og hefur hann starfað þar til þessa dags. I því starfi hefur Tómas aflað sér verð- skuldaðrar virðingar og vinsœlda hjá íbúum á Suðurnesjum. Undir forystu þeirra félaga, hefur sú stofnun eflst og er hún stærsta peningstofnun á Suðurnesjum og Sparisjóðurinn í Keflavík er nú stærsti sparisjóður landsins. En þrátt fyrir jxid hefur Tómas tnarkað sín dýpstu spor í málefnum Keflavíkur með þátttöku sinni í stjórnmálum. Kannski fæddist hann með þessa áráttu. Það er ekki ólíklegt, en allavega er það víst að á sínum háskólaárum er Tórtias farinn að taka opinberan þátl í pólitík og hann var formaður stúdentaráðs 1947-48. Eflaust hafa ,,málin verið rædd“ þegar fjölskylda Tómasar kom saman því ekki eru allir þar af sama , ,sauðahúsi“ í pólitík. Tómas er einlgæur sjálfstæðismaður fylgj- andi frelsi einstaklingsins en harð- ur andstæðingur einrœðis og of- stjórnar. Árið 1970 velst Tómas á ný til starfa í bœjarstjórn Keflavík- ur fyrir Sjálfstœðisflokkinn og þá sem leiðtogi flokksins. Undir for- ystu hans hefur fylgi flokksins í Keflavík vaxið. Fullvist er að þar hafa hinar persónulegu vinsældir Tómasar átt stóran þátt í. A fyrsta fundi bæjarstjórnar, að afloknum kosningum 1970, var Tómas kjör- inn forseti bæjarstjórnar og það hefur hann verið alla tíð síðan og er enn. Forseti bæjarstjórnar er kos- inn árlega og oftast hefur Tómas verið kjörinn með öllum greiddum atkvæðum. S.l. 14 ár hefur hann einnig setið í bœjarráði. Allt of langt mál er að telja upp hér þau veigamiklu mál sem Tómas hefur leitt eða stutt til sigurs, en þau eru mörg. Auk stjórnmálaafskipta hefur Tómas tekið virkan fxitt í félagslífi og umdœmisstjóri Lionshreyfing- arinnará Islandi varhann 1960-61. Það er sagt að baki farsæls manns standi góð kona. Tómas giftist 1952 Halldísi Bergþórsdóllur sem hefur búið fx'irn hjónum hið besta heimili sem er bœði látlaust og einkar vinalegt. Þar hafa þau hjón sinn griðastað, sem nauðsyn- legur er öllum mönnum til að hvíl- ast og safna kröftum til nýrra átaka. Þau hjónin eiga fjögur mann- vænleg börn, Jórunni, Höllu, Bergþóru og Tómas. Sextugsafmæli Tómasar er tilefni þessara skrifa, en einnig gott tœki- fœri til að þakka honum góða við- kynningu og traust. Eg óska Tómasi og fjölskyldu hans alls hins besta í framtíðinni. Steinþór Júlíusson. Tómas Tómasson forseti bœjar- stjórnar Keflavíkur varð sextugur hinn 7. júlí s.l. Tómas er Grindvík- ingur að ætt og uppruna, fæddur á Járngerðarstöðum. Menntun sína sótti Tómas í Menntaskólann á Akureyri, en að stúdentsprófi loknu fór hann í lögfræði í Háskóla Islands og útskrifaðist þaðan 1950. Tómas hófungur afskipti afstjórn- málurn, sat í stúdentaráði fyrir Vöku og 1954 var hann kosinn í bœjarstjórn Keflavíkur fyrir at- beina Sjálfstæðismanna. Og þar hefur hann setið, að vísu ekki óslit- ið en með litlum hléum síðan. Sparisjóðsstjóri í Sparisjóðnum í Keflavík ásamt Páli Jónssyni hefur Tómas verið síðan 1973. 1 störfum sínum, hvort heldursem yfirmaður stórrar peningastofnunar, ellegar sveitarstjórnarmaður er Tómas gætinn og tillögugóður og hefur á umliðnum árum skapað sér óvenjulegar vinsældir og traust. Sem undirsáti bæjarráðs Keflavík- ur hefi ég átt langt og gott samstarf við Tómas og Hilmar Pétursson. En eins og flestir bæjarbúar vita hafa þeir setið í bæjarráði síðasta áratuginn ásamt Olafi Björnssyni. En það er líka á öðrum vettvangi sem leiðir okkar hafa legið saman. 1 Keflavík er mikið og öflugt félags- starf. Mörg þessara félaga byggja eingöngu á frjálsu framtaki og áhuga félagsmannanna. Við bakið á þessum félögum hefur Sparisjóð- urinn stutt beint og óbeint. Eg minnist í því sambandi þegar ég var formaður Leikfélags Keflavíkur og átti í erfiðleikum með að greiða dýrt Ijósaborð, hve þeir Páll og Tómas litu mildum augum auglýs- ingareikning Sparisjóðsins frá Leikfélaginu, þar sem smurt hafði verið verulega á umsaminn taxta. Þetta er ef til vill smáatriði, en getur eigi að síður skipt sköpum fyrir illa stœð félög. En síðast en ekki síst er þakkar- verð afstaða Tómasar í áfengismál- um. Þar hefur hann alltaf staðið sem klettur gegn vaxandi þrýstingi áhrifamikilla aðila, sem vilja auka neyslu áfengis og annarra eitur- lyfja. Fyrir þá afstöðu og það for- dæmi hygg ég að Tómas eigi meira hrós skilið en fram kom í fjölmörg- um skálarœðum honum til heiðurs á afmælisdaginn. Hilmar Jónsson. — _ — - — — — Osi ð í "li lc e< ]1| i ÍM, * jii • VI' WJ jn* *wm 'Qft ] , /j V n / 'Ql Vtyi laiM r> Jy , %*rt i*. i 7»] JQIf ^ *3 WÖir r r yQ' it. . fCfÖ 0 ~w m J OSS VY IA8' OE fc ií ;l ,ril H íftn FtrlE | A iS * IA —H A,F NARG ítp jj; r9. K -A Ijl SÍMI 2£ 3C_ FAXI-249

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.