Faxi - 01.02.1986, Qupperneq 8
í septemberlok s.l. sumar var
vígt pípuorgel í Hvalsneskirkju,
eins og sagt var frá í síðasta Faxa.
En fleiri söfnuðir á skaganum
höfðu hug á að gera endurbætur á
sönglofti kirkna sinna.
Sunnudaginn 6. okt. sl. voru vígð
pípuorgel í Útskálakirkju og
Kálfatjarnarkirkju.
Úr Garðinum hafa Faxa borist
upplýsingar sem vert er að geyma
í Faxasafninu. Öll umrædd orgel
voru pöntuð og keypt sameigin-
legar frá Vestur-Þýskalandi og sett
upp af þýskum sérfræðingum í
samvinnu við íslenska fagmenn.
Útskálaorgelið er 10 radda.
Söngmálastjóri þjóðkirkjunnar,
Haukur Guðlaugsson vígði orgel-
ið með hálfrar stundar hljómleika-
flutningi fyrir messugjörð.
Þótti kirkjugestum sem gamla
kirkjan hefði fengið aukið að-
dráttarafl við þessa nýju fögru
hljóma. Við vígsluathöfnina söng
ung og glæsileg söngkona, Hrafn-
hildur Guðmundsdóttir, við und-
irleik söngmálastjóra. Hrafnhild-
ur er nýútskrifuð söngkona úr
Tónlistarskóla Reykjavíkur, dóttir
Útskálakirkjci.
Vandað til kiikjutón-
listar á Suðumesjum
Organisti Útskálakirkju
Jónína Gudmundsdóttir við
orgelið. Til hliðar stendur
Hrafnhildur Guðmunds-
dóttir, en hún söng einsöng
við vígsluna er söngmála-
stjóriþjóðkirkjunnar, Hauk-
ur Guðlaugsson, vígði hið
nýja pípuorgel.
Utskálasöfnuður ogáhugafólk um kirkjulegt starf hefur {jölmennl aö vígsluat-
höfninni.
hjónanna séra Guðmundar Guð-
mundssonar og frú Steinvarar
Kristófersdóttur á Útskálum. Hún
söng einnig einsöng við messu-
gjörðina hjá föður sínum. Organ-
isti í Útskálakirkju er Jónína
Guðmundsdóttir. Jónína er einn-
ig innfæddur Garðbúi, dóttir
Guðmundar Ingimundarsonar
bifvélavirkja frá Garðsstöðum og
konu hans Helgu Sigurðardóttur
kennara.
Jhliö er að orgelið hafi kostað
um 1,1 milljón króna og hafa ein-
staklingar og félög staðið drengi-
lega að söfnun þess ijár um nokk-
urt skeið og hefur Eiríkur Guð-
mundsson, sóknarnefndarfor-
maður staðið fyrir henni. Hann
ásamt séra Guðmundi og sóknar-
nefndinni færa öllum gefendun-
um innilegar þakkir fyrir örlæti
og hlýhug til kirkjunnar.
Saga Utskálakirkju og Orgel-
sjóðs safnaðarins er bæði löng og
merk, sem vonir standa til að Sig-
urbergur Þorleifsson segi lesend-
um Faxa innan tíðar. Sigurbergur
var lengi meðhjálpari í Útskála-
kirkju auk margra annarra starfa
fyrir kirkju sína og sveitarfélag og
nýtur mikils trúnaðar og vináttu
Garðbúa og annarra er af honum
hafa kynni vegna hógværðar og
drenglundar.
Þess skal að lokum getið að Þor-
lákur heitinn Benediktsson,
kaupmaður í Akurhúsum, stofn-
aði sjóð til kaupa á pípuorgeli árið
1960 til minningar um konu sína,
Jórunni Ólafsdóttur. Þorlákur
starfaði mikið fyrir Útskálakirkju
og var organisti þar í mörg ár.
J.T.
P.s.
Séra Guðmundur á Útskálum
óskar eftir að koma á framfæri
þökkum til Svavars Árnasonar,
organista í Grindavík, fyrir for-
göngu hans um orgelkaup í kirkj-
ur á Suðurnesjum.
44 FAXI