Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1986, Síða 9

Faxi - 01.02.1986, Síða 9
KEFLAVIK ÁGRIP AF ÁBÚENDATALI JARÐARINNAR Bújörðin Kaupstaðurinn Keflavík stendur við samnefnda vík er markast af Hólmsbergi að norðanverðu, af Vatnsnesi að sunn- anverðu, og gengur inn úr vestanverðum Stakksfirði, en svo nefnist syðsti hluti Faxaflóa, sem afinarkast af Rosmhvalanesi að vestanverðu og Kvíguvogastapa að austanverðu. Helgi S. Jónsson stofnandi og lengi félagsforingi slcítafélagsins Heiðarbúa í Keflavík, og mikill framámaður í ýmsum öðrum fé- lagsmálum, lýsti Keílavík svo í upphafi útvarpserindis 1942, er síðan birtist í Faxa: ,,Landið umhverfis Keflavík er mjög hrjóstrugt, eins og reyndar Reykjanesskaginn allur, næst eru uppblásnir melar og þegar lengra dregur, taka við sandar og hraun. Utsýni er aftur á móti vítt og fag- urt — beint á móti blasir við eitt fegursta fjall á landinu — þúsund- lita fjalliö Esja — og Al<.rafjall og Skarðsheiðin að baki. Lengra til suðurs blánar Heng- illinn og Vífilsfell, svo rísa smá- fjöll Reykjanesskagans yfir hraunið og ber Ttölladyngju og Keili þar hæst, og í norðri rís Snæ- fellsjökull úr hafi. Á kyrrum síðkvöldum laugast suðurfjöllin lifandi litum og á skammdegismorgnum leikur sól- in sínum gullna logaleik í skýjun- um l'yrir ofan, — það er fallegt í Keflavík þegar vel viðrar. Gudleifur Sigurjónsson greinarhöf- undur í Keflavík gnauða líka vindar allra átta. Landsynningur og út- synningurinn hlaupa óhindrað yfir lágan skagann og norðan- stormurinn stendur beint uppá víkina, — þá þeytist sjórokið yfir bæinn, og þeim sem ókunnugir eru finnst þá ömurlegt um að lit- ast. Svona hefur þetta verið frá alda- öðli, þeir bera því vitni klettarnir á Vatnsnesinu og Berginu, þeir eru brimsorfnir langt inn til lands.“ Jörðin Kefiavík var ekki stór. Með sjávarsíðunni afmarkast hún að norðan al', ,Grófinni“ sem næst er Berginu, að sunnanverðu af Nástrandarrás, sem aðrir kalla Nærstrandarrás, eöa þar sem nú er neðsti hluti Tjarnargötu. Landamerkin að norðanverðu voru bein lína dregin úr Gróf upp í „Kefiavíkurborg" en svo nefnist gamall stekkur á holtinu upp af Mikið úrval af grafík og málverkum effir þekkf listafólk Einnig postulín og fleira til fermingargjafa InnRömmun SuDunnesun Vatnsnesvegi 12 — Keflavík. Sími 3598. 45 FAXI

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.