Faxi - 01.02.1986, Blaðsíða 11
BREYTTUR
BÆR
l’egar Faxafélagið var stofnað og
blaðið hóf göngu sína fyrir nær
hálfri öld, voru sumir núverandi
Faxafélagar ekki fæddir og aðrir
ungir að árum. Örfáir eldri menn
prýddu ,,postula“ hópinn, sem
stundum var nefndur svo vegna
þess að fast var haldið í félagatöl-
una tólf — sem enn er reglugerðar-
ákvæði í félaginu.
Keílavík var þá fámennt sveitar-
félag, um 1300 íbúar — sæmilega
víðlent. Landamerki talin vera
um Grófina norður undir Hólms-
bergi í ,,Keflavíkurborg“ grjót-
hæð norðan byggðarinnar þaðan í
vörðuna Kölku upp á háheiði,
þaðan í Stapafell, úr Stapafelli í
Arnarklett ofan Snorrastaðatjarna
og þaðan til sjávar á Vogastapa.
Land þetta var að mestu í eigu
Njarðvíkurbænda og Vatnsness.
Byggðin í Keflavík reis í kring-
um verslunina en varð brátt gott
útgerðarpláss. Hér voru dugmikl-
ir sjómenn, sem lögdu metnað
sinn í að afla vel fyrir fólk sitt og
þjóð. Þjóðin mat það þó ekki sem
skyldi og ól með sér ofskynjan af
slori og þorskhausum og tengdi
það útnesjamönnum og öðrum
verbúskap.
Vel ,,dönnuðu“ stássstofufólki
þótti það líka ljóður á Keflvíking-
um hve þeir höfðu stælta handleggi
og óskeikula hnefa ef sló í brýnu —
en þar áttu þeir sammerkt með
öðrum Suðurnesjasjómönnum,
sem langvarandi áratog og öldurót
hafði hert bæði á líkama og sál.
En nokkra lotningu mun þó sjó-
mannastéttin hafa aflað sér hjá al-
þýðu, sökum harðfylgis og aíla-
sældar og nokkur brögð voru að
því að hingað sækti dugmikið fólk
úr sveitum lands, einkum ef hart
var í ári í heimahéraði.
Fólki fjölgaði nokkuð á kreppu-
árunurn en rniklu hraðar á stríðs-
árunum og fyrstu árin þar á eftir.
Útgerð var ört vaxandi. Heima-
menn stækkuðu báta sína og að-
komubátar komu víða að, enda
aðstaða ein sú besta á landinu,
fiskigengd mikil og margar fisk-
verkunarstöðvar til að taka við og
vinna aflann. Lengst af hafði fá-
tæk sjómanna- og verkamanna-
stétt í Keflavfk orðið að sætta sig
við takmörkuð lífsgæði — lítil hús
án vatns og holræsakerfis, frum-
stæða húshitun og lýsingu, sama
var að segja um gatnakerfi og
hafnaraðstöðu. Dönsku kaup-
mennirnir Duus, Fishcer og
Norðfjörð höfðu byggt hér versl-
unar og íbúðarhús á síðari hluta
19. aldar sem Suðurnesjamönn-
um þóttu hallir miklar og voru
það í samanburði við lágreistar
torfbaðstofur forfeðra okkar.
Sennilega hefur hörð sam-
keppni verið milli kaupmann-
SPÓNAPLÖTUR - KROSSVIÐUR
KROSSVIDUR
DOUGLAS FURA
(Rósaöur)
Þykkt: 9—12 mm
St.: 1220x2440/1220/2745
ENSO COMBI (Brúnn)
Þykkt: 6,5-9-12-15-18-21
ENSO FASADPANELL
Utanhússkrossviöur
Þykkt: 11,5
Stœrö: 1200x2745
BIRKI COMBI
(Rakaþolinn)
Þykkt: 4-6, 5-9-12-15-18
St.: 1220x2745
ASFALTBORNAR
PLÖTUR (Tjörutex)
Þykkt 12 mm
Stœrö: 1200x2745
UTANHÚSSKROSSVIÐUR
með kvartsi.
Stærð: 1 190x2750 mm
Sími 8462
SPÓNAPLÖTUR:
PELLOS — Standard og
rakaþolnar V 313
Þykktir: 10-12-15-18-22-30
St.: 1200x2600 - 1220x2745
Verö frd kr. 83,65 pr. m2
LIONASPAN — Standard
Þykktir: 4-6-8
Stœröir 1200x2550 mm
LIONASPAN -
Rakaþoliö V 313
Þykkt: 4-6-8
Stœrö: 1200x2550 mm
LIONASPAN - SG-1 V 313
rakavariö og hvíthúöaö
Þykkt: 3,2-6-8
Stœrö: 1200x2550
ELDTEFJANDI PLÖTUR
Þykkt: 10 og 12 mm
Stærð: 1200x2600 mm
JARN & SKIP
Víkurbraut 15 - Keflavík - Sími 1505 - Víkurbraut 44 - Grindavík -
KAUPFÉLAG SU0URNESJA
47 FAXI