Faxi - 01.02.1986, Page 13
Skólahverpd setur mikinn svip á bœitm. Nœst er Holtaskóli, pœr er íþróttahús KePavíkur og pœrst sér á Fjöl-
brautuskóla Sudurnesja. Mynd JT.
svo hratt að alltaf væri haus á lofti
út fyrir borðstokkin á torgurum
eða beita línu svo hratt að rétt
mátti auga hönd á festa. Kapp-
samir menn að vlnna þjóð sinni
og treysta afkomu oft stórrar fjöl-
skyldu. Flest þetta heyrir nú sög-
unni til. I stað sinfóníu hafnar-
innar, sem hefur hljóðnað — von-
andi ekki slegið af við síðasta tón,
heyrist aðeins vesældarlegt tif í
byggingarkrönum og steypubfl-
um, sem vissulega vinna margra
manna verk og eru ómetanleg
tæki í uppbyggingarstaríi.
Sum þeirra stóru fyrirtækja sem
hætt hafa starfsemi voru neydd til
að hætta vegna aukinnar lykt-
næmi íbúanna — önnur gáfust
upp þar eð rekstrargrundvöllur
var brostinn — en til þess láu sjálf-
sagt margar ástæður — og útgerð í
molum af svipuðum forsendum.
Við þessar breyttu aðstæður verð-
ur slík röskun á atvinnuháttum að
menn örvænta og sjá varla fyrir
sér hver framvinda verður.
Fróðir menn með hagfræði-
þanka telja þetta eðlilegan gang
mála — Keflavík hefur tekið aftur
við upphaflegu hlutverki, orðið
miðstöð viðskipta og þjónuslu
fyrir Skagann. Duus (f<ari Sævar)
selur ekki lengur allt sem hús þitt
þarfnast — hefur nú sérhæft sig í
fögrum og þægilegum húsgögn-
um en lætur aðra fyrirgreiðslu í
hendur hundruð fyrirtækja, sem
flest eru með einhverja sérhæf-
ingu. Þannig má vissulega ná góð-
um árangri.
Það er að lokum ósk mín að öil-
um þeim sem leggja sig fram um
að gera vel í hverri viðurkenndri
starfsgrein megi vel farnast svo að
við getum horft með bjartsýni
fram á veginn.
Á hálfri öld hefur orðið gjör-
breyting á bænum okkar. Hann á
nú svo margar góðar hiiðar að við
getum með ánægju ekið um hann
og sýnt gestum okkar hvað áork-
ast hefur á stuttum tíma. Margt
getur þó enn færst til betri vegar ef
atorkusamar hendur eru að verki
og atvinnutæki hafa hér starfs-
grundvöll.
J.T.
Grindvíkingar
Annar gjalddagi fasteigna-
gjalda er 15. mars.
Þriðji gjalddagi útsvara er 2.
apríl.
Greiðið á réttum gjalddögum
til þess að forðast dráttarvexti.
3NNHEIMTA
GRINDAVÍKURB/EJAR
Brunabótamat
fasteigna
Þaö hefur komiö í Ijós aö ýmsar fasteignir hér
í Njarövík eru ekki í rétfu brunabótamati í
samrœmi viö verögildi þeirra.
Því er aö sjólísögöu nauösynlegt aö leiörétta
brunabótamat þessara fasteigna. Einnig
skal bent ó, aö komi til nóttúruhamfara, sem
valda tjóni ó fasteignum, grundvallast
bœtur úr Viölagatryggingu íslands d
brunabótamati fasteigna.
Þarsem sveitarfélög bera lögum samkvœmt
óbyrgö ó aö allar fasteignir séu bruna-
tryggöar, hefur þaö oröiö aö samkomulagi
viö Brunabótafélag íslands, aö þaö greiöi
kostnaö viö aö lóta endurmeta þœr
fasteignir hér í Njarövík, sem ekki viröast vera
í réttu brunabótamati, og lóti framkvœma
matiö sem fyrst.
Nónari upplýsingar veitir umboösmaöur
Brunabótafélagsins í Keflavík í síma 3511.
Bœjarstjórinn í Njarövík
49 FAXI