Faxi - 01.02.1986, Page 30
Einsogsjá má, erstóra kerið frá Normandíókomið videnda ha/hargarðsins. Ker-
ið kom 1952. Fram að þeim tíma voru áttirnar A og SA varasamar skipum í höfn-
inni. Eftirað kerið kom var þarskjól í flestum veðrum. A teikningunni sést, að vink-
illinn erókominn á vestustu bryggjuna, nœst landi til vinstri. 1942—44 vargarður-
inn lengdur úl á 10—11 metra dýpi á stórstraumsfjöru. Ef uppdrátturinn prentast
vel, sjást dýptartölurnaryst við garðinn. Á þessum árum varþetta mesta dýpi sem
hafhargerð var unnin við á íslandi. (Sbr. grein Daviðs Ólafssonar í tímaritinu Ægi,
nr. 2—4, bls. 59 1945). Uppdrátturinn er úr Leiðsögubók fyrir siómenn við ísland.
Rvík 1949, bls. 15.
V.b. Guðmundur Kr.
dreginn til lands
Aðfaranótt fimmtudagsins, 30.
janúar 1947, barst SVFÍ hjálpar-
beiðni frá v.b. Guðmundi Kr., frá
Keflavík, sem var með bilaða vél út
af Garðskaga. Fyrir milligöngu SVFÍ
fór síldarleitarskipið Fanney bátn-
um til aðstoðar og dró hann til Kef la-
víkur.
Guðmundur Kr., GK 425, var nýr
bátur, smíðaður í Svíþjóð 1946.
Hann var 61 lest að stærð og í hon-
um var 180 hestafla Bolindervél.
Báturinn bar nafn hins kunna afla-
manns, Guðmundar Kr., sem fórst
með Geir í febrúarveðrinu 1946.
(Vísir 30. janúar 1947:
,,Bátur í háska“.)
Einnig mikiö úrval
af gull- og silfurskart-
gripum til
fermingargjafa.
SENDUMGEGN
PÓSTKRÖFU
UM ALLT LAND
V.b. Hólmsberg og Kefl-
víkingur lenda í árekstri
Seint í janúar eða snemma í febr-
úar 1947, varð árekstur á milli vél-
bátanna Hólmsbergs og Keflvík-
ings. Þeir voru báðir frá Keflavík.
Bátarnir voru að fara í róður að
nóttu til. Sennilega á tímabilinu frá
kl. hálf eitt til tvö eftir miðnætti.
(Hér er miðað við reglugerð um
róðratíma báta frá Keflavík 1947,
sem birt er í Stjórnartíðindum, B-
deild 1947, bls. 61.) Hólmsbergið
fór fyrr frá garðinum, en Keflvíking-
ur lá utan á því. Er Keflvíkingur var
laus, setti skipstjóri á hægustu ferð
aftur á bak og stefndi um leið út frá
garðinum. Sá skipstjóri enga báta
nálæga, taldi að Hólmsbergið væri
komið út fyrir garðinn. Setti hann
þvi á fulla ferð áfram, en um leið leit
skipstjóri til hliðar og sá að svo var
ekki, Hólmsbergið var þar rétt hjá,
án þess hann hefði veitt því næga
athygli. En í sömu svifum skullu bát-
arnir saman. Voru þeir þrjár til fjórar
bátslengdir frá garðinum. Skall
Kef Ivíkingur aftarlega á síðu Hólms-
bergsins og braut beitningaskýli og
borðstokk. Skemmdir urðu þó minni
en búist var við vegna þess, að Kef I-
víkingur var kominn á fulla ferð.
Veður var ágætt, en aldimmt. Báðir
bátarnir höfðu uppi hin venjulegu
Ijós. En fram kom við réttarhöld í
málinu, að Hólmsberg átti réttinn,
samkvæmt siglingareglum. Sjó-
prófin voru haldin í Keflavik, 5. febr.
1947. Þar kemur ekki fram hvaða
dag atburðurinn átti sér stað. Skip-
Greiðslur almennings
fyrir lœknishjálp og lyf
1 Greiðslur hjá heimilislœkni og heilsugœslulœkni
100 kr. — Fyrir viötal á stofu lœknis. Innifalin er ritun lyfseðils.
180 kr. — Fyrir vitjun lœknis til sjúklings.
Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhœðir, og má lœknir
ekki krefja sjúkling um viöbótargjald, nema vegna lyfja eöa
umbúöa, sem sjúklingur kynni aö þurfa aö fara meö burt
meö sér.
2. Greiðslur fyrir sérfrœðilœknishjálp,
rannsóknir og röntgengreiningu
310 kr. — Fyrir hverja komu til sérfrœðings.
110 kr. — Elli- og örorkulífeyrisþegar, fyrstu 12 skiptin hjá sér-
frœöingi á hverju almanaksári, síöan ekkert. (Sjá nánar hér
aö neðan).
Aldrei má krefja sjúkling um nema eina greiöslu fyrir hverja
komu ásamt rannsókn/röntgengreiningu í framhaldi af henni.
Sjúkrasamlag Gullbringusýslu
Vantsnesvegi 33, Keflavík, sími 1920
(Geymiö auglýsinguna)
GEORG V.
HANNAH
Úra- og skartgripaverslun
Hafnargötu 49 — Keflavík
Sími 1557
66 FAXI